Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.04.2015, Síða 66

Fréttatíminn - 24.04.2015, Síða 66
viðhald húsa Helgin 24.-26. apríl 20156 Ráðgjöf um viðhald og endurbætur mann- virkja hjá Verksýn Verksýn ehf. er ráðgjafar- fyrirtæki sem veitir meðal annars sérhæfða ráðgjöf vegna viðhalds og endurbóta á ýmis konar mannvirkjum, að innan sem utan. Verksýn hefur sinnt hundruðum verkefna frá stofnun þess og þar starfa aðilar með mikla reynslu og þekkingu af framkvæmdum. F ramkvæmdir við endur-bætur eldri húsa geta verið vandasamar og mikilvægt er að leita til fagaðila við undirbún- ing þeirra. Fasteign sem vel er við haldið er yfirleitt mikil prýði fyrir umhverfi sitt og eigendur. „Meðal viðskiptavina okkar eru einstak- lingar, húsfélög, fasteignafélög og hinar ýmsu stofnanir,“ segir Andri Már Reynisson, byggingafræðingur hjá Verksýn. Bera þarf virðingu fyrir upp- runalegri hönnun Andri segir að við framkvæmdir á eldri húsum þurfi að gæta að ýms- um atriðum, svo sem efnisvali, að- ferðum og útliti. „Í flestum tilvikum er full ástæða til ákveðinnar íhalds- semi í framkvæmdum og hugsan- legar breytingar þarf ávallt að meta í hverju tilviki fyrir sig. Ráðlegt er að bera virðingu fyrir upprunalegri hönnun, frágangi og vinnubrögð- um. Íhaldssemi við þessar aðstæður stuðlar meðal annars að fjölbreyti- legri borgarmynd. Í sumum tilvik- um verður þó ekki umflúið að ráðast í breytingar vegna tæknilegra at- riða eða umfangsmikilla skemmda.“ Andri segir jafnframt að þróun í efn- isúrvali og vinnubrögðum hafi verið mikil síðustu áratugina, og að þekk- ing hafi einnig aukist með aukinni reynslu og rannsóknum. Hagkvæmni höfð að leiðarljósi „Þegar teknar eru ákvarðanir um að ráðast í framkvæmdir er ráðlegt að hafa hagkvæmni að leiðarljósi, bæði til lengri og skemmri tíma. Þegar vitað er um vandamál, eins og til dæmis leka, er brýnt að ástand sé skoðað og metið. Slík skoðun er eitt af þeim grundvallaratriðum sem þarf að vera til staðar svo eigend- ur geti tekið upplýstar ákvarðanir. Skoða þarf og meta ástand stein- steypu, glugga og hurða, þaka og annarra hluta sem mynda ytri hjúp byggingar. Þá er full ástæða til að skoða ástand lagna reglulega,“ segir Andri. Umfangsmiklar endurbætur eru í mörgum tilvikum kostnaðar- samar og því borgar sig að gæta vel að góðum og faglegum undirbún- ingi þeirra. „Slíkt stuðlar ótvírætt að vel heppnuðum framkvæmdum. Ákveðin óvissa er ávallt fyrir hendi, en engu að síður er til nægjanleg þekking og reynsla til að áætla kostnað við framkvæmdir þannig að litlu skeiki. Það er eitt helsta mark- mið okkar,“ segir Andri. Nánari upplýsingar um hinar ýmsu hliðar þessara mála má finna á heimasíðu fyrirtækisins, www.verksyn.is. Unnið í samstarfi við Verksýn Andri Már Reynisson, byggingafræðingur hjá Verksýn. Myndin er tekin við Hamra- hlíð 21-25, en húsið var tekið í notkun árið 1955. Hönnuður þess er Sigvaldi Thor- darson arkitekt. Mynd/Hari. H yggist húsfélagið taka lán til að fjármagna fram-kvæmdirnar verður jafn- framt að geta tillögu þar að lútandi í fundarboði. Slík lántaka húsfélags- ins getur verið með ýmsum út- færslum og blæbrigðum þannig að forsvarsmenn húsfélagsins ættu að kanna það hjá lánastofnunum hvaða möguleikar og útfærslur eru í boði. Húsfélagið sem slíkt getur verið lán- takandi en þá er brýnt að vel sé að öllu staðið viðvíkjandi ákvörðunar- tökuna. Rétt er að geta þess að slík fjármögnun er talin afbrigðileg í þeim skilningi að enginn íbúðar- eigandi verður knúinn til