Fréttatíminn - 24.04.2015, Page 42
42 matur & vín Helgin 24.-26. apríl 2015
16. Cartagena
Kólumbía
Sannkallaður fjársjóður í Suður-Ameríku
með ferskan götumat. Ávextir, ceviche
og rækjukokteilar eru áberandi.
15. Rio de Janeiro
Brasilía
Það þykir dýrt að borða í Brasilíu en
götumaturinn er vel viðráðanlegur.
Vinsælast er pão de queijo, steiktar
ostabollur sem þykja lostæti. Þá er ekki
ónýtt að fá sér kebab og skola honum
niður með acai-þeytingi.
14. Istanbul
Tyrkland
Þarna færðu sennilegast besta kebab í
heimi en mesta upplifunin er að prófa
balik ekmek-samlokuna. Í þeim eru
grænmeti, laukur og sítrónusafi sett yfir
grillað makríl-flak.
13. Reykjavík
Ísland
Í umfjöllun Thrillist segir að Ísland
sé ekki þekkt fyrir að vera mekka
götumatar en eitt leynivopn hafi skilað
landinu sæti á listann; Bæjarins bestu
pylsur. Segir að nafnið útleggist sem
bestu pylsur í heiminum. Frægt sé að
allir Íslendingar hafi smakkað pylsurnar
góðu en líka þekktir útlendingar á borð
við Bill Clinton og Anthony Bourdain.
12. Portland,
Oregon
Bandaríkin
Á milli 400-700 matarvagnar eru í
borginni á hverjum degi og þykja borgar-
búar hafa fært götumatar-menninguna
upp á næsta stig í Bandaríkjunum. Segir
í umfjöllun Thrillist að þessir vagnar
séu eins og útungunarstöð fyrir nýja
veitingastaði, svo spennandi séu þeir.
Magnaður matur frá öllum heims-
hornum.
11. Kingston
Jamaíka
Grillaður kjúklingur er áberandi en
uxahalasúpa er líka algeng og eftir
stífa rommdrykkju er nauðsynlegt að
gæða sér á sætu brauði sem kallast
festival.
10. London
England
Mikil vakning hefur verið í götumat
þarna undanfarin ár og á sumrin er
frábært úrval víða um borgina. Hvort
sem það er taco, hamborgari eða asískur
matur, þú finnur eitthvað við þitt hæfi.
9. Tókýó
Japan
Japanir eru að vísu ekki hrifnir af því
að borða á ferðinni en selja í staðinn
bjór í sjálfsölum. Þar um slóðir færðu
hinar frábæru okoniyaki-pönnukökur
sem þykja þær bestu í heimi.
8. Berlín
Þýskalandi
Við eigum Berlín-
arbúum vinsældir
kebabsins að þakka.
Þarna færðu vitaskuld
frábæran döner en
það fer enginn til
Þýskalands án þess
að fá sér currywurst
og bjór.
7. Shanghai
Kína
Magnaðir dumplingar standa hér upp
úr en vert er að gefa gaum að hinum
vinsælu laukpönnukökum, cong you
bing.
6. Mumbaí
Indland
Það er erfitt að afþakka góða samósu,
ekki síst þegar endalaust úrval er af
þeim. Á Indlandi er líka frábært kebab,
tandoori-kjúklingur og svo mætti áfram
telja.
5. Marrakesh
Marokkó
Hér eru allir vinalegir og bjóða þér
sniglasúpur, kjöt á teini, kartöflukökur og
auðvitað tagine.
4. Saígon
Víetnam
Ljúffengar súpur, grillað kjöt og auðvitað
þekktir réttir á borð við bánh mi, pho og
com suon grillaðar svínakótilettur.
3. Mexíkóborg
Mexíkó
Sumum finnst mexíkóskur matur
of einhæfur enda byggir hann voða
mikið á sömu hráefnunum. En þegar þú
heimsækir sjálft móðurskipið skiptir það
engu máli. Þarna færðu bestu taco og
churro í heimi.
2. Bangkok
Taíland
Það þarf varla að taka fram að þarna
færðu besta pad thai í heimi en á götum
Bangkok finnurðu fleira en steiktar
núðlur. Til að mynda karrírétti, steikta
önd og rækjur í öllum mögulegum út-
gáfum. Úrvalið er endalaust.
1. Singapúr
Singapúr
Stjórnvöld passa upp á að götusalar fylgi
heilbrigðisreglum svo þetta er sennilega
öruggasti staðurinn í heiminum til að
graðga í sig götumat. Þar fyrir utan þykir
úrvalið einstakt; dumplingar og fiski- og
kjötréttir af bestu gerð.
Reykjavík meðal bestu
götumatar-borga
Þegar ferðast er um heiminn er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að besta matinn er ekki
endilega að finna á flottustu og dýrustu veitingastöðunum. Götumatur veitir besta innsýn í líf
og menningu innfæddra og á básum viðkomandi borgar er hægt að gera hverja uppgötvunina á
fætur annarri fyrir brot af því sem þú myndir borga fyrir máltíð þar sem þér er þjónað til borðs.
Mikil vakning hefur verið í götumat í borgum Evrópu að undanförnu enda eru þar samankomin
allra þjóða kvikindi. Vefsíðan Thrillist hefur tekið saman 16 bestu borgir heims eftir götumat og
flestar þeirra eru í Asíu. Reykjavík kemst á listann – fyrir töfra Bæjarins bestu.
Baileys-terta
sími: 588 8998
rósaterta með
Frönsku Banana-smjörkremi
kökur og kruðerí
að hætti jóa Fel
Gulrótarterta
Broskallar