Fréttatíminn - 24.04.2015, Side 11
Nýjar Siemens uppþvottavélar
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Nýjar uppþvottavélar frá Siemens með Zeolith®-þurrkun sem er afburðagóð og árangursrík þurrkun og
byggist á að láta hið náttúrulega steinefni seólít soga í sig raka og gefa frá sér hita. Orkuflokkur A+++.
Þurrkhæfni A. 13 manna. Fimm kerfi. Sérlega hljóðlátar: 44 dB (re 1 pW). Barnalæsing. „aquaStop“-
flæðivörn. Stytta má vinnslutímann á öllum kerfum vélanna. Eitt sjálfvirkt kerfi. Siemens
uppþvottavélar hafa lent í fyrsta sæti hjá virtum neytendasamtökum í Evrópu undanfarin ár.
-allt svo glitrandi og þurrt!
Kynningarverð: 109.900 kr.
Uppþvottavél, SN45M208SK (hvít)
Uppþvottavél, SN45M508SK (stál)
Kynningarverð: 122.900 kr.
Við leggjum áherslu á hágæða vörur
og fyrsta flokks þjónustu á góðu verði.
„All in 1“ uppþvotta-
töflurnar frá Finish
fylgja með öllum
Siemens uppþvottavélum.
Íslenski fáninn í
sumargjöf
Skátar hafa árlega frá árinu 1994 gefið
öllum börnum í 2. bekk grunnskóla
landsins íslenska fánaveifu fyrir sumar-
daginn fyrsta. Gjöfinni fylgir bæklingur
sem fræðir börnin og fjölskyldur þeirra
um sögu fánans, fánareglur, meðferð
fánans og notkun hans.
Fram kemur í tilkynningu Bandalags
íslenskra skáta að verkefnið sé unnið
undir yfirskriftinni „Íslenska fánann í
öndvegi“ en skátar hafa alla tíð gert
fjölmargt til þess að gera veg íslenska
fánans sem mestan, sérstaklega með
því að fræða almenning um meðferð
hans og notkun. Á meðfylgjandi mynd
eru börn í Klébergsskóla á Kjalarnesi
með fánann.
Landspítali fær um-
hverfisviðurkenningu
Landspítalinn fékk umhverfisviður-
kenningu umhverfis- og auðlindaráðu-
neytisins á miðvikudaginn fyrir fram-
úrskarandi starf að umhverfismálum.
Á Landspítalanum hefur síðastliðin
ár verið lögð sérstök áhersla á að
auka flokkun, draga úr sóun, auka
vistvæn innkaup, hvetja til vistvænna
ferðamáta, hafa skýrt verklag fyrir
hættulegan úrgang og að auka miðlun
upplýsinga um umhverfismál. Eftir
að Landspítalinn hóf að bjóða sam-
göngusamninga hefur starfsmönnum
sem ferðast með vistvænum hætti
fjölgað. Á síðasta ári fór svo fram
undirbúningsvinna vegna Svans-
vottunar eldhúss og matsala spítalans
og afhending Svansvottunarinnar fór
fram í mars síðastliðnum. Matarsóun
hefur minnkað um 40% síðan 2011 og
nýlega voru tekin í notkun margnota
matarbox í matsölum, í stað frauð-
plastboxa sem áður voru notuð.
Ingólfur Þórisson, framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs Landspítala,
tekur við Kuðungnum úr hendi
Sigrúnar Magnúsdóttur umhverfis-
og auðlindaráðherra.
Myndlist tryggvi Ólafsson MyndlistarMaður gaf 210 litÓgrafíur
Færði ungmennum í Reykjavík veglega sumargjöf
Tryggvi Ólafsson myndlistarmað-
ur færði börnum og ungmennum
í Reykjavík veglega gjöf á sumar-
daginn fyrsta. Tryggvi gaf alls 210
litógrafíur eftir sig. Hver leikskóli
og grunnskóli í borginni fær tvær
myndir og skólahljómsveitir fá graf-
íkmyndir af þekktum djasstónlistar-
mönnum.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
veitti gjöfinni viðtöku í Tjarnarsal
Ráðhússins í gær. Við afhending-
una lék kvartett úr Skólahljóm-
sveit Austurbæjar og reykvísk börn
færðu listamanninum gjafir; mynd-
verk og nýútkomna bók með sögum
8-10 ára barna.
Tryggvi Ólafsson er einn af kunn-
ustu myndlistarmönnum þjóðarinn-
ar en hann hefur málað í sex ára-
tugi. Hann flutti nýverið aftur til
Íslands eftir langa búsetu í Kaup-
mannahöfn. Tryggvi fæddist á Norð-
firði árið 1940 og verður því 75 ára
á árinu. Á æskuárunum grúskaði
Tryggvi í myndum á meðan aðrir
léku sér í fótbolta en í gagnfræða-
skólanum, þar sem hann tók lands-
próf árið 1956, var ekki ein einasta
mynd. Kveðst Tryggvi vilja tryggja
að börn og unglingar geti skoðað
myndir í skólanum, þrátt fyrir að
tímar snjallsíma og samfélagsmiðla
séu runnir upp.
Tryggvi Ólafsson myndlistarmaður
færði börnum í Reykjavík veglega
sumargjöf, 210 litógrafíur eftir sig.
Hér er hann með Degi B. Eggertssyni
borgarstjóra, Ragnari Þorsteinssyni,
sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs og
Snorra Steini Bjarnasyni, nemanda úr
Dalskóla, sem færði Tryggva sumargjöf
frá börnum í Reykjavík.
fréttir 11 Helgin 24.-26. apríl 2015