Ægir - 01.06.2007, Qupperneq 28
28
S J Ó M Æ L I N G A R
Alþjóðlegi sjómælingadag-
urinn var 21. júní sl. . Á síð-
astliðnu ári varð Alþjóðasjó-
mælingastofnunin (IHO) 85
ára. Af því tilefni samþykktu
Sameinuðu þjóðirnar að gera
þennan dag að Alþjóðlega sjó-
mælingadeginum. Í ár var
þema dagsins rafræn sjókort
(Electronic Navigational
Charts, ENC).
Sjómælingasvið1) Landhelg-
isgæslu Íslands, Sjómælingar
Íslands, hefur það meginhlut-
verk að sjá sjófarendum við
strendur Íslands fyrir sjókort-
um og ýmsum öðrum sjó-
ferðagögnum er stuðla að
öruggri siglingu. Sjómælinga-
svið Landhelgisgæslunnar
stundar sjómælingar og gefur
út yfir 60 sjókort, yfirsiglinga-,
strandsiglinga- og hafnakort.
Samkvæmt reglum um björg-
unar- og öryggisbúnað ís-
lenskra skipa þarf sérhvert
skip að hafa nýjustu útgáfu
nauðsynlegra sjókorta um
borð2). Sjókort eru sérhæfð
kort ætluð til að mæta þörf-
um sjófarenda. Þau sýna m.a.
dýpi, botngerð, lögun og ein-
kenni strandar, hættur, sjó-
merki og staðsetningu og
ljóseinkenni vita. Leiðréttingar
á sjókortum eru birtar í „Til-
kynningum til sjófarenda
sem Sjómælingar Íslands gefa
út reglulega. Það er á ábyrgð
notandans að fylgjast með til-
kynningunum og færa í við-
komandi sjókort.
Nýverið hóf Landhelg-
isgæslan að gefa út rafræn
sjókort, en því hefur verið
haldið fram að tilkoma ENC
korta sé eitt mesta framfara-
spor til öryggis fyrir sjófar-
endur síðan ratsjáin kom
fram. ENC kort eru birt í raf-
rænum sjókorta- og upplýs-
ingakerfum (Electronic Chart
Display & Information Syst-
em, ECDIS).
Rasta- og vigurkort
Stafræn sjókort eru ýmist á
rasta- eða vigurformi (vektor)
og eru fáanleg frá ýmsum að-
ilum, bæði opinberum og
einkaaðilum.
Rastakort hafa verið notuð
hér á landi í nokkur ár. Þetta
eru skönnuð sjókort, af papp-
ír eða filmu. Kortin eru síðan
kölluð fram í siglingatölvum
og „sigla“ skip í þeim. Þar
sem gögnin sem birtast eru í
raun aðeins stafræn mynd af
sjókorti hefur myndin enga
„greind“ og ekki er hægt að
gera fyrirspurnir í tölvukerfið,
svo neinu nemi. Tiltölulega
auðvelt er að framleiða rasta-
kort.
Vigurkort eru búin til með
því að gefa öllum eigindum
(línum, punktum og flötum)
ákveðin gildi sem geymd eru
í lögum í hlutbundnum gagna-
grunni. Þegar þessi gögn eru
notuð í siglingatölvum er
hægt að setja saman kort á þá
vegu sem notandanum hentar
í hvert skipti en ákveðnar
grunnupplýsingar verða þó
að koma fram.
Vigurkort hafa ákveðna
„greind“ og hægt er að nota
gagnagrunninn til að gera fyr-
irspurnir; einnig er hægt að
láta kerfið vara við hættum á
áætlaðri siglingaleið miðað
við stefnu, hraða og djúpristu
skipsins. Notandinn getur
einnig fengið upplýsingar um
öll þau fyrirbæri sem sjást á
kortinu. Framleiðsla og gæða-
eftirlit á vigurkortum er flók-
in, tímafrek og kostnaðarsöm,
en notagildið er mun meira
en á rastakortum. ENC kort er
dæmi um vigurkort.
Hvað er ENC?
Rafræn sjókort, ENC, eru
opinber vigursjókort sem
uppfylla skilyrði Alþjóðasjó-
mælingastofnunarinnar og
hafa verið gefin út af opin-
berri sjómælingastofnun við-
komandi lands. Þessi kort eru
einu vigursjókortin sem má
nota í staðinn fyrir prentuð
sjókort.
