Ægir

Volume

Ægir - 01.02.2001, Page 40

Ægir - 01.02.2001, Page 40
Tómasarhnýtill, Cottunculus thomsonii Tómasarhnýtill, 41 cm langur, veiddist á 732 m dýpi á grálúðuslóð vestan Víkuráls (65°50´N, 27°40´V) í byrjun desember. Veiðiskip Snorri Sturluson RE. Sandhverfa, Psetta maxima Í apríl veiddist ein 30-40 cm löng sandhverfa við Melrakkasléttu og í ágúst þrjár í kolanet á 9 m dýpi á Hólsvík austan Raufarhafnar. Þær voru 1-3,5 kg á þyngd. Árið 1998 veiddust tvær á svipuðum slóðum. Í desember veiddist ein 85 cm löng og 11 kg slægð á Suðvesturmiðum og mun hún vera með þeim stærstu sem veiðst hafa hér við land en sandhverfa er talin geta náð um 100 cm lengd og 25 kg þyngd. Stærri en 70 cm eru sjaldséðar. Lúsífer, Himantolophus groenlandicus Í maí veiddi togarinn Snorri Sturluson RE alls sex lúsífera sem voru 20-44 cm langir í flotvörpu á 732- 1025 m dýpi á Reykjaneshrygg og í nóvemberlok veiddi sami togari 27 cm lúsífer á 732 m dýpi á grá- lúðuslóðinni vestan Víkuráls (65°50´N, 27°40´V). Litli lúsífer, Himantolophus mauli Um miðjan maí veiddi Snorri Sturluson RE litla lús- ífer, 14 cm langan, í flotvörpu á 1025 m dýpi á Reykjaneshrygg (61°28´N, 27°38´V) og í september veiddi sami togari annan 17 cm langan í flotvörpu á 659 m dýpi djúpt vestur af Bjargtöngum (65°38´N, 27°30´V). Drekahyrna, Chaenophryne draco Seint í maí veiddi Snorri Sturluson RE í flotvörpu 12,5 cm drekahyrnu á Reykjaneshrygg (62°00´N, 28°30´V). Slétthyrna, Chaenophryne longiceps Í maí veiddi Snorri Sturluson RE slétthyrnu sem mældist 10 cm, í flotvörpu á 842 m dýpi á Reykja- neshrygg (61°23´N, 28°05´V). Sædjöfull, Ceratias holboelli Í apríl, maí og júní veiddi Snorri Sturluson RE sex sædjöfla 18-84 cm langa á Reykjaneshrygg og í sept- ember tvo 57 og 58 cm djúpt vestur af Bjargtöngum. Surtur, Cryptopsaras couesi Í apríl veiddi Snorri Sturluson RE í flotvörpu á 1098 m dýpi við Reykjaneshrygg (61°34´N, 28°24´V), 29,5 cm surt og í byrjun september annan 26 cm langan á 659 m dýpi djúpt vestur af Bjargtöngum (65°38´N, 27°30´V). Tunglfiskur, Mola mola Í desemberbyrjun veiddi Gullver NS tunglfisk sem mældist 170 cm langur . Hann veiddist í Hvalbaks- halla (á.a.g. 64°05´N, 13°02´V). Í októberleiðangri á r.s. Árna Friðrikssyni RE 200 (Á7-2000) veiddust nokkrir merkilegir fiskar og eru þessir helstir: Stuttnefur, Hydrolagus affinis Út af Stokksnesgrunni (63°36´N, 14°10´V), 1178- 1187 m, fjórir fiskar 100-107 cm langir. Langnefur, Hariotta raleighana Djúpt suðvestur af Reykjanesi (63°15´N, 26°06´V), 1027-1066 m, einn fiskur og djúpt vestur af Reykja- nesi (63°52´N, 27°05´V), 1069-1023 m, einn fiskur. Íslands-Færeyjahryggur (63°48´N, 13°11´V), 780- 827 m, einn fiskur. Langnefir þessir voru 57-100 cm langir. Bleikskata, (?), Raja (Malacoraja) kreffti Veiddist á 1258-1300 m dýpi djúpt suðvestur af Reykjanesi (63°06´N, 26°29´V) Djúpskata, Raja (Rajella) bathyphila Ein, 19,5 cm löng, veiddist á 1028-1010 m dýpi í Grænlandssundi djúpt vestur af Bjargtöngum (65°26´N, 28°23´V) og önnur, 82 cm löng, veiddist á 685-712 m dýpi í Berufjarðarál (63°56´N, 13°02´V). Hvíta skata, Raja lintea Tvær veiddust í leiðangrinum, önnur á 388-395 m dýpi í Rósagarðinum (63°30´N, 11°44´V). Hún var 122 cm á lengd. Hin sem mældist 102 cm veidist á 678 m dýpi suðvestur af Reykjanesi (62°50´N, 24°09´V). Gapaldur, Eurypharynx pelecanoides Einn veiddist á 1010-1014 m dýpi í Grænlandssundi vestur af Látragrunni (65°03´N, 28°14´V). 40 F I S K A R Kort sem sýnir fundarstaði vígatanna, trölla og djúpmjóra á Íslandsmiðum.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.