Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.04.2015, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 24.04.2015, Blaðsíða 26
M aría Ólafsdóttir söngkona kemur fyr-ir sem róleg og yfirveguð manneskja. Hún er feimin og lýsir sjálfri sér sem „ósköp venjulegri“ stelpu. María viðurkennir að spennan fyrir lokakeppni Eurovision sé farin að magnast enda sé pressa á sér að komast í úrslitakvöldið. „Mér líður vel og er ótrúlega spennt fyrir þessu,“ segir María aðspurð um spennu- stigið svona mánuði fyrir keppni. „Það eru margir búnir að segja mér allskonar sögur af þessari keppni en ég veit ekki neitt. Ég veit að þetta verður einhver geðveiki þegar við komum þarna út,“ segir María. „Við erum að taka söng- æfingar og ég er að æfa allar hreyfingar með Selmu Björnsdóttur og hitta Valla sem undirbýr mig undir fjölmiðlahliðina,“ segir María og talar þá um Valgeir Magn- ússon, Valla Sport, sem þekkir hverja þúfu þegar kemur að Eurovision. „Við erum að æfa spurningar og vita hvernig við ætlum að svara og slíkt.“ María skaust upp á stjörnuhimininn í byrjun árs þegar hún sást fyrst í undan- keppni RÚV. Greinilegt var að þarna var komin söngkona sem var tilbúin í slaginn. María segir að hún hafi ekki alveg áttað sig á úr- slitunum strax. „Ég var mjög lengi að meðtaka þetta,“ segir hún. „Það er ekki langt síðan að ég áttaði mig á því að ég væri í rauninni að fara út. Fyrstu dagana var ég í sjokki og ekki alveg að fatta þetta, þetta var svo mikil athygli og mörg viðtöl svo maður hafði engan tíma til þess að setjast niður og átta sig á þessu.“ Hugurinn leitar út María fæddist á Blönduósi og bjó þar til sjö ára aldurs. Þá fluttist hún með fjölskyldu sinni í Mos- fellsbæ þar sem hún hefur búið síðan. Hún segist vera sveitastelpa í grunninn. „Ég var alltaf syngj- andi. Systir mín, sem er 11 árum eldri en ég, var mikið að syngja og ég var alltaf að herma eftir henni,“ segir María en systir hennar, Ardís Ólöf, tók þátt í Idol keppninni árið 2003. „Ég er alin upp við mikið af tónlist. Foreldrar mínir eru ekki í tón- list en hafa alltaf hlustað mjög mikið á hana og það er mikil tónlist á heimilinu. Það lá alltaf fyrir að ég ætlaði að syngja, tók þátt í Samfés og í Vælinu í Versló en lenti alltaf í öðru sæti,“ segir María og glottir. „Það var verra í seinna skiptið því það var á lokaárinu mínu.“ María hefur tekið þátt í uppfærslum hjá Leik- félagi Mosfellsbæjar og nú síðast lék hún aðalhlut- verkið í Ronju ræningjadóttur sem fékk prýðilega dóma. „Ég var alltaf í leikfélaginu sem krakki og tók þátt í öllum námskeiðum og slíku þangað til að ég varð 16 ára. Þá var ég orðin of gömul fyrir slíkt. Svo tók ég þátt í Ronju á síðasta ári sem varð mjög vinsæl,“ segir María. „Mig langar að vinna bæði við tónlist og leiklist, þó tónlistin hafi oft- Feimna sveitastelpan komin á stóra sviðið Fulltrúi Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva er hin 22 ára gamla María Ólafsdóttir. Það vissu ekki margir hver hún var þegar hún steig á svið í undankeppninni á RÚV í byrjun árs, en hún var fljót að vinna þjóðina á sitt band og sigraði með miklum yfirburðum. María er rólyndisstúlka sem nýtur sín oft í sveitasælu en hún bjó á Blönduósi til sjö ára aldurs, en flutti þá í Mosfellsbæ þar sem hún býr í dag. María er skiljanlega mjög spennt fyrir keppninni í vor og segir það langþráðan draum að taka þátt. Hún tekur lítil skref í einu en langar þó að búa sér til feril í tónlist og leikhúsi. Framhald á næstu opnu Sérhannað skart Maríu styrkir Hugarafl Skartið sem María Ólafsdóttir mun bera í lokakeppninni í Vín er hannað af vöru- hönnuðinum Sunnu Dögg Ásgeirsdóttur og smíðað af Jóni & Óskari. Skartið sem ber nafnið María, er bæði hálsmen, armband og hringur og sýnir fiðrildi sem eru ein- kennistákn lagsins Unbroken. Sunna Dögg hönnuður segir fiðrildið vera einkennandi fyrir textann sem fjallar um manneskju sem verður sterk- ari og sterkari, líkt og fiðrildi sem er að springa út. Skartið fer í almenna sölu hjá Jóni & Óskari og mun allur ágóði renna til Hugarafls. Þar er veittur stuðningur í bataferli sem byggir á því að efla geð- heilsu og tækifæri í lífinu. Það er hugmynd Maríu að styrkja þetta góða starf sem á sér þar stað. Þann 9. maí verður skartgripurinn fáanlegur og sýnilegur almenningi þegar Eurovision hópurinn blæs til heljarinnar veislu í Kringlunni, nokkrum dögum áður en haldið verður út til Vínar. 26 viðtal Helgin 24.-26. apríl 2015 Þau eru öll mjög spennt, en pabbi er smá stress- aður af því að það er sauðburður á sama tíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.