Fréttatíminn - 24.04.2015, Page 38
38 heilsa Helgin 24.-26. apríl 2015
Heilsa sjúkraþjálfarar vilja fyrirbyggja meiðsli frekar en vinna með afleiðingarnar
3x15
Kolvetnaskert,
próteinríkt og fitulaust
Hentar
fyrir LKL
mataræði
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Hámarks hreyfanleiki
– lágmarks meiðsli
Þrír sjúkraþjálf-
arar kynna
nýja veikleika-
greiningu sem
leggur áherslu
á að fyrir-
byggja meiðsli.
Með greining-
unni er hægt
að greina villur
í líkamsstöðu
og hreyfingum.
s júkraþjálfararnir Arnar Már Kristjáns-son, Hjalti Rúnar Oddsson og Sigurð-ur Sölvi Svavarsson eru að fara af stað
með nýtt verkefni sem felst í veikleikagrein-
ingu sem leggur áherslu á að fyrirbyggja
meiðsli.
Vinna frá hinum endanum
„Áhugi okkar snýr að því að fyrirbyggja
meiðsli frekar en að þurfa að vinna með af-
leiðingarnar,“ segja þeir. „Við höfum unnið
með einstaklingum og íþróttafólki sem hafa
verið að koma af illri nauðsyn vegna meiðsla
eða annara þátta sem hamla framförum
þeirra. Með hreyfigreiningu er ætlunin að
vinna frá hinum endanum, að greina villur
í hreyfistjórn, minnkaðan hreyfanleika og
styrk og skekkjur í líkamsstöðu.“
Vilja koma í veg fyrir meiðsli
Greining af þeirri tegund sem Arnar, Hjalti
og Sigurður ætla að bjóða upp á hefur fyr-
irbyggjandi gildi. „Við viljum frekar fyrir-
byggja meiðsli heldur en að vinna með
meiðslin eftir á. Með veikleikagreiningu
er hægt að greina villur í líkamsstöðu og
hreyfingum, og með þær upplýsingar getur
viðkomandi komið í veg fyrir álagsmeiðsli
sem og mögulegum áverka í æfingum og
keppni,“ segir Arnar.
Betri líkamsbeiting – betri árangur
Greiningin fer þannig fram að þátttakendur
svara stuttum spurningalista um líkams-
rækt eða íþróttaiðkun, eðli þeirra og ákefð.
Einnig er farið yfir meiðslasögu, mat og álit
á eigin líkamsástandi. Loks fer fram skoð-
un á líkamsstöðu og hreyfigreining
þar sem skimað er fyrir veikleik-
um. „Að lokinni greiningu fær hver
einstaklingur sérhæft æfingapró-
gramm sem hjálpar viðkomandi að
hámarka skilvirkni í hreyfingum og
líkamsstöðu sinni og þar af leiðandi
lágmarka líkur á álagseinkennum
og meiðslum,“ segir Sigurður.
Greining löguð að hverri
íþróttagrein fyrir sig
Boðið verður upp á greiningu sem
hentar hverjum hópi íþróttaiðkenda
fyrir sig. „Í hreyfigreiningunni
er farið yfir hreyfingar tengdar
hverri íþrótt. Við erum til dæmis
að setja saman skoðun fyrir Cross-
Fit Reykjavík og sú skoðun er að-
eins öðruvísi en almenna skoðunin
þar sem það eru aðrar áherslur í
crossfit. Einnig erum við að vinna
að skoðun fyrir knattspyrnulið en
þar eru hreyfingar sem tengjast
fótbolta sérstaklega,“ segir Hjalti.
„Betri tækni í íþróttum getur skipt
sköpum ef þú ert að keppa. Eins er
alveg jafn mikilvægt að hreyfingar
einstaklingsins séu eins og best er á
kosið. Betri stjórn á hreyfingum lík-
amans kemur fram í betri árangri,“
segir Hjalti. Greiningin er hins veg-
ar ekki eingöngu fyrir keppnisfólk
í íþróttum, heldur hentar hún þeim
sem hreyfa sig að staðaldri.
Líkaminn þarf reglulega
skoðun
En af hverju ætti hinn almenni
íþróttaiðkandi að fara í veikleika-
greiningu á stoðkerfi? „Almennt er
samfélagið sammála um að gott sé
að fara í skoðun til tannlæknis ár-
lega, sem og að láta skoða bílinn.
Af hverju ætti ekki slíkt hið sama
að gilda um stoðkerfið? Verkurinn
í öxlinni hverfur ekkert frekar en
„check engine“ ljósið í mælaborðinu
ef þú hunsar það,“ segir Sigurður.
Verkefnið er á byrjunarstigi en
almenn skimun verður fljótlega í
boði hjá Spörtu heilsurækt í Kópa-
voginum og skimun fyrir Crossfit
iðkendur verður í boði hjá CrossFit
Reykjavík. Allar nánari upplýsing-
ar um þetta má nálgast á Facebo-
ok síðunni Maximum Mobility og
fyrirspurnir má senda á netfangið
maximummobility.is@gmail.com.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Sjúkraþjálfararnir Arnar Már Kristjáns-
son, Sigurður Sölvi Svavarsson og
Hjalti Rúnar Oddsson hafa unnið mikið
með íþróttameiðsli í gegnum tíðina.
Nú kynna þeir nýtt verkefni sem felst í
veikleikagreiningu sem leggur áherslu á
að fyrirbyggja meiðsli. Mynd/Hari
TRÓPÍ
fæst
núna
líka í
1. lítra
fernum
Náttúru-
lega
góði
safinn
©
20
15
T
he
C
o
ca
C
o
la
C
o
m
p
an
y
-
al
l r
ig
ht
s
re
se
rv
ed