Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2005, Blaðsíða 41

Ægir - 01.10.2005, Blaðsíða 41
41 N Ý T T S K I P Nýjasta skipið í flota Eyjamanna er Bergur VE 44, sem kom til Eyja í lok október sl. Bergur VE, sem er um 540 brúttólestir, bar áður nafnið Brodd I og var smíðaður í Noregi árið 1998. Skipið er 35 metra langt og 10,5 metra breitt. Kaupverð er um 200 milljónir króna og endurbætur á því í Póllandi lögðu sig á um 50 milljónir króna. Upphaflega var skipið smíðað fyrir útgerð í Skotlandi, en þaðan var það gert út til skamms tíma. Næstu árin var skipið gert út frá Álasundi í Noregi, aðallega á ufsaveiðar. Bergur ehf. í Eyjum festi kaup á skipinu, en að þeirri útgerð stendur Sævald Pálsson og fjölskylda hans. Synirnir eru allir á fullu í útgerðinni. Grétar Þór er skipstjóri á Bergi, Sigurgeir stýri- maður og afleysingaskipstjóri og Elías Geir stýrir útgerðinni í landi. Sigurbjörn Theódórsson er yfirvélstjóri. Öflugt skip Bergur VE er öflugt skip. Hann er búinn MAN B&W Alpha aðal- vélabúnaði - gerð 6L28/32A- DVO - sem Afltækni hefur um- boð fyrir. Tvær 28 tonna togvindur eru af gerðinni Rapp. Sem fyrr segir voru gerðar endurbætur á skipinu í Póllandi, nánar tiltekið í Skipa- pol skipasmíðastöðinni í Gdansk í samvinnu við Vélasöluna, um- boðsaðila Skipapol. Í Gdansk var skrúfustýrishring- urinn tekinn af skipinu og nýtt stýri sett aftan við skrúfuna. Jafn- framt var afturhluti skipsins lengdur um 1,20 metra. Lestin var endurnýjuð og henni breytt til þess að innrétta fyrir fiskikör, en nú rúmar lestin um 230 440 lítra ker. Jafnvægistankar voru settir aft- ur í skutinn og innréttingar í vistarverum endurnýjaðar. Skipið var sandblásið í hólf og gólf og málað með Hempels skipamálningu frá Slippfélaginu. Vélaverkstæðið Þór í Vest- mannaeyjum vann að því þegar skipið kom heim að setja upp nýja aðgerðaraðstöðu um borð og koma fyrir sjósetningarbúnaði. Skipasýn - Sævar Birgisson - hannaði breytingarnar á Bergi. Teljum okkur vera með gott skip Áður gerði Bergur ehf. út sam- nefnt uppsjávarveiðiskip, en Ísfé- lag Vestmannaeyja keypti það ásamt aflaheimildum í maí sl. og greiddi að hluta fyrir með bol- fiskveiðiheimildum. Það má því segja að Bergur ehf. hafi skipt um gír - farið úr uppsjávartegundun- um yfir í bolfiskinn. „Við erum mjög sáttir og telj- um okkur vera komna með gott skip,“ segir Elías Geir Sævalds- son, útgerðarstjóri, en skipið fór í sinn fyrsta túr 17. nóvember sl. og gekk ágætlega. Í það heila hef- ur Bergur ehf. yfir að ráða um 1900 tonna kvóta á skipið. Ellefu manns eru í áhöfn og segist Elías Geir reikna með að skipið verði að jafnaði tæpa viku á veiðum. Aflinn verður seldur á mörkuðum - bæði hér heima og erlendis. Bergur VE 44 til Eyja Bergur VE við heim- komuna til Eyja. Mynd: Tryggvi Sigurðsson. aegir10nov2005.qxd 30.11.2005 16:49 Page 41

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.