Fréttatíminn - 24.04.2015, Side 64
viðhald húsa Helgin 24.-26. apríl 20154
NT 35/1 Tact
Ryksugar blautt og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m,
málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór
sogstútur.
NT 45/1 Tact Te
Ryksugar blautt
og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m,
málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór
sogstútur,
rafmagnstengill.
NT 55/1 Tact
Ryksugar blautt og þurrt
Fylgihlutir
2,5m 35mm barki, málmrör,
30mm gólfhaus og mjór
sogstútur.
NT 25/1 Ap
Ryksugar blautt
og þurrt
Fylgihlutir
Barki 35mm 2,5m,
málmrör, 30mm
gólfhaus og mjór
sogstútur. Takki
fyrir hreinsun
á síu.
Iðnaðarryksugur
Fyrir bæði blautt
og þurrt
Sjálfvirk
hreinsun á síu
Tengill
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
Sjálfvirkur hurðaropnunarbúnaður
fyrir húsfélög og fyrirtæki, ásamt uppsetningu og
viðhaldi. Hentar vel fyrir aðgengi hreyfihamlaðra.
Fluttu inn í húsið án eldhúss
Astrid og Birgir kynntust í Belgíu,
en Astrid er þaðan og er menntaður
sagnfræðingur. Birgir er arkitekt
og starfaði sem slíkur í Belgíu í rúm
tuttugu ár. Þegar þau fluttu til Íslands
bjuggu þau í leiguhúsnæði áður en
þau keyptu húsið á Vesturgötunni.
„Við höfðum einungis tvo mánuði til
að gera húsið íbúðarhæft, þar sem
leigusamningnum okkar var sagt
upp. Við náðum því að mestu leyti, en
eldhúsið var reyndar ekki tilbúið þeg-
ar við fluttum inn svo það skapaðist
ákveðið ástand,“ segir Birgir og hlær.
Engin ástæða til að breyta
hinu upprunalega
„Þegar við keyptum húsið vildum við
komast að ástandi upprunalega gólf-
efnisins og þurftum því að rífa nokk-
ur lög af hinum ýmsu efnum,“ segir
Astrid. Við þá vinnu bættust fimm
sentimetrar við lofthæðina. „Það
hentaði ágætlega þar sem fólk var jú
mun lágvaxnara hér áður fyrr,“ segir
Birgir. Meðal framkvæmda sem Birg-
ir og Astrid réðust í var að skipta um
þak. „Við skiptum bárujárnsþakinu út
fyrir timburþak. Undir bárujárninu
var upprunalega timburþakið sem
kallast skarsúð. Við vildum halda í
upprunalegu hönnunina og fluttum
inn timbur og tjöru frá Noregi. Hægs-
prottin málmfura varð fyrir valinu,
en hún er mjög sterk,“ segir Birgir.
„Það er engin ástæða til að breyta
hinu upprunalega. Við ákváðum að
fjarlægja bárujárnsþakið því okkur
fannst það einfaldlega ekki fara hús-
inu, enda ekki hannað þannig.“
Snýst um að lesa í húsin
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
hjónin ákveða að gera upp gam-
alt hús. „Ég gerði upp mörg hús í
Belgíu og teiknaði margar breyt-
ingar fyrir mun eldri hús en þetta,
til dæmis kastala sem byggðir voru
á 12. öld,“ segir Birgir. Auk þess
er húsið sem fjölskyldan á í Brus-
sel frá 17. öld og gerðu þau ýms-
ar breytingar á því. „Þar þurftum
við, líkt og hér, að grafa okkur í
gegnum alls konar lög af gólfefni
til að sjá upprunalegt ástand húss-
ins,“ segir Astrid. Birgir segir að
það geti verið vandasamt verk að
ákveða hverju eigi að halda og
hverju ekki. „Gamlir hlutir geta
bæði verið áhugaverðir og óáhuga-
verðir. Þetta snýst hins vegar um
að finna hvað er skemmtilegt í sög-
unni. Þetta snýst um að lesa í húsin
og sjá hverju maður getur breytt
án þess að skemma.“
Vilja nýta það sem sagan
býður upp á
Klæðningin sem er á húsinu er í
stíl við upprunalegu klæðninguna
en Birgir og Astrid vilja reyna að
endurvekja hana. „Hún er þarna
undir niðri en það mun kosta tíma
og peninga að ná henni fram.“ Í
sumar hyggjast þau mála húsið að
utan, auk þess sem þau hafa fengið
styrk frá Minjastofnun Íslands til
að lagfæra hleðsluna á húsinu og
koma henni í upprunalegt form.
Hann bendir þó á að fjölskyldan sé
fyrst og fremst að búa sér til nútíma-
legt heimili, en ekki safn. „En við
viljum að sjálfsögðu nýta það gamla
og skemmtilega í sögunni eins og
hægt er.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Sonur fyrsta
eigandans
teiknaði fyrir
Disney
Stefán Þórðarson seldi húsið
á Vesturgötunni skömmu
eftir að hann keypti það og
fluttist til Vesturheims ásamt
eiginkonu sinni, Sigríði Þórar-
insdóttur. Stefán gerðist síðar
bæjarstjóri í Manitoba. Stefán
og Sigríður eignuðust fjögur
börn og einn sona þeirra,
Charles Thorson, starfaði
sem teiknari fyrir Disney.
Hann tók þátt í að þróa hinar
ýmsu persónur sem allir
þekkja í dag, þar á meðal
Kalla kanínu. Charles gekk
undir nafninu Cartoon Charlie
og tók meðal annars þátt í að
teikna Mjallhvíti og dvergana
sjö. Sex dverganna voru
hannaðir alfarið af honum og
til eru heimildir þess efnis að
hann hafi einnig tekið þátt í
að semja söguþráðinn.
Vesturgata árið 1890. Húsið sem Birgir og Astrid búa í er byggt árið 1882 og er til
hægri á myndinni. Mynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Astrid og Birgir kunna vel við sig á Vesturgötunni. „Miðbærinn er heillandi og við elskum
andrúmsloftið og arkitektúrinn,“ segir Astrid. Mynd/Hari
Veggurinn í viðbyggingunni, sem var líklega byggð um 1920, er hluti af upprunalegu
klæðningunni utan á húsinu. Mynd/Hari