Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.04.2015, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 24.04.2015, Blaðsíða 4
Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Rómantík og ölduniður Lago Maggiore undirstrika fegurð Ítalíu og töfra Alpafjallanna þar sem dekrað verður við okkur í bænum Baveno. Boðið verður upp á margar stórfenglegar skoðunarferðir, m.a. til Domodossola í ítölsku Ölpunum og siglingu til eyjaperlunnar Isola Bella. Verð: 169.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Sp ör e hf . Fararstjóri: Hlín Gunnarsdóttir 1. - 6. júní Bella Ítalía Sumar 4 64% nýrra bíla á Íslandi í fyrra voru stað- greiddir en 36% voru fjármagnaðir með bílaláni eða -samningi. 2,1 milljarðs hagnaður varð á rekstri Kaup- félags Skagfirðinga í fyrra. Samanlagður hagnaður KS á árunum 2011 til 2014 er 8,6 milljarðar króna. Velta KS í fyrra var 27 milljarðar króna. Vill kaupa 313 byssur Ríkislögreglustjóri leggur til að 313 ný skotvopn verði keypt á þessu ári og því næsta til efla viðbúnað lögreglu. Þar af eiga að vera 163 skammbyssur og 150 hríðskotabyssur. Ofurtollar á franskar 76 pró sent toll ur er lagður á inn flutt­ ar frosn ar fransk ar kart öfl ur á Íslandi. Mark miðið er að vernda inn lenda fram- leiðslu en aðeins eitt íslenskt fyr ir tæki fram leiðir hins veg ar vör una og er fjarri því að anna eft ir spurn neyt enda eft ir frönsk um. Hag ar og dótt ur fé lag þess, Aðföng, telja toll ana ólög mæta og hafa stefnt ís lenska rík inu vegna þeirra. Franskar að belgískum sið Þrátt fyrir þessa ofurtolla er engan bilbug að finna á tónlistarmönnunum Ólafi Arnalds og Friðriki Dóri Jóns- syni sem ætla að opna skyndbitastað. Reykjavík Chips, sem selur franskar kartöflur að belgískum sið á Vitastíg. Kartöflurnar verða seldar í pappaformi og hægt verður að dýfa þeim í fjölbreytt úrval af sósum.  Vikan sem Var Hanna Birna snýr aftur Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi innanríkisráðherra, tekur sæti á þingi á ný á mánudag. Hanna Birna sagði af sér sem ráðherra þann 21. nóvember og ætlaði upphaflega að taka sæti á þingi í janúar. n ú er búist við því að skipaumferð á Norðurslóðum muni aukast á næstu árum og við viljum átta okkur á því hver staðan í sjónum er í dag, áður en umferðin, og í kjölfarið mengunin, eykst,“segir Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ í Sandgerði en hann ásamt Hrönn Jörunds- dóttur hjá Matís eru umsjónarmenn verk- efnisins á Íslandi. „Þar að auki eru uppi hugmyndir um olíuvinnslu á þessu svæði svo það gefur enn meira tilefni til vöktunar á svæðinu. Hingað til hafa áhrif olíumeng- unar í köldum sjó á lífríkið ekki verið mikið rannsökuð, en PHA-efni brotna mun hægar niður í köldum sjó en sjó á suðlæg- ari breiddargráðum.“ Lítil mengun í sjó á norðurslóðum Rannsóknin er tvíþætt. Annars vegar hef- ur styrkur PHA-efna sem finnast í olíu ver- ið mældur í lífverum á tuttugu ósnortnum strandsvæðum víðsvegar um norðurslóðir en hinsvegar hefur verið líkt eftir olíuslysi út fyrir ströndum Sandgerðis til að fylgjast með áhrifum olíumengunar á lífverur í köldum sjó. „Það er ekkert svo langt siðan menn fóru að átta sig á skaðsemi PHA- efna en það er stór hópur efna þar sem sum eru mjög eitruð, önnur eru krabba- meinsvaldandi og enn önnur hafa engin sérstök áhrif. Við mældum alls 16 efni sem eiga að gefa góða vísbendingu um það hver staðan er í heild og fyrstu niðurstöður sina að staðan er almennt góð. Rannsóknin sýnir okkur að sjórinn á norðurslóðum er almennt hreinn af olíumengun, og í sér- staklega góðu ástandi við Íslandi, og best væri auðvitað að hann héldist þannig.