Ægir

Volume

Ægir - 01.02.2001, Page 28

Ægir - 01.02.2001, Page 28
Æ G I S V I Ð T A L I Ð 28 Gegn öllum lögmálum Að loknum mælingum fyrir vestan var haldið á loðnuslóð fyrir austan land. „Sveinn Sveinbjörnsson fór austur fyrir á Bjarna Sæmundssyni í janúar og þá fannst mun minna af loðnu en menn höfðu vonast til. Á því gátu verið tvær skýringar. Annað hvort að ein- faldlega væri ekki meira magn á svæðinu en mæling- arnar gáfu til kynna eða þá að loðnan væri komin suð- ur undir hitaskilin út af sunnanverðum Austfjörðum. Við fórum austur fyrir til þess að rannsaka þetta betur og fundum nokkuð stórar torfur, sem síðan gáfu all góða veiði. Einkum hefur togurunum geng- ið vel. Fljótt á litið sýnist mér vera nokkru minna af loðnu fyrir austan land en út af Vestfjörðum, en ástandið fyrir austan er þó mun skárra en mælingarn- ar í janúar gáfu til kynna. Þetta er samskonar loðna og fyrir vestan, stór og falleg með tiltölulega háu hlutfalli af fjögurra ára fiski. En það er sá undarlegi munur á að hrognafyllingin fyrir austan er miklu minni en í loðnunni fyrir vestan. Þetta er þveröfugt við það sem venjulegt er og því má segja að á þessu herrans ári snúi allir hófar öfugt á merinni.“ Hjálmar segir það engin ný tíðindi að loðnan bregði út af hinu venjulega mynstri og enn komi hún vísindamönnum á óvart. „Fyrir mig persónulega er þetta auðvitað hið besta mál, maður hefur þá eitthvað að gera á meðan,“ segir Hjálmar og hlær við. „Manni finnst það auðvitað helvíti skítt að hafa varið doktors- verkefni um þetta kvikindi úti í Bergen árið 1994 og standa svo gapandi yfir svona tiltölulega einföldum hlut, að því er maður telur, en er það greinilega alls ekki!“ Mikið af loðnu í sjónum Hjálmar Vilhjálmsson segist ekki sjá annað en að al- mennt verði þessi loðnuvertíð ljómandi góð. „Við eigum eftir að fara nákvæmlega ofan í gögn úr þess- um leiðangri, en ég get ekki betur séð en að menn ættu að vera nokkuð ánægðir með útkomuna.“ - Kemur loðnan þér alltaf jafn mikið á óvart? „Já, eiginlega má segja það. Það má kannski orða það svo að ég er mjög hamingjusamur þegar loðnan gerir það sem ég held að hún muni gera. Þorskurinn er vissulega mjög háður loðnunni, hún er jú aðal ætistegund hans. Það er því mikið í húfi og óneitan- lega er maður svolítið á nálum um að gera einhverja vitleysu í þessum loðnurannsóknum.“ Hjálmar segir ekki auðvelt að spá fyrir um loðnu- veiðarnar næstu árin út frá stofnmælingum í þessum leiðangri á Árna Friðrikssyni. „Ég get ekkert sagt til um veiðarnar á næstu tveim árum. En hitt er svo ann- að mál að ég var ekkert óhress með þær mælingar sem voru gerðar á loðnunni síðastliðið haust og er enn ánægðari með þær eftir það sem ég sá í þessum leið- angri. Þessar mælingar hafa sem sagt staðfest að það er mikið af loðnu í sjónum og hún er mjög vel á sig komin.“ -Hver er helsta skýringin á því? „Það virðist vera sterkt samband á milli vaxtar og viðgangs loðnunnar og ástands sjávar fyrir norðan land. Þegar sjórinn er hlýr fyrir norðan virðist loðnan hafa það gott, jafnvel þótt hún sæki æti sitt langt norður í höf. Síðastliðið sumar var sjór óvenju hlýr fyrir norðan land og loðnan hafði það því nokkuð huggulegt.“ Loðnan er góð fyrir svanga! Loðnan er sem kunnugt er alveg sérstaklega eftirsótt- ur fiskur austur í Japan. Þar þykir hún einstakur herramanns matur. En á Íslandi er annað uppi á ten- ingnum. Hér þykja þeir skrítnir sem leggja sér loðnu til munns. Hjálmar Vilhjálmsson segir að einhvern veginn hafi aldrei myndast hefð fyrir því hér á landi að borða þessa mikilvægu útflutningsvöru. „Sjálfur hef ég borðað loðnu og finnst hún ekki góð. Ef hún er steikt verður bragðið heldur beiskt. Fyrir svangan mann er allt í lagi að borða loðnuna, en þegar maður er orðinn sæmilega saddur og ætlar að halda áfram að borða sér til ánægju, þá vandast málið! Ég get verið sammála Jóni Grímssyni, vélstjóra, sem í eina tíð var á Árna Friðrikssyni. Einu sinni steikti kokkurinn á Árna loðnu handa okkur, en Jón lét sér fátt um finn- ast. Kokkurinn spurði hann hvort honum litist ekki á loðnuna? Þá urraði Jón á hann og sagði: „Ég kýs nú heldur að sjá hana annars staðar en á matborðinu! „Þessar mælingar hafa sem sagt staðfest að það er mikið af loðnu í sjónum og hún er mjög vel á sig komi,“ segir Hjálmar.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.