Ægir - 01.10.2005, Page 41
41
N Ý T T S K I P
Nýjasta skipið í flota
Eyjamanna er Bergur
VE 44, sem kom til
Eyja í lok október sl.
Bergur VE, sem er um
540 brúttólestir, bar
áður nafnið Brodd I
og var smíðaður í
Noregi árið 1998.
Skipið er 35 metra
langt og 10,5 metra
breitt. Kaupverð er
um 200 milljónir
króna og endurbætur
á því í Póllandi lögðu
sig á um 50 milljónir
króna.
Upphaflega var skipið smíðað
fyrir útgerð í Skotlandi, en þaðan
var það gert út til skamms tíma.
Næstu árin var skipið gert út frá
Álasundi í Noregi, aðallega á
ufsaveiðar. Bergur ehf. í Eyjum
festi kaup á skipinu, en að þeirri
útgerð stendur Sævald Pálsson og
fjölskylda hans. Synirnir eru allir
á fullu í útgerðinni. Grétar Þór er
skipstjóri á Bergi, Sigurgeir stýri-
maður og afleysingaskipstjóri og
Elías Geir stýrir útgerðinni í
landi. Sigurbjörn Theódórsson er
yfirvélstjóri.
Öflugt skip
Bergur VE er öflugt skip. Hann
er búinn MAN B&W Alpha aðal-
vélabúnaði - gerð 6L28/32A-
DVO - sem Afltækni hefur um-
boð fyrir.
Tvær 28 tonna togvindur eru af
gerðinni Rapp. Sem fyrr segir
voru gerðar endurbætur á skipinu
í Póllandi, nánar tiltekið í Skipa-
pol skipasmíðastöðinni í Gdansk
í samvinnu við Vélasöluna, um-
boðsaðila Skipapol.
Í Gdansk var skrúfustýrishring-
urinn tekinn af skipinu og nýtt
stýri sett aftan við skrúfuna. Jafn-
framt var afturhluti skipsins
lengdur um 1,20 metra.
Lestin var endurnýjuð og henni
breytt til þess að innrétta fyrir
fiskikör, en nú rúmar lestin um
230 440 lítra ker.
Jafnvægistankar voru settir aft-
ur í skutinn og innréttingar í
vistarverum endurnýjaðar.
Skipið var sandblásið í hólf og
gólf og málað með Hempels
skipamálningu frá Slippfélaginu.
Vélaverkstæðið Þór í Vest-
mannaeyjum vann að því þegar
skipið kom heim að setja upp
nýja aðgerðaraðstöðu um borð og
koma fyrir sjósetningarbúnaði.
Skipasýn - Sævar Birgisson -
hannaði breytingarnar á Bergi.
Teljum okkur vera
með gott skip
Áður gerði Bergur ehf. út sam-
nefnt uppsjávarveiðiskip, en Ísfé-
lag Vestmannaeyja keypti það
ásamt aflaheimildum í maí sl. og
greiddi að hluta fyrir með bol-
fiskveiðiheimildum. Það má því
segja að Bergur ehf. hafi skipt um
gír - farið úr uppsjávartegundun-
um yfir í bolfiskinn.
„Við erum mjög sáttir og telj-
um okkur vera komna með gott
skip,“ segir Elías Geir Sævalds-
son, útgerðarstjóri, en skipið fór í
sinn fyrsta túr 17. nóvember sl.
og gekk ágætlega. Í það heila hef-
ur Bergur ehf. yfir að ráða um
1900 tonna kvóta á skipið.
Ellefu manns eru í áhöfn og
segist Elías Geir reikna með að
skipið verði að jafnaði tæpa viku
á veiðum. Aflinn verður seldur á
mörkuðum - bæði hér heima og
erlendis.
Bergur VE 44 til Eyja
Bergur VE við heim-
komuna til Eyja.
Mynd: Tryggvi Sigurðsson.
aegir10nov2005.qxd 30.11.2005 16:49 Page 41