Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.04.2015, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 24.04.2015, Blaðsíða 44
44 matur & vín Helgin 24.-26. apríl 2015 Grilltímabilið er hafið Haraldur Jónasson hari@frettatiminn.is Leif Sørensen. Færeyskur kokkur í Laugardal Veitingastaðurinn Flóran í Grasagarðinum í Laugardal verður opnuð á ný um helgina eftir vetrardvala. Af því tilefni verður efnt til færeyskra daga um helgina og Leif Sørensen, einn þekktasti matreiðslumeistari Færeyja og einn upphafsmanna nýnorræna eldhússins, mun taka yfir eldhús Flórunnar á laugardags- kvöldið. Leif mun reiða fram sex rétta málsverð af sinni alkunnu snilld. Á matseðlinum tvinnar Leif saman færeyskar matarhefðir og það besta úr nýnorræna eldhúsinu. Nánari upplýsingar og borðapantanir eru á www.floran.is. www.odalsostar.is TINDUR OSTUR ÚR SKAGAFIRÐINUM Þessi bragðmikli meðlimur Óðalsfjölskyldunnar er framleiddur í Skagafirði og nefndur eftir fjallinu Tindastól. Tindur er einstakur ostur sem fengið hefur drjúgan þroskunartíma þar til hinu einkennandi þétta bragði hefur verið náð. Óðals Tindur er sérstaklega bragðmikill, hæfir við ýmis tækifæri og er dásamlegur einn og sér. Tindur parast vel með sterku bragði enda lætur hann fátt yfirgnæfa sig. Eins og þegar beljunum er sleppt út á vorin koma grillararnir dýrvitlausir út á svalir nú í sumar- byrjun. Flestir með gasgrillin sín tilbúin en hreinstefnufólk byrjar að huga að kolakaupum um þetta leyti. Hvor tegundin sem brúkuð er skiptir ekki öllu máli heldur það að hafa fimm mikil- vægustu grillráðin föst á heilaberkinum áður en hafist er handa. Svo er bara að vona að grill- tímabilinu ljúki ekki áður en það hefst. 1. Óbeinn hiti Þegar grilla á hamborgara, fiskflök eða litlar steikur er best að nota tiltölulega háan hita beint undir matnum. En á hinn boginn þegar stærri stykki fara á grillið borgar sig oft að nota óbeinan hita. Það er; breyta grillinu í hálfgerðan útiofn. Þá er enginn eldur undir matnum heldur við hliðina eða allt um kring. Það þýðir þó ekki að ekki þurfi að fylgjast með eða dudda hitt og þetta. Því matnum þarf að snúa svo allt grillist jafnt og fínt og kjörið að nota spæni til að fá þetta ekta grillbragð. 5. Tangir og spaðar Það er fátt eins hvimleitt og sviðnar hendur, nema kannski sundurtætt kjöt. Til að snúa mat við á að nota tangir og eða spaða. Gafflar eiga bara heima í eldhúsinu þegar borðað er. Alls ekki nota neitt sem stingur göt á matinn meðan hann er grillaður. Alla vega ekki ef verið er að grilla kjöt og fisk. Spaðinn þarf ekkert endilega að vera þessi klassíski grillspaði með extra löngu haldi. Það sem skiptir mestu máli er að spaðinn sé nógu stór til þess að flippa hamborgara. Tangirnar sem virka best eru þessar mekanísku. Helst með stáli alla leið fram. Í það minnsta ekki með mjúku gúmmíi sem bráðnar og nær steikinni ekki af grindinni þegar allt er farið í bál og brand. 2. Grilla ekki brenna Það á auðvitað á fá grillrendur í matinn en auðvelt er að brenna allt til kaldra þarna þarna úti. Feitt kjöt og eldur gera það að verkum. Þess vegna þarf að búa til kaldari svæði á grillinu. Stað þar sem hægt er að koma matnum í var ef kviknar í herlegheit- unum. Á gasgrilli er einfaldlega lækkað eða slökkt á einum brennara og á kolaútgáfunum er kolunum raðað hærra öðru megin á grillinu til að mynda heit og köld svæði. 3. Réttu tólin Grill eru misdýr og líka misgóð. Það dýrasta er þó ekkert endilega það besta en það ódýrasta er þó yfirleitt á ávísun á slappa endingu. Gas- megin er mikil- vægt að velja grill með ryðfríum brennurum. Annars endast þeir varla sumarið. Svo er það grindin sjálf. Fyrir utan brennarana er hún það mikilvægasta á gasinu. Þar er hægt að velja um margar tegundir sem hafa allar mismunandi eiginleika. Emalerað járn, ryðfrítt stál og pottjárn eru allt ljómandi kostir. En grindurnar á gasgrillum þurfa að vera þykkar. Því þar sem sjaldnast er miklum reyk fyrir að fara þarf bragðið að koma frá því að kjötið karmeliserist á grindunum. Kolagrill þurfa að vera akkúrat á hinum endanum í grindunum. Frá kolunum kemur meira bragð frá reyknum og því eru grindurnar mun mjórri yfir kolunum. 4. Reykur Það er reykurinn sem grillarinn sækist eftir. Auðvitað drýpur fita og annað ofan á kolin og bragðburstirnar á grillunum sem vissulega skapar reyk – en mikill vill meira. Þar koma kubbar og spænir við sögu. Sagið kemur að betri notum í litla reykofna en á grillin. Spæninn er best að leggja í bleyti og setja svo beint á heit kolin. Til að nota spæni á gasgrill eru notuð box. Það er hægt að nota einnota álbox með nokkrum holum í botninn en líka hægt að kaupa sérstök reykbox úr ryðfríu stáli. Auk þess sem hægt er að vefja spæninn upp í álpappír og stinga á hann slatta af götum. Þá aðferð er líka hægt að nota á kubbana. Einfaldlega vefja þeim inn í álpappír með nokkrum götum á. Þá reykir kubburinn ljómandi án þess að brenna. Því það á alls ekki að koma upp eldur. Honum fylgir sót og það er ekki gott magamál.     KLASSÍSKI LISTDANSSKÓLINN Inntöku próf 30. apr íl Vorhátíð skólans í Borgarleikhúsinu mánudaginn 27. apríl kl. 18:00 WWW.BALLET.IS Grensásvegi 14 & Álfabakka 14a s: 534 9030 mail: info@ballet.is Inntökupróf fer fram á Grensásvegi 14 fimmtudag 30. apríl nemendur 13 ára og eldri mæti kl.18:00 Miðasala á www.borgarleikhus.is Skráning fyrir nýja nemendur fyrir haustönn 2015 er hafin á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.