Fréttatíminn - 24.04.2015, Page 28
ast haft forgang,“ segir hún. „Mig
langar í leiklistarnám seinna meir.
Ég reyndi við leiklistarskólann hér
heima fyrir tveimur árum og komst
ekki inn, en mig langar meira í nám
erlendis þar sem hægt er að blanda
leik og tónlist meira saman.“
Sveitastúlka inn við beinið
María vekur mikla athygli hvar sem
hún kemur, eins og algengt er með-
al þeirra sem vinna undankeppni
Eurovision. Hún segir það bara vera
gaman, ennþá. „Það er svolítið mik-
ið um það að fólk komi upp að mér
og vilji fá mynd og slíkt. Ég fór út að
borða um daginn og var ekki búin
að vera á staðnum í tvær mínútur
þegar fólk vildi fá mynd af mér, með
sér,“ segir María. „Mér finnst það
samt bara gaman, ennþá,“ segir hún
og hlær. „Það eru margir úr brans-
anum sem segja mér að bíða bara
róleg, þetta hætti að vera gaman.
Núna er mér alveg sama,“ segir
María.
Hópurinn sem tekur þátt í laginu
Unbroken heldur til Vínar 13. maí
og þann 21. maí er seinna undan-
úrslitakvöldið þar sem Ísland stíg-
ur á svið. Aðalkeppnin sjálf er svo
laugardaginn 23. maí. María segir
hópinn vera mjög samstilltan. „Það
er búið að setja upp plan fyrir mig
þarna úti og það er ekki mínúta sem
fer til spillis sýnist mér,“ segir hún.
„Ég er með það markmið að komast
á úrslitakvöldið. Ég held að það sé
takmarkið hjá öllum hópnum.“
Ertu Eurovision nörd?
„Já, ég held það. Nördarnir
mundu líklega ekki kalla mig nörd,
en ég hef mjög mikinn áhuga á
þessari keppni og hef alltaf haft,“
segir María. „Ég get ekki misst af
neinu í þessari keppni.“
María segir að æskuárin á
Blönduósi eigi stóran part í sér.
Hún er mikil sveitastúlka og var ró-
legt barn. „Mamma og pabbi eiga
sveitabæ hjá Blönduósi og keyra
mikið á milli,“ segir hún. „Þau eru
nýbúin að taka við býlinu af ömmu
og afa og ætli það endi ekki með því
að þau flytji alveg norður. Ekki al-
veg í nánustu framtíð, en það kemur
líklega að því. Ég var mjög rólegur
krakki,“ segir María. „Var mjög
feimin nema þegar kom að því að
standa uppi á sviði og syngja eða
leika. Þá var eins og feimnin færi.
Mamma sagði að ég hefði bara setið
og þagað,“ segir hún.
María gekk í skóla í Mosfellsbæ
og þaðan í Verzlunarskóla Íslands.
Hún segist eiga stóran vinahóp
sem sé blanda af Mosfellingum og
verslingum. „Það er ekkert ósvipað
því og að búa úti á landi, að búa í
Mosó,“ segir María. „Það var líka
ein ástæða þess að við fluttum þang-
að. Það er þétt samfélag og gott. Ég
fór í Versló því ég hafði fylgst með
systur minni fara þangað,“ segir
hún. „Mig langaði mjög mikið að
taka þátt í nemendasýningunum
þar, sem er gríðarleg reynsla. Ég
eignaðist marga vini í nemendasýn-
ingunum.“
Fæ að segja mína skoðun
María verður með þéttan hóp at-
vinnumanna með sér í Vín í maí og
munu reynsluboltarnir Hera Björk
og Selma Björns fylgja hópnum og
aðstoða Maríu í þeim frumskógi
sem Eurovision getur verið. „Hera
er búin að hjálpa mér mikið á þeim
stutta tíma sem við höfum hist,“ seg-
ir María. „Það verður mjög þægilegt
að vita af henni með í ferðinni.“
María var í námi við Kennarahá-
skólann fyrir undankeppnina en
eftir sigurinn sá hún ekki fram á að
geta klárað veturinn og tók sér því
frí. Hún segir að undirbúningurinn
fyrir Eurovision sé einfaldlega of
tímafrekur til að hægt sé að vera
í fullu námi með. „Ég var að læra
að kenna tónlist, leiklist, söng og
dans,“ segir María. „Ég átti að fara
í vettvangsnám í vetur sem hefði
þýtt mikinn tíma og skuldbindingu
sem ég hefði ekki getað sinnt eins
vel og ég vildi, sökum undirbúnings
fyrir keppnina. Mig langar samt að
halda áfram og aldrei að vita nema
ég byrji aftur næsta haust.“
Eurovisionhópurinn hittist í
hverri viku og segir María að hún
sé með einhver plön daglega. „Það
er eiginlega orðið þannig, já,“ segir
hún. „Strákarnir í StopWaitGo eru
að semja meira efni fyrir mig og við
erum að vinna í því. Það er von á
tveimur lögum sem munu koma út á
næstu vikum. Þetta efni er í ætt við
Unbroken en ég er mjög opin fyrir
allri tegund tónlistar,“ segir María.
