Ægir - 01.08.2002, Side 40
40
F Y R I RT Æ K J A K Y N N I N G
Á heimasíðu fyrirtækisins –
www.aukaraf.is - kemur fram að
Aukaraf ehf. hafi verið stofnað
árið 1996 og í upphafi hafi fyrir-
tækið einungis verið verkstæði,
en fljótlega hafi verið sett upp
verslun með aukarafbúnað. Í dag
rekur Aukaraf heildsölu, verslun
og verkstæði. „Mikil reynsla er
fyrir hendi í fyrirtækinu,” segir á
heimasíðunni, „og sterkustu svið-
in eru hljómtæki og þjófavarnar-
kerfi ásamt frágangi á hvers kyns
rafbúnaði í fólksbíla, jeppa, hús-
bíla, vinnubíla og önnur farar-
tæki.”
Kynning á sjávarútvegs-
sýningunni
„Við höfum aðeins verið að fikra
okkur inn á smábátamarkaðinn
með t.d. vatnsheld box fyrir út-
varpstæki, talstöðvaloftnet og
„invertera” sem breyta 12 og 24
voltum í 230 volt. Við erum með
umboð fyrir Magellan og vörulín-
an hjá þeim hefur verið að styrkj-
ast og þar á bæ eru menn í aukn-
um mæli að koma með lausnir
fyrir bátana. Einnig er Icom með
afskaplega vandaðar VHS-tal-
stöðvar og sömuleiðis stutt-
bylgjustöðvar,” segir Ásgeir Örn.
Á sjávarútvegssýningunni í
Smáranum í Kópavogi kynnti
Aukaraf m.a. vörulínuna frá Icom
og segir Ásgeir Örn að viðtökurn-
ar hafi verið mjög góðar. „Og síð-
an höfum við fengið í okkar raðir
Baldur Bragason, sem annaðist til
fjölda ára viðgerðir hjá
Radioþjónustu Sigga Harðar ehf.
Baldur styrkir okkur og gerir
okkur betur mögulegt að þjón-
usta viðskiptavini okkar sem
best,” segir Ásgeir Örn.
Ýmislegt fyrir sjávarútveginn
Samandregið segir Ásgeir að þær
vörur sem Aukaraf hafi á boðstól-
um fyrir sjávarútveginn séu VHS-
talstöðvar og stuttbylgjustöðvar
sem og UHF-talstöðvar sem eru
notaðar um borð í bátunum til
samskipta milli áhafnarmeðlima.
„Einnig erum við með vatnshelda
poka utan um ýmsan viðkvæman
búnað, vatnshelda hátalara og
GPS-búnað. Einnig má nefna að
Icom framleiðir líka dýptarmæla
og radara, sem við gerum ráð fyrir
að verða með ef markaðurinn
kallar eftir þeim,” sagði Ásgeir
Örn Rúnarsson.
Aukaraf ehf. – Skeifunni 4 í Reykjavík:
Aukin áhersla
á sjávarútveginn
- m.a. selur fyrirtækið talstöðvar og frá japanska fyrirtækinu Icom
„Upphaflega er Aukaraf fyrirtæki sem sérhæfir sig í aukarafbúnaði í öll
farartæki. Við höfum hins vegar verið að færa okkur yfir í ýmsa aðra
hluti sem tengjast bílum, t.d. hljómtæki, GPS-tæki og litlar talstöðvar. Í
byrjun þessa árs hófum við síðan innflutning á talstöðvum frá japanska
fyrirtækinu Icom. Í boði eru ýmsar gerðir talstöðva og þar á meðal tal-
stöðvar sem henta mjög vel fyrir báta,” segir Ásgeir Örn Rúnarsson,
sölu- og markaðsstjóri Aukarafs, sem er til húsa í Skeifunni 4 í Reykja-
vík.
Vígreifir starfsmenn Aukrarafs í bás fyrirtækisins á sjávarútvegssýningunni í Smáran-
um í Kópavogi í byrjun september. Mynd: Sverrir Jónsson.