Neytendablaðið - 01.03.2011, Blaðsíða 16
Nýlega var stofnuð hreyf ing hér á landi sem kall ast Samtök
lífrænna neytenda en tilgangur henn ar er að stuðla að auk inni
fram leiðslu og neyslu vott aðra líf rænna vara á Íslandi með
vel ferð al menn ings, bú fjár og um hverf isins að leiðar ljósi. Oddný
Anna Björns dóttir er hvata mað ur inn að stofn un sam tak anna en
hún flutti nýlega til landsins eftir sjö ára dvöl í Bandaríkjunum.
Neytendablaðið hitti Oddnýju að máli og spurði hana fyrst hvernig
hún hefði fengið áhuga á lífrænum mat. „Þegar ég eignaðast mitt
fyrsta barn fyrir fimm árum fór ég að hugleiða hvað því væri
fyrir bestu. Þá uppgötvaði ég hvað lífræn ræktun hefur fram
yfir hefðbundna og mikilvægi þess að sneiða hjá mikið unnum
matvörum. Ég bjó í suðurhluta Kaliforníu og aðgengið að lífrænum
mat var mjög gott. Úrvalið jókst hins vegar til mikilla muna í
Bandaríkjunum á þessum
árum enda var vöxturinn í
sölu lífrænna vara um 20% á
ári og mun meiri á því svæði
sem ég bjó á. Ég hafði ekki
úr miklu að velja þegar ég
keypti barnamat í fyrsta sinn
en fimm árum síðar buðu
flestar stærstu keðj urn ar upp
á líf ræn an barna mat ásamt
fjölda ann arra vöru tegunda.
Áhugi minn jókst eftir því
sem ég lærði meira og fyrir
rúmu ári síðan tók ég þá
ákvörð un að snúa mér alfarið að baráttu fyrir auk inni framleiðslu
og neyslu lífrænna vara.“
Áhugi á lífrænu stöðugt að aukast
Oddný segir að í heimsóknum sínum til Íslands undanfarin sumur
hafi komið sér á óvart hve skammt á veg vitundarvakningin væri
komin í samanburði við þau lönd sem við viljum bera okkur saman
við. Hér hafi þróunin að mörgu leyti verið í öfuga átt, sérstaklega
þegar litið væri til verksmiðjubúskapar. Hún segir þó greinilegt
að mun fleiri hafi áhuga á málefninu í dag og vilji fræðast meira.
„Haustið 2010 ákváðum við að kanna áhugann með því að stofna
hóp á Facebook sem við kölluðum „Samtök lífrænna neytenda“.
Áhuginn var það mikill að við ákváðum að stofna samtökin
formlega.
Betra að borga bónda en lækni
Mörgum þykir nóg um verðið á hefðbundnum vörum og vilja
ekki borga hærra verð fyrir lífrænan mat. Er það ekki skiljanlegt
sjónarmið? „Jú, auðvitað er það skiljanlegt en hins vegar verður
maður að átta sig á því að verð og gæði haldast yfirleitt í hendur.
Við erum það sem við borðum og ef við borðum mat úr lélegum
hráefnum, sem er stútfullur af allskyns uppfyllingar og aukefnum
sem breyta áferð, lykt, bragði og útliti, þ.e. gera vöruna að einhverju
sem hún er ekki, þá erum við svo sannarlega ekki að spara þegar
til lengri tíma er litið. Í Bandaríkjunum er mikið fjallað um þær
afleiðingar sem neysla ódýrs og lélegs fæðis hefur á heilsuna.
„Það er betra að borga bóndanum en lækninum“ er einnig oft sagt
en þar í landi eyðir fólk að meðaltali um 17% af tekjum sínum í
Aukinn áhugi á lífrænum lífsstíl
Oddný ásamt strákunum sínum.
Whole Foods Market leggur mikla áherslu á að fræða viðskiptavinina um ávinn ing inn af því að kaupa svæðisbundnar, lífrænar vörur.
Samtök lífrænna neytenda stofnuð
16 NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2011