Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2001, Síða 38

Ægir - 01.02.2001, Síða 38
Jónbjörn Pálsson Höfundar eru starfsmenn Hafrannsóknar- stofnunarinnar Gunnar Jónsson Þessar tegundir eru flundra, Platichthys flesus, sem veiddist í september 1999 en sex fiskar skiluðu sér árið 2000, trölli, Lamprogrammus shcherbackevi og djúpmjóri, Lycodes terraenovae. Auk þess veiddust aðrar mjög sjaldséðar tegundir eins og rauðskinni, Barbourisia rufa, sá fjórði hér við land, hornfiskur, Belone belone, e.t.v. sá fjórði hér, bleikmjóri, Lycodes luetkeni, tveir fiskar nr. fjögur og fimm á Ís- landsmiðum og rósafiskur, Rhodichthys regina, tveir fiskar en þessi tegund veiddist hér í Ingólfsleið- angrinum 1995-’96 og síðan hafa ekki margir rósa- fiskar veiðst á Íslandsmiðum. Auk þeirra fiska sem bárust til Hafrannsóknastofnunar fréttist af öðrum m.a. í dagblöðum. Hér á eftir verður gerð grein fyrir helstu sjaldséð- um fiskum ársins 2000 en áður er rétt að geta þess að í október árið 2000 barst Hafrannsóknastofnun mjög sjaldséður fiskur sem veiðst hafði í desember árið 1999, en það er svartskoltur, Brotulotaenia crassa. Hann veiddist á svokallaðri. Jökultungu í Faxaflóa á 238 m dýpi og mældist 64 cm og var 900 g á þyngd. Veiðiskip var Klakkur SH. Þetta er annar fiskur teg- undarinnar á Íslandsmiðum en sá fyrsti veiddist í júlí 1998. Loks er getið nokkurra fiska sem veiddust í leið- angri á rs. Bjarna Sæmundssyni í júní og júlí árið 1999 en birting á niðurstöðum þeirra rannsókna hef- ur dregist. Sæsteinsuga, Petromyzon marinus Í byrjun september fréttist af einni 70 cm langri sæ- steinsugu sem veiddist á Fjöllunum suðvestur af Reykjanesi. Þá veiddist önnur viku af september í botnvörpu Júlíusar Geirmundssonar ÍS á 439 m dýpi norður af Víkurál. Hún mældist 80 cm. Sú þriðja, sem var 87 cm löng, veiddist um miðjan september á 110 m dýpi á línu Staðarbergs GK skammt undan Grindavík. Brandháfur, Hexanchus griseus Samkvæmt frétt í Morgunblaðinu (Úr Verinu) þ. 6. sept. 2000 veiddist í byrjun september 135 cm brandháfshrygna, 10 kg á þyngd, á línu á 92 m dýpi rétt austan við Elliðaey við Vestmannaeyjar. Veiði- skip var Sævaldur VE. Það hafa þá fengist sjö brandháfar við Ísland á síð- ustu öld (1920 til ársloka 2000). Kambháfur, Pseudotriakis microdon Seint í maí veiddust þrír í net Hafnarrastar ÁR, sem var við tilraunaveiðar á skötusel, á 421 m dýpi í Síðugrunnskanti (63°16´N, 17°09´V). Einn var mældur og var hann 112 cm. Þá veiddust sjö hæng- ar, 210-248 cm langir og 22-26 kg (slægðir) í byrj- un júní undan Suðurlandi við sömu tilraunaveiðar á sama skipi. Þeim smá fjölgar kambháfunum sem veiðast á Ís- landsmiðum. Á árunum 1900 til ársloka 2000 feng- ust hér a.m.k. 25 kambháfar á svæðinu frá Ingólfs- höfða vestur í Skerjadjúp. Græðisangi, Holtbyrnia anomala Einn 14,5 cm langur græðisangi veiddist á Reykja- neshrygg í maí eða júní. Marangi, Holtbyrnia macrops Marangi, 30,5 cm, veiddist á 1098 m dýpi vestan við Reykjaneshrygg (61°34´N, 28°24´V) í apríl og tveir, 17 og 18, 5 cm veiddust á 832-915 m dýpi á svipuð- um slóðum (62°00´N, 28°05´V) í lok maí. Úthafsangi, Maulisia microlepis Úthafsangi, 27 cm langur, veiddist í apríl á 1098 m dýpi vestan við Reykjaneshrygg (61°34´N, 28°24´V). Einnig veiddust tveir angar sem ekki reyndist unnt Sjaldséðir fiskar á Íslandsmiðum árið 2000 Árið 2000 barst fjöldi sjaldséðra fisktegunda til Hafrannsóknastofnunar. Einnig veiddust nokkrir sjaldséðir fiskar í leiðöngrum Hafrannsókna- stofnunar. Þrjár þessara tegunda hafa ekki áður veiðst á Íslandsmiðum svo kunnugt sé. Ein þeirra veiddist reyndar í september árið 1999 en kom ekki á Hafrannsóknastofnun fyrr en í mars 2000. 38 F I S K A R

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.