Fréttatíminn - 24.04.2015, Blaðsíða 18
Ég er frekar
feiminn og
hlédrægur
að upplagi
og hef því
að miklu
leyti leyft
þessu að
selja sig
sjálft.
Bruggar
gróðuráburð
í kjallaranum
Guðjón Dalkvist Gunnarsson, eða Dalli eins og hann er
alltaf kallaður, framleiðir gróðuráburð á Reykhólum við
Breiðafjörð. Þrátt fyrir að vera aðeins 71s árs segist hann
sposkur vera í fullri vinnu við að vera gamall en áburðinn
Glæði framleiði hann í tómstundum. Dalli sækir sjálfur þarann
í fjöruna og bruggar töfrablönduna í kjallaranum hjá sér.
M itt aðalstarf er nú bara að vera gamall,“ segir Guðjón Dalkvist Gunn-
arsson, eða Dalli eins og hann er
alltaf kallaður, sem framleiðir líf-
rænan gróðuráburð í kjallaranum
hjá sér á Reykhólum við Breiðafjörð.
Dalli er í fullu fjöri, enda aðeins 71
árs, og þó hann hafi þurft að hætta
störfum í Þörungaverksmiðjunni á
Reykhólum vegna rykofnæmis fann
hann leið til að vinna með þangið á
annan hátt. „Ég sæki þangið sjálfur
í fjöruna og það verður aldrei þurrt
hjá mér þannig að það er engu þör-
ungaryki fyrir að fara,“ segir hann.
Gróðuráburðurinn sem Dalli
framleiðir heitir Glæðir og byrjað
hann þróunarvinnuna í kring um
aldamótin. Hann gaf þá prufublönd-
ur til gróðurhúsa og gróðrarstöðva
og komst loks niður á réttu blönd-
una. Glæðir samanstendur af kló-
þangi úr Breiðafirði, íslensku vatni
og kalísódi sem Dalli sýður saman.
„Mestur tíminn fór í að finna réttu
hlutföllin,“ segir hann. Þang, sér í
lagi úr Breiðafirði, hefur löngum
verið þekkt fyrir heilnæma eigin-
leika sína og er fjölda snefilefna að
finna í þangi sem nýtist gróðri.
Glæðir er lífrænn áburður úr ís-
lensku hráefni sem nota má við líf-
ræna ræktun. Hann hentar jafnt
að vori sem hausti, á grasflatir og
tré og blóm bæði úti og inni. Vökv-
inn, eins og hann kemur úr brús-
unum, er blandaður vatni til vökv-
unar og úðunar. Dalli bendir á að
ef þang er soðið eitt og sér gerist
lítið sem ekkert en við framleiðsl-
una blandar hann kalísódi við vatnið
sem leysir upp snefilefnin í þanginu
sem gagnast gróðrinum og gera þau
aðgengileg. Kalísódinn nýtist síðan
einnig í áburðinn enda eru köfnun-
Stoð í áli
ársfundur Samáls 2015
Þann 28. apríl heldur Samál árs fund sinn
í Kalda lóni í Hörpu undir yfir skrift inni
Stoð í áli.
Fjallað verður um stöðu og fram tíð
ál iðn aðar ins með áherslu á hring rás ina
frá fram leiðslu til fjöl breyttrar notkunar
og endur vinnslu. Samhliða ársfundinum
verður sýn ing á stoð tækjum Össurar þar
sem ál gegnir mikil vægu hlut verki.
Fundarstjóri er Ólafur Teitur Guðnason.
Dagskrá
8:00 Morgunverður.
8:30 Ársfundur.
Sterkar stoðir Ragnar Guðmundsson, stjórnar-
formaður Samáls og forstjóri Norðuráls.
Ávarp Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.
Stoðtæki úr áli Bjarni Andrésson og María G.
Sveinbjörnsdóttir, vöruhönnuðir hjá Össuri.
Aerospace Aluminum – The Empire
Strikes Back Daniel Goodman, markaðsstjóri
Alcoa í flugsamgöngum.
Kolefnisfótspor áls – Ísland og umheimurinn
Þröstur Guðmundsson PhD, framkvæmdastjóri
álsviðs HRV.
10:00 Kaffispjall að loknum fundi.
Skráning er öllum opin og fer fram á vef
Samáls, samal.is.
arefni, fosfór og kalí þau þrjú nær-
ingarefni sem teljast megin nær-
ingarefni plantna.
Til að byrja með var þetta aðeins
tómstundastarf með fullu starfi sem
vaktformaður yfir þaraþurrkun í
Þörungaverksmiðjunni. „Það eina
sem var sameiginlegt með þessum
störfum mínum var hráefnið. Annars
var þetta alveg óskylt,“ segir hann.
Upphaflega ætlaði félagi Dalla að
vera með honum í framleiðslunni,
eða réttara sagt þá ætlaði Dalli að
sjá um framleiðsluna en félaginn
um sölumennskuna, en þegar ljóst
var að Dalli stæði einn í þessu öllu
saman þurfti hann að finna með sér
hinn innri sölumann. „Ég er frekar
feiminn og hlédrægur að upplagi og
hef því að miklu leyti leyft þessu að
selja sig sjálft,“ segir hann. Fyrstu
árin seldist afar lítið af áburðinum
en eftir að hann fór að verða til sölu
í verslunum Bónuss, svo og í Blóma-
vali/Húsasmiðjunni, fór salan held-
ur betur að glæðast og segir Dalli
að þessar tvær verslanir hafi í raun
haldið sölunni uppi. Þá hefur Byko
selt nokkuð af Glæði sem og gróðrar-
stöðin Storð en vinnuskólinn, í bæði
Garðabæ og Kópavogi, notar Glæði.
„Þetta gengur betur en ég þorði
nokkurn tímann að vona en fram-
leiðslan er öll enn bara í bílskúr-
skjallaranum hjá mér,“ segir hann.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Guðjón Dalkvist Gunnarsson, eða Dalli
eins og hann er alltaf kallaður, fram-
leiðir lífrænan gróðuráburð í kjallaran-
um hjá sér á Reykhólum við Breiðafjörð.
Mynd/Reykholar.is
18 viðtal Helgin 24.-26. apríl 2015