Fréttatíminn - 24.04.2015, Side 69
Helgin 24.-26. apríl 2015
3 húsráð út í vorið
Samkvæmt almanakinu er komið sumar og því er ekki seinna
vænna að bretta upp ermar og hefja vorverkin. Hluti af þeim er að
sinna ýmsum útiverkum og dytta að húsinu. Hér má finna þrjú góð
ráð um árlegt viðhald húsa.
Útidyr
Kannið ástand útidyra og
svaladyra. Ráðlegt er að
smyrja læsingar einu sinni á
ári með þunnri olíu. Einnig
er gott að setja örlítið af
olíu í skráargatið til að auka
liðleika þeirra hluta sem
hreyfast.
Gluggar
Á vorin er gott að gera ástandsskoðun á
timbri og málningu á gluggum. Til að meta
hvort tími sé kominn til að mála er best
að bregða málningarsköfu (eða svipuðu
áhaldi) á málninguna næst glerinu. Ef
málningin lætur ekki undan þá er ástand
gluggans í góðu lagi. Ef hún bólgnar upp
er hins vegar komin þörf á viðhald.
Rennur
Hreinsun á þakrennum og niðurföllum er nauð-
synleg aðgerð einu sinni á ári til að komast hjá
kostnaðarsömu viðhaldi. Yfirfull renna veldur
vatnsleka og skemmir tréverk í þakköntum húsa.
Ef skipta á um þakrennur er gott að hafa í huga
að plastrennur þarfnast minna viðhalds en blikk-
rennur. Einnig er hægt að notast við plasthúðaðar
blikkrennur til að koma í veg fyrir að ryð myndist.
Guðjón Þór, borehf@borehf.is
Fyrirtækið Bor ehf starfar við
steypusögun og kjarnaborun og hefur
verið starfrækt síðan 1998 á sömu
kennitölunni og er þar af leiðandi komið
með viðamikla reynslu á þessu sviði.
Óskar þú frekari upplýsinga eða tilboðs
er ég ávallt til þjónustu reiðubúinn
Sími: 895 9490
Meðal góðra viðskiptavina okkar eru t.d.
Eykt, HB Grandi, Fasteignir ríkissjóðs, Vílfell,
Rafholt, Rafmiðlun, HS lagnir, Lóðaþjónustan,
Jó lagnir, ÁS smíði, Hafnaarðarbær og .