„Ég veit samt ekki alveg í hvaða átt
ég fer á endanum. Ég hef verið að
koma fram svona tvisvar í viku að
undanförnu og það er mjög skemmti-
legt. Það er þægilegt að hafa strák-
ana á bak við sig í þessu öllu saman,“
segir hún. „Ég hef þekkt þá í nokkur
ár og þeir vita hvað ég vil og slíkt. Ég
Hvað ef ég
verð fyrst
til þess að
komast ekki
í úrslitin í
nokkur ár?
Mér verður
vonandi
fyrirgefið ef
það tekst
ekki, að
minnsta
kosti á end-
anum
fæ að hafa mínar skoðanir og leggja
mitt til málanna.“
Sauðburður í uppnámi vegna
Eurovision
María fylgist mikið með keppninni
og heldur með Svíum í ár. „Þeir eru
beint á eftir okkur og ég held að
lag þeirra sigri í keppninni,“ segir
hún. „Ég hef samt ekki oft rétt fyrir
mér. Eina lagið sem hefur unnið,
sem ég hef spáð sigri, er Euphoria.
Það spáðu líka allir því að það ynni,“
segir hún.
Fjölskylda Maríu er gríðarlega
spennt fyrir þátttöku hennar í
keppninni og margir eru nú þeg-
ar búnir að kaupa sér farmiða til
Vínar. „Þau koma öll daginn fyrir
undanúrslitakvöldið,“ segir María.
„Þau eru öll mjög spennt, en pabbi
er smá stressaður af því að það er
sauðburður á sama tíma. Afi ætl-
ar þó að sjá um það svo pabbi geti
komið út,“ segir hún brosandi. „Öll
mín nánasta fjölskylda er að koma
og örugglega um 50 manns sem eru
að fylgja mér og strákunum.“
María er yngst af fjórum systk-
inum og segir sig vera ósköp eðli-
lega stelpu úr Mosó. „Ég mundi
segja það,“ segir hún og hlær og
er greinilega ekki vön spurningum
um sjálfa sig. „Ég er ósköp venjuleg.
Margir sem þekkja mig fyrir, trúa
því ekki að sjá mig í einhverjum við-
tölum og slíku því ég var alltaf þessi
feimna sem sagði ekki neitt,“ segir
hún. „Ég er þó alltaf að verða betri í
þessu og venjast þessu meira. Fyrst
þegar ég byrjaði að tala við fjölmiðla
þá nánast stamaði ég, en ég er að
komast í æfingu með þetta.“
Hvar sérðu þig eftir tíu ár?
„Úff, ég veit það ekki,“ segir hún.
„Vonandi að starfa við tónlist eða
leiklist eða hvort tveggja. Það er erf-
itt að svara þessu. Ég ætla að halda
áfram að byggja upp minn feril en
svo missir maður kannski áhugann
og fer að gera eitthvað allt annað,
hver veit?“
Hvert er uppáhalds Eurovision-
lagið þitt?
„Euphoria og All Out Of Luck
með Selmu,“ segir María, án þess
að hika. „Ég var líka mikill aðdá-
andi Birgittu Haukdal þegar hún fór
út – og er enn. Þegar ég var krakki
að syngja tónlist heima þá var Írafár
það eina sem komst að.“
María segir smá pressu á sér að
keppa í Eurovision, en finnst hún
samt á jákvæðum nótum. „Það er
alltaf smá pressa að komast í úr-
slitakvöldið,“ segir hún. „Hvað ef
ég verð fyrst til þess að komast ekki
í úrslitin í nokkur ár? Mér verður
vonandi fyrirgefið ef það tekst ekki,
að minnsta kosti á endanum,“ segir
María og brosir. Líklega hefur hún
rétt fyrir sér. Það er varla hægt að
vera fúll út í Maríu Ólafsdóttur.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Nördarnir mundu
líklega ekki kalla mig
nörd, en ég hef mjög
mikinn áhuga á þess-
ari keppni og hef alltaf
haft,“ segir María. „Ég
get ekki misst af neinu
í þessari keppni.“ Ljós-
myndir/Hari
28 viðtal Helgin 24.-26. apríl 2015