Fréttatíminn - 24.04.2015, Blaðsíða 58
Það var
ekkert
erfitt að
hlaupa
svona
mikið, ég
er að æfa
fótbolta
og þetta
var ekki
svo erfitt.
Páll Jökull Þorsteinsson leikur aðalhlutverkið í stórri erlendri auglýsingu sem tekin var upp hér á landi í mars. Hann segir
vinnuna ekki hafa verið mjög erfiða. Ljósmynd/Hari
Sjónvarp páll jökull lék í auglýSingu fyrir arla-Skyr
Leið eins og prinsi við
að leika í skyr-auglýsingu
Hinn níu ára gamli Páll Jökull Þorsteinsson fer með aðalhlutverkið í nýrri auglýsingu fyrir Arla-
skyr í Bretlandi sem tekin var hér á landi. Páll Jökull leikur á móti þekktum íslenskum leikurum
og hefur hug á að verða leikari í framtíðinni. Páll segist stundum borða skyr, það sé ágætt.
a uglýsing með nokkrum þjóðþekkt-um leikurum hefur farið eins og eldur um sinu á netheimum undan-
farna daga. Um er að ræða auglýsingu fyrir
Arla skyr sem er dönsk mjólkurvara sem á
að líkjast hinu klassíska íslenska skyri. Með
aðalhlutverkið í auglýsingunni fer hinn níu
ára gamli Páll Jökull Þorsteinsson.
Í auglýsingunni, sem gerist í smáþorpi
árið 1968, hleypur Páll um götur þorpsins
og sveitina í kring af miklum móð og færir
fólki tíðindi úr sveitasímanum.
Auglýsingin var tekin upp hér á landi í
mars síðastliðnum og var Páll Jökull í tökum
í sex daga, sem er í lengra lagi, sérstaklega
þegar kemur að auglýsingatökum. „Tökurn-
ar voru á Eyrarbakka, í Dyrhólaey og við
Skógafoss,“ segir Guðbjörg Anna Jónsdóttir,
móðir Páls Jökuls. „Þetta var hörkupúl hjá
drengnum en það var farið svo vel með hann
að honum leið eins og prinsi. Hann hafði svo
gaman af þessu að það tók hann smá tíma að
koma sér niður á jörðina,“ segir Guðbjörg.
„Við erum öll rígmontin með hann og að
springa úr stolti,“ segir hún.
Í auglýsingunni, sem er um 90 sekúndur
að lengd, má sjá leikara á borð við Hjálmar
Hjálmarsson, Halldór Gylfason, Sigurð Sig-
urjónsson og Sveppa, svo Páll Jökull var í
mjög góðum félagsskap. Sjálfum finnst hon-
um auglýsingin mjög fyndin. „Hún er mjög
skemmtileg og þeim krökkum í skólanum
sem hafa séð hana, finnst hún mjög fyndin,“
segir Páll Jökull sem gengur í Breiðagerð-
isskóla og verður tíu ára á árinu. „Það var
ekkert erfitt að hlaupa svona mikið, ég er
að æfa fótbolta og þetta var ekki svo erfitt.
Mér finnst skemmtilegast að vera í fótbolta
og hjóla og vera úti að leika mér,“ segir Páll
þegar hann er spurður út í áhugamálin.
„Annars langar mig að verða leikari og mér
þykir mjög gaman að leika,“ segir Páll sem
segir skyr ekki endilega uppáhaldsmatinn
sinn. „Ég borða það stundum, það er ágætt,“
segir Páll Jökull Þorsteinsson, upprennandi
leikari.
Auglýsingin er komin í sýningu um allt
Bretland þar sem á að reyna að markaðssetja
danska skyrið.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ein
ákvörðun
getur öllu
breytt
www.allraheill.is
Strákarnir í ADHD halda til Bremen um helgina og funda með öðrum djössurum og troða upp í kjölfarið.
