Ægir - 01.02.2001, Qupperneq 29
29
E R L E N T
Norska fyrirtækið Primex í
Haugesund, sem framleiðir kítín úr
rækjuskel, hefur tapað umtalsverðum
fjármunum undanförnum árum en þrátt
fyrir það lítur forstjóri þess, Ståle
Birkeland, björtum augum til framtíðar.
Fyrirtækið hefur fengið GRAS (Generally
Recognized As Save) viðurkenninguna í
Bandaríkjunum fyrir framleiðslu sína,
ChitoClear, sem er kristalstært þegar því
er blandað í vatn en vatn blandað kítíni
frá Asíulöndum verður gruggugt.
Sölustjóri Primex, Bjarte Langhelle,
telur að gæði framleiðslunnar opni fyrir-
tækinu mikla möguleika í Bandaríkjun-
um og þar muni verða mikilvægasta
markaðssvæði þess í framtíðinni. Ástæð-
una segir hann vera sívaxandi eftirspurn
eftir náttúrlegum efnum þar vestra til að
blanda í margs konar iðnaðarvörur.
Þolinmóðir eigendur
Vegna GRAS viðurkenningarinnar munu
hluthafar loksins fá greitt fyrir þolin-
mæði sína eftir margra ára útgjöld og út-
gáfu nýrra hlutabréfa.
Ståle Birkeland vill þó ekki reyna að
spá hvenær fjárfesting í fyrirtækinu fer að
gefa arð, en útilokar ekki að það verði
kannski eftir tvö ár.
„Við leggjum nú kapp á að vinna og
undirbúa markaðinn. Það er margra ára
vinna en nú lítur út fyrir að ýmsar dyr séu
að opnast í Bandaríkjunum,“ segir
Birkeland.
Auk góðs útlits þar vestra spillir ekki
að Japanir hafa nú þegar pantað 80 tonn,
sem nemur um þriðjungi af ársfram-
leiðslu fyrirtækisins.
40 tonn af rækjuskel
BioHenk í Tromsö er eina fyrirtækið í
Noregi annað en Primex sem framleiðir
kítín úr rækjuskel, mest fyrir snyrtivöru-
iðnaðinn.
Daglega vinnur Primex um 80 tonn af
rækjuskel. Dótturfyrirtæki eru á Finns-
nes í Troms og Hasvik í Finnmark. Þau
sjá um hráefnisöflun.
„Mikilvægast fyrir okkur er að hráefnið
sé eins ferskt og mögulegt er,“ segir
Birkeland.
Í fyrra framleiddi Primex um 200 tonn
af kítíni, sem er næstum 40% aukning
frá árinu 1999.
Bjartsýni á framtíð
kítínframleiðslu úr rækjuskel