að taka lán ef hann vill heldur greiða hlutdeild sína beint í peningum. Lántaka húsfélags Þegar sameiginleg fram- kvæmd er f jármögnuð með lántöku húsfélagsins til margra ára geta ýmsar flækjur orðið milli núver- andi og fyrrverandi eig- anda og húsfélagsins. Hús- félagið myndi alltaf, og þar með taldir íbúðareigendur á hverjum tíma, verða ábyrgir gagnvart lánastofnuninni. Hins vegar er það megin- regla að endanleg ábyrgð hvílir á þeim, sem voru eigendur þegar framkvæmdin var ákveðin og gerð. Kaupsamningar og önnur gögn um kaup og sölu þ.á.m. gögn frá hús- félaginu geta leitt til annarrar niður- stöðu. Þegar kaupandi kaupir íbúð í húsi sem er nýmálað þá tekur hann það yfirleitt með í reikninginn og er væntanlega reiðubúinn að greiða hærra verð fyrir íbúð í nýmáluðu húsi en ef húsið væri allt í niður- níðslu að því leyti. Almennt má kaupandi búast við því að búið sé að greiða fyrir þær framkvæmdir sem lokið er nema seljandi upplýsi hann um annað og þeir semja um það sín á milli. Lögveð Húsfélög eiga lögveð í íbúð þess sem ekki greiðir hlutdeild sína í sameiginlegum kostnaði. Lögveðið stendur í eitt ár. Upphafstími þess miðast við gjalddaga greiðslna og uppgjör á verkinu í þröngum skiln- ingi. Lögveðið er dýrmætur réttur sem gæta verður að og passa upp á að glatist ekki. Það er sérstakur réttur sem heyrir til undantekninga og skýtur öðrum veðhöfum ref fyrir rass. Það sést ekki á veðbókarvott- orði og getur rýrt og raskað hags- munum bæði veðhafa og skuld- heimtumanna. Þess vegna eru því settar þröngar skorður. Hver eigandi skal fjármagna sína hlutdeild Affarasælast er að hver eigandi fjármagni sína hlutdeild í sameig- inlegum framkvæmdum af sjálfs- dáðum og eftir atvikum með full- tingi síns viðskiptabanka. Með því verða línur einfaldar og réttarstaða eigenda og húsfélagsins skýr og án eftirmála. Hins vegar er það sjálf- sagt og eðlilegt að húsfélag sem slíkt fái fyrirgreiðslu banka til að fjármagna framkvæmdina á sjálfum framkvæmdatím- anum með yfirdráttarheim- ild eða á annan hátt. Þegar framkvæmdinni er lokið og öll kurl til grafar komin er affarasælast að hver eig- andi geri upp við húsfélagið sem svo gerir upp við verk- takann og bankann ef því er að skipta. Með því lyki hlutverki húsfélagsins í fjár- mögnuninni og rekstur þess og fjármál verða með því einfaldari og öruggari en ella. Ábyrgð út á við Fram hjá því verður ekki litið að ábyrgð eigenda í fjöleignarhúsi út á við, gagnvart þriðja aðila, t.d. banka og verktaka, er einn fyrir alla og allir fyrir einn. Þannig get- ur kröfuhafi að vissum skilyrðum uppfylltum gengið að hverjum og einum eigenda ef vanskil verða af hálfu húsfélags og eða einhvers eigenda. Það getur því skiljanlega staðið skilvísum eigenda, sem ekki má vamm sitt vita, fyrir svefni að vera til margra ára spyrtur saman í fjárhagslega skuldbindingu með meira eða minna óskilvísum sam- eigendum og dragast nauðugur inn í deilur í kjölfar eigendaskipta. Hvoru tveggja getur leitt til leið- inda og fjárútláta, í bráð að minnsta kosti. Sigurður Helgi Guðjónsson formaður Húseigendafélagsins. Fjármögnun framkvæmda Þegar ráðist á í sameiginlega framkvæmd á húsi er að mörgu að huga. Hér má finna upplýsingar um nokkur atriði sem gott er að hafa í huga þegar kemur að lántöku, fjármögnun og ábyrgð út á við. Sigurður Helgi Guðjónsson Síðumúla 31, 108 Reykjavík www.parketverksmidjan.is S. 581 2220 OKKAR EIGIN FRAMLEIÐSLA BEINT FRÁ VERKSMIÐJU

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.