TónliST ráðSTefnan jazzahead er STærSTa ráðSTefna um djaSSTónliST í evrópu
Íslenskur djass í Bremen um helgina
Jazzahead er stærsta ráðstefna um djass-
tónlist í Evrópu og koma viðskiptaaðilar
úr djassgeiranum hvaðanæva að úr heim-
inum til að heyra og sjá nýja djasstónlist
og ráða ráðum sínum. Þátttakendur eru
allt frá helstu djasstímaritum álfunnar til
samtaka djasshátíða, útgáfufyrirtækja
og bókunarskrifstofa hvers konar, ýmis
konar aðila sem starfa í geiranum og að
sjálfsögðu tónlistarfólks, bæði tónskálda
og flytjenda hvers konar.
Hátíðin er haldin í Bremen í Þýska-
landi um helgina. Þátttakendur frá Ís-
landi að þessu sinni verða Jazzhátíð
Reykjavíkur, Sunna Gunnlaugsdóttir,
Björn Thoroddsen, Stefán S. Stefánsson,
Kristján Tryggvi Martinsson og hljóm-
sveitin ADHD, en sveitin heldur tónleika
á hátíðinni á morgun, laugardag. ADHD
sendi sem kunnugt er frá sér fimmtu
plötu sína fyrir síðustu jól en allar hafa
þær fengið frábærar viðtökur.
Í fyrsta sinn í ár verða allar Norður-
landaþjóðirnar saman með bása í sama
klasa og mynda þar af leiðandi norrænt
djassþorp sem fær mikla athygli og um-
ferð djassáhugamanna og fyrirtækja og
er mikill styrkur í því, sérstaklega fyrir
minni spámenn, sem fá þar aðgang að
stærri áheyrendahópi. -hf
Rapparinn Gísli Pálmi heldur tónleika á Húrra
í Reykjavík í kvöld, föstudagskvöld. Gísli Pálmi
er mikið í umræðunni þessa dagana og svo
er að sjá sem hann verði umtalaðasti tón-
listarmaður ársins. Fyrsta plata hans kom út
í síðustu viku og seldust um fjögur hundruð
eintök af henni fyrstu vikuna, samkvæmt
Tónlistanum. Fyrr í vikunni kom yfirlýsing frá
Jóni Mýrdal, veitingamanni á Húrra, um að
eftirvæntingin og áhuginn fyrir tónleikunum
væri svo mikill meðal fólks að hann benti fólki
á að kaupa miða í forsölu. Sólmundur Hólm
grínari var þó ekki viss um hvernig saklausum föður úr Vesturbænum yrði tekið á tón-
leikum sem þessum, en var þó spenntur fyrir því að fara.
Sólstafir í Ameríku
Þungarokkssveitin Sólstafir lagðist nýverið
í enn eina utanlandsferðina til að spila
fyrir rokkþyrstan almúgann. Í þetta sinn
leggja þeir undir sig Bandaríkin og Kanada
og ferðast um í fjórar vikur. Túrinn hófst á
miðvikudaginn í New York og endar þann
20. maí í Vancouver í Kanada. Sólstafir
spila á 27 tónleikum í ferðalaginu, frá
austri til vesturs og allt þar á milli.
Hönnunarnemar sýna í
Hafnarhúsi
Útskriftarsýning nemenda í hönnun og
arkitektúr í Listaháskóla Íslands verður
opnuð í Hafnarhusinu á laugardag klukkan
14. Sýningarstjórar eru þau Guðfinna
Mjöll Magnúsdóttir og Huginn Þór Arason.
Sýningin stendur til 10. maí og er opin
daglega frá klukkan 10-17. Aðgangur er
ókeypis.
Styttist í Drekann
Gamanþáttaröðin Drekasvæðið hefur
göngu sína á
RÚV hinn 1.
maí næst-
komandi.
Talsverð
eftirvænting
er vegna frum-
sýningar þess-
ara sketsaþátta
enda koma þar
fyrir margir af
fremstu grínurum
og leikurum lands-
ins af yngri kyn-
slóðinni. Af þeim má
nefna Sögu Garðars-
dóttur, Hilmar Guðjóns-
son, Ara Eldjárn, Nönnu
Kristínu Magnúsdóttur og
Birgittu Birgisdóttur. For-
sýning verður í Bíó Paradís
á fimmtudag í næstu viku
og eftir það ætti að fara að
kvisast út hvort eitthvað sé
varið í þetta...
Mikil spenna fyrir Gísla Pálma
58 dægurmál Helgin 24.-26. apríl 2015