Samkvæmt skilgreiningu
Alþjóðasiglingamálastofn-
unarinnar (IMO) eru ENC
kort eingöngu framleidd af
opinberum sjómælingastofn-
unum eða öðrum til þess
bærum ríkisstofnunum – eða
með leyfi þeirra; hins vegar
er hugtakið ENC ekki lögvar-
ið og hefur víða verið (rang-
lega) notað af einkafyrirtækj-
um til að lýsa framleiðslu
þeirra. Til að taka af öll tví-
mæli er orðið „opinbert“ oft
notað með ENC.
Um opinber ENC kort gild-
ir eftirfarandi:
ENC er byggt á frumgögn-
um eða opinberum sjókortum
viðkomandi sjómælingastofn-
unar.
ENC er sett saman og kóð-
að samkvæmt alþjóðlegum
stöðlum.
ENC notar World Geodetic
System 1984 viðmið (WGS84
datum).
ENC er á ábyrgð þeirrar
sjómælingastofnunar sem gef-
ur það út.
ENC er einungis gefið út af
opinberri sjómælingastofnun.
ENC er reglulega uppfært
með opinberum uppfærslum
sem dreift er á stafrænu
formi.
Sjókortakerfi
Til eru tvenns konar kerfi fyr-
ir rafræn sjókort sem birta
stöðu skips á skjá í stjórntækj-
um skipa. Annars vegar er
um að ræða ECDIS kerfi sem
uppfyllir skilyrði IMO og
SOLAS samþykktarinnar3) um
sjókort sem hafa ber um borð
í skipum. Hins vegar eru
margskonar önnur kerfi, sem
öll eru nefnd ECS, (Electronic
Chart System). Þessi kerfi er
hægt að nota sem hjálpartæki
við siglingu, en þau uppfylla
ekki IMO/SOLAS skilyrði um
sjókort um borð í skipum.
ECDIS, rafrænt sjókorta-
og upplýsingakerfi, er í raun
landfræðilegt upplýsingakerfi
á sjó og geta skipstjórn-
armenn valið að hluta þær
upplýsingar sem birtast. Þær
geta verið aðrar en kortin, s.s.
upplýsingar frá ratsjá, stað-
setningartækjum, um veður,
aðra skipaumferð (AIS) o.fl.
IMO skilgreinir ECDIS sem
rafrænt sjókorta- og upplýs-
ingakerfi sem, með viðeig-
andi varakerfi, uppfyllir skil-
yrði um uppfærð sjókort sem
krafist er með reglugerð V/19
og V/27 í SOLAS samþykkt-
inni frá 1974. Upplýsingar úr
kerfi rafrænna sjókorta og
upplýsingar um staðsetningu
frá siglingatækjum eru not-
aðar til að skipuleggja sigl-
ingu og fylgjast með áætlaðri
siglingaleið. Einnig er hægt
að sýna viðbótarupplýsingar
tengdar sjóferðinni ef þurfa
þykir.
Önnur rafræn sjókortakerfi,
ECS kerfi, geta verið í allt frá
einföldum GPS handtækjum
til háþróaðra sjálfstæðra
tölvukerfa sem tengd eru sigl-
ingatækjum og sýna stöðu
skips á skjá og viðeigandi
upplýsingar úr sjókortum úr
ECS gagnagrunni. Það sem
skilur þau frá ECDIS er að
þau uppfylla ekki skilyrði
IMO og þar með standast þau
ekki opinberar kröfur um sjó-
kort um borð í skipum.
Sumir framleiðendur ECS
kerfa búa til vigur- og rasta-
gögn til notkunar í tækjum
sínum. Þeir hafa gefið út óop-
inber sjókort í fjölda ára og
skapað sér ákveðna stöðu á
markaði. Með þessu frum-
kvæði stuðluðu þeir að og
festu í sessi notkun á rafræn-
um kortum um borð í skip-
um. Almennt eru kortin unnin
upp úr prentuðum sjókortum
eða öðrum gögnum frá opin-
berum sjómælingastofnunum.
ECS kerfi geta notað ENC
kort, rastakort eða önnur
kortagögn framleidd af einka-
aðilum og virknin getur verið
lík og í ECDIS. Sjómælinga-
stofnanir bera enga ábyrgð á
nákvæmni eða áreiðanleika
þessara óopinberu korta. Þeg-
ar ECS kerfi er notað, verða
prentuð sjókort einnig að
vera um borð og vera sá
grunnur sem sigling skips
byggir á.
Níels Bjarki Finsen.
Höfundur er verkefn-
isstjóri rafrænna sjókorta
hjá Landhelgisgæslu
Íslands.
Alþjóðlegi sjómælingadagurinn