Ægir - 01.02.2001, Blaðsíða 15
15
V E S T F I R Ð I R
arvík er unninn annars staðar. Þar
var á síðasta ári landað alls 9.000
lestum af bolfiski, en ekki var
nema þriðjungur aflans unninn í
heimaranni. Páll Pétursson, fé-
lagsmálaráðherra, mætti til skrafs
og ráðagerða við Bolvíkinga
fyrstu dagana í febrúar og eftir þá
heimsókn var haft eftir ráðherra í
fjölmiðlum að hægt væri að reka
öfluga saltfiskverkun ef þeim afla
sem ekið er í burtu frá Bolungar-
vík yrði stýrt í vinnslu á staðnum.
Óveðursský á himni
„Hér láta menn nokkuð vel af
sér,“ segir Halldór Halldórsson
bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ. Hann
segir rekstur fiskvinnslufyrirtækj-
anna á Suðureyri, Flateyri og
Þingeyri ganga nokkuð vel, - en á
síðastnefnda staðnum starfar
Fjölnir hf. Það fyrirtæki hóf starf-
semi seint á árinu 1999 og fékk í
heimanmund nokkurn byggða-
kvóta. Bæjarstjórinn leggur
áherslu á að þótt hagsmunir fisk-
Pétur Sigurðsson, forseti
Alþýðusambands Vestfjarða.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar.
Kristinn H. Gunnarsson,
alþingismaður.
„Afkoman hjá okkur
hefur verið prýðis-
góð á síðustu tveim-
ur árum,“ segir Hall-
dór Leifsson, útgerð-
arstjóri Odda á Pat-
reksfirði.