Fréttatíminn - 24.04.2015, Page 17
Það var þá
sem hann dó
í hjarta mínu
þó hann hafi
ekki látist
fyrr en ári
síðar.
Uppgjör við ofbeldið í ástinni
„Ég hef til að mynda skrifað mikið
um dómsmál og þar er ábyrgðin ein-
mitt mun skýrari en í málum þar sem
ábyrgðarferlið er notað,“ segir hann.
Valur var blaðamaður á endurreistu DV
árið 2007, skrifaði sláandi greinar um
Breiðavíkurmálið og fékk verðlaun fyrir
rannsóknarblaðamennsku ársins sama
ár. „Ég var svo ungur þegar ég skrifaði
þetta að ég áttaði mig ekki almennilega
á því hvað þetta var mikilvæg umfjöll-
un. Það var ekki fyrr en pabbi hringdi
í mig og þakkaði mér fyrir skrifin mín
um Breiðavíkurdrengina sem ég fór að
skilja. Pabbi hafði unnið sem sjómaður
í áratugi og vann með mörgum af þess-
um mönnum sem höfðu verið vistaður
á Breiðavík. Hann vissi því upp á hár
hvaða hörmungar þeir höfðu upplifað
og var innilega ánægður að þeir fengju
uppreist æru. Þegar pabbi hringdi í mig
upplifði ég mjög sterkt að ég hefði gert
eitthvað sem skipti máli.“
Pabbi vildi „fara í skónum“
Eldri sonur Vals, Ólafur Grettir, er
nefndur eftir öfum sínum báðum. Hanna
missti ung Ólaf föður sinn og Grettir,
faðir Vals, dó úr krabbameini þegar Ís-
lendingar voru rétt svo byrjaðir að vinna
úr eftirmálum hrunsins. „Það setti hlut-
ina í samhengi fyrir mig að missa pabba
á þessum tíma. Peningar skipta svo litlu
máli samanborið við okkar nánustu,“
segir Valur en Ólafur Grettir var skírður
í Dómkirkjunni í aðdraganda Janúar-
byltingarinnar svokölluðu. Þar sem Val-
ur stóð við skírnarfontinn, með ungan
son sinn og dauðvona föður, hljómaði
endurtekið „vanhæf ríkisstjórn“ af Aust-
urvelli þar sem fólk mótmælti hástöfum.
„Það sem mér fannst erfiðast við að
missa pabba á þessum tíma var að son-
ur minn var bara nýfæddur og ég hefði
viljað að þeir gætu kynnst betur. Sjokkið
kom þegar ég fékk þær fréttir að pabbi
væri kominn með krabbamein og væri
dauðvona. Það var þá sem hann dó í
hjarta mínu þó hann hafi ekki látist fyrr
en ári síðar. Hann lagði alltaf áherslu á
að „fara í skónum“ og það var nákvæm-
lega það sem hann gerði. Hann lá ekki
inni á spítala heldur fór til útlanda, kom
heim og hreinlega missti andann þegar
hann fékk vind í fangið. Hann stóð upp-
réttur fram á það síðasta. Pabbi var frá-
bær karl.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
legur náungi gat ég leyft mér að
ganga ansi langt í húmornum. Sölvi
upplifir sig í byrjun fullkomlega sak-
lausan en smám saman fer hann að
gera sér grein fyrir að hann er aug-
ljóslega sekur um eitthvað,“ segir
Valur.
Blaðamannaverðlaun fyrir
Breiðavíkurmálið
Gott fólk er vissulega fyrsta skáld-
saga Vals en þetta er ekki fyrsta
bókin sem hann sendir frá sér
því aðeins 24 ára gamall, fyrir ell-
efu árum, gaf hann út ljóðabókina
Skýjamyndaárásir. „Hún var ekk-
ert sérstök en góð stílæfing og mér
þykir vænt um hana,“ segir hann en
á þessum árum rak hann lítið ljóða-
bókaforlag í Hafnarfirði ásamt fé-
laga sínum og til stóð að hella sér
í umfangsmikla ljóðabókaútgáfu.
Forlagið lognaðist þó út af og Val-
ur starfaði sem þjónn á veitinga-
staðnum La Primavera sem var og
hét þegar áhugi á blaðamennsku
kviknaði. „Ég kunni vel mig mig
á La Primavera en fannst starfið
ekki alveg nógu andlega nærandi.
Nokkrir vinir mínur voru á þessum
tíma byrjaðir í blaðamennsku, og
ég sótti um – og fékk – starf á DV.
Ég byrjaði nokkrum vikum áður en
umfjöllunin örlagaríka um einhenta
kennarann á Ísafirði var birt og fékk
strax mikla eldskírn í fjölmiðlum,“
segir Valur sem hefur starfað síð-
an sem blaðamaður á hinum ýmsu
miðlum, svo sem Mannlífi, Blaðinu,
fréttavefnum Vísi, Fréttablaðinu og
er nú aftur kominn á DV.
viðtal 17 Helgin 24.-26. apríl 2015
Orkuveita Reykjavíkur býður þér á opinn ársfund
í Gamla bíói mánudaginn 27. apríl kl. 14
Dagskrá
Frostavetur að baki
Bjarni Bjarnason, forstjóri OR
Fjárræði - sjálfræði
Haraldur Flosi Tryggvason, formaður stjórnar OR
Næstu skref hjá Orkuveitunni
Dagur B. Eggertsson, borgarstjórinn í Reykjavík
Snjöll samfélög og Ljósleiðarinn
Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur
Urriði, fræslægja og fjarstaddir jarðfræðingar
Hildigunnur H. Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Þróunar OR
Brynja Þorgeirsdóttir stýrir fundinum
Teitur Magnússon flytur tónlist
Opinn ársfundur Orkuveitu Reykjavíkur 2015
Gleðilegt sumar!
Við bjóðum í sólarkaffi að loknum fundi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
5-
08
47
Skráning á www.or.is