Ægir - 01.06.2007, Side 17
17
Strákarnir á Narfa SU 68 voru
ánægðir með góðan afla
þegar tíðindamaður kíkti á
bryggjunni á Stöðvarfirði.
Afraksturinn eftir nokkurra
klukkustunda línuróður var
um sjö tonn, sem verður að
teljast harla gott.
„Það er ekki hægt að segja
annað en að það hafi gengið
alveg ágætlega á línunni í
sumar. Það hefði þó mátt
vera meiri kraftur í þessu í
byrjun sumars, en svo lifnaði
ágætlega yfir þessu þegar
kom fram í júní. Það virðist
vera töluvert af fiski ef farið
er eilítið dýpra hérna út. Hér
grynnra er hins vegar smá-
fiskur og steinbítur. Við höf-
um verið að sækja ríflega 20
mílur, í dag fórum við 25 míl-
ur,“ segir Ari Sveinsson frá
Fáskrúðsfirði sem var með
Narfa í þessum róðri, en með
honum um borð eru strákar
frá Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði
og af Breiðdal.
Ari segir að megnið af
kvótanum sem Narfi fiski sé
leigukvóti. „Þetta gengur með
þessu móti, í það minnsta
fáum við borgað. Síðan kem-
ur væntanlega byggðakvóti
hingað, sem ég reikna með
að við og annar bátur komum
til með að veiða. Þessi kvóti
skiptir algjörlega sköpum fyrir
okkur,“ segir Ari.
Aflinn af Narfa í þessum
túr fór að stærstum hluta á
markað, en ýsan fór til
vinnslu hjá Loðnuvinnslunni
á Fáskrúðsfirði.
En hvernig skyldi nið-
urskurður aflaheimilda í
þorski leggjast í Ara? „Hann
leggst auðvitað ekki vel í
okkur. Við erum háðir leigu-
kvóta og það verður vænt-
anlega minna framboð af
honum. Við verðum þá vænt-
anlega að sækja í auknum
mæli í aðrar tegundir. Að ein-
hverju leyti ætti það að vera
unnt,“ segir Ari.
Gaman á sjónum
Hann svarar því afdráttarlaust
játandi að sjómennskan sé
skemmtileg. „Já, þetta er gam-
an. Sérstaklega þegar veður
er gott eins og það var í nótt.
Þá kvartar maður ekki. Tíð-
arfarið hefur hins vegar verið
einstaklega leiðinlegt í vetur
– í raun alveg frá október og
fram í maí.“
Ari segist hafa verið á sjón-
um meira og minna síðan
hann var fimmtán ára gamall.
„Mig minnir að móðurbróður
mínum hafi fundist að ég
þyrfti að fá eitthvað að gera.
Þá fór ég fyrst á sjóinn. Ég sé
ekki eftir því. Þó svo að þetta
virðist vera einhæft, þá er það
ekki raunin. Maður er alltaf
að sjá eitthvað nýtt,“ segir Ari.
Fiskurinn hefur nóg æti
En hvaða álit hefur hann á
skoðun fiskifræðinga um líf-
ríkið í hafinu? Ari segist vera
sammála þeim að sumu leyti.
„En ég tel að þeir þyrftu að
rannsaka þorskstofninn hérna
fyrir austan mun betur en þeir
eru að gera. Ég held að það
sé ekki rétt að miða ráðgjöf-
ina bara út frá togararalli. Ég
held að ekki væri síður mark-
tækt að fara út í einskonar
línurall. Það getur vart gefið
rétta niðurstöðu að miða ein-
göngu við eina tegund af
veiðiskap.“
Þó svo að