“ Olíuslys við Ísland „Í Sandgerði líktum við eftir olíuslysi til að athuga áhrifin á krækling, þorsk og sand- hverfu,“ segir Halldór. Niðurstöður á áhrif- um á fiskinn eru ljósar en áhrif á krækling ættu að vera ljós síðar á árinu. „Eins og við var að búast þá sjáum við neikvæð áhrif á frumur, erfðaefni og á ensímavirkni fiskanna. Rannsóknin gefur okkur tæki- færi til að fylgjast með því hvernig þessi dýr bregðast við mengun í mismiklum styrk en áður hafa rannsóknir miðast við að athuga hvort dýrin séu menguð, en núna fáum við hugmynd um hvað gerist í lífverunum við olíumengun.“ Annar meginhvati rannsóknarinnar er að eiga til staðar upplýsingar sem munu nýtast til viðmiðunar síðar. „Að vita stöð- una í dag og vöktun á svæðinu er forsenda fyrir framtíðarrannsóknum. Það er nauð- synlegt að vita hver núllpunkturinn er, en menn hafa það almennt ekki því það er orðið vandamál í heiminum í dag að finna hreina viðmiðunarstaði. Nú hefur Ísland verið notað sem viðmiðunarland í mengun- arrannsóknum og við ættum að vera stolt af því og reyna að halda því í stað þess að menga meira.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is  rannsókn Áhrif Pha-efna í olíu Á lífríki í köldum sjó Líkt eftir olíuslysi í Sandgerði Sviðsett olíuslys í Sandgerði er hluti af einum viðamestu rannsóknum sem gerðar hafa verið á áhrifum olíumengunar á lífríki í köldum sjó. Fyrstu niðurstöður sýna að olíumengunin hefur neikvæð áhrif á frumur, erfðaefni og á ensímavirkni fiska. Halldór Pálmar Halldórsson, annar yfir- maður rannsóknarinnar á Íslandi, segir Ísland vera eitt af fáum löndum í heiminum þar sem hægt sé að stunda mengunarrannsóknir því erfitt sé orðið að finna hreina viðmiðunarstaði. Það er Rann- sóknarsetur Há- skóla Íslands sem stjórnar rannsókn- inni í Sandgerði en hún er hluti af einum viðamestu rannsóknum sem gerðar hafa verið á áhrifum PHA­efna í olíu á lífríki í köldum sjó. Veður föstudagur laugardagur sunnudagur NA-strekkiNgsviNdur Og éL N- Og NA-LANds. BjArt syðrA. HöfuðBOrgArsvæðið: HæguR VinDuR og léttSKýJAð. nætuRFRoSt. Hægur N-viNdur, kALt eN vÍðA NOkkuð BjArt tiL LANdsiNs. HöfuðBOrgArsvæðið: Hæglæti og bJARt, en KAlt Í VeðRi. ALLHvöss N-átt með éLjum eðA sNjó Og skAfreNNiNgi N-tiL. HöfuðBOrgArsvæðið: StReKKinguR og SKýJAð, en áFRAm FRoSt. óvenjukalt miðað við árstíma Kaldasta loftið á öllum norðurhjaranum stefnir nú beint á okkur. nær kuldakast- ið hámarki á laugardag og sunnudag. Framan af fylgir hægur vindur og él um norðanvert landið, en á sunnudag lítur út fyrir ákveðnari vind og eiginlegt hret frá Vestfjörðum og austur á land. Snjórinn nær almennt ekki suður yfir heiðar. Spáð er svölu eða köldu veðri út mánuðinn með ríkjandi n-átt. 0 -3 -2 -2 0 -2 -5 -6 -7 -5 -3 -4 -4 -5 -2 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is 4 fréttir Helgin 24.-26. apríl 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.