Ægir - 01.06.2007, Blaðsíða 22
22
A U S T U R L A N D
hafði ég það að leiðarljósi að fiska sem
mest, á meðan kvóti var til. En eftir að
ég tók við skipstjórn á Aðalsteini Jóns-
syni, þar sem aflinn er frystur um borð,
er allt kapp lagt á að gera sem mest
verðmæti úr þeim afla sem kemur um
borð.“
- Ertu harður skipstjóri?
„Nei, mjög mildur. Ég er harðastur við
sjálfan mig. Ég tel ekkert fengið með því
að garga endalaust á mannskapinn um
borð. Slíkt held ég að virki miklu frekar
öfugt,“ segir Þorsteinn.
Þó svo að Þorsteinn starfi í auknum
mæli að daglegri stjórnun Eskju í landi,
sem stjórnarformaður fyrirtækisins, er
hann þó ekki alveg búinn að sleppa
hendinni af skipstjórn Aðalsteins Jóns-
sonar. „Sonur minn, Daði, er fyrsti stýri-
maður og afleysingaskipstjóri. Ómar Sig-
urðsson, sem hefur verið skipstjóri hjá
okkur, leysir Daða síðan af ef ég er ekki
um borð. En mér finnst mjög gott að fara
einn og einn túr út á sjó og halda þannig
tengslum við skipin og sjómennskuna.“
Á annað hundruð starfsmenn
Samdráttur í þorskveiðum hefur að sögn
Þorsteins mjög alvarleg áhrif á Eskifirði
eins og í öðrum byggðarlögum þar sem
þorskur er unninn í miklum mæli. Enda
byggir landvinnsla Eskju á vinnslu þorsks
og ýsu, en karfi, ufsi og aukategundir
fara á markað. „Mikill samdráttur í þorsk-
veiðum hefur mjög mikil áhrif á okkar
rekstur. Við höfum ekki lagst yfir það
hvernig við getum nákvæmlega brugðist
við þessu, en mér sýnist nokkuð ljóst að
áhrifin verði alvarleg. Hátt gengi íslensku
krónunnar hefur verið okkur erfitt og
samdráttur í þorskveiðum í ofanálag ger-
ir okkur róðurinn afar erfiðan. Það má ef
til vill hugsa sér að auka ýsuvinnsluna á
móti minnkandi þorskvinnslu, en málið
er ekki svo einfalt. Það hefur verið mjög
erfitt að fá ýsu og sú ýsa sem togarararn-
ir hafa komið með hefur verið mjög smá
og því erfið til vinnslu. Þetta er í sam-
ræmi við þá skoðun fiskifræðinga að ýs-
an í þessum sterku árgöngum verði held-
ur smá.“
Á bilinu 40-50 manns eru í land-
vinnslu Eskju á Eskifirði, en í það heila
starfa á annað hundrað mans hjá fyr-
irtækinu – á skipum þess, á skrifstofu og
í bræðslunni.
Í landvinnslu Eskju vinnur töluvert af
erlendu vinnuafli, fyrst og fremst Pólverj-
ar, sem margir hafa verið á staðnum í allt
að áratug. Sumir Pólverjanna hafa sem
sagt fest rætur á Eskifirði og fest kaup á
húsnæði þar, en aðrir eru til skemmri
dvalar og búa í verbúðum.
„Það er einfaldlega mjög erfitt að fá
íslenskt vinnuafl í fiskvinnslu, verkstjór-
inn í bolfiskvinnslunni hefur sagt mér að
það gerist vart lengur að við fáum um-
Eskja er tvímælalaust burðarfyrirtæki á Eskifirði.
Ljóst er að niðurskurður þorskveiðiheimilda mun koma harkalega niður á bolfiskvinnslu Eskju, sem byggir að
langstærstum hluta á vinnslu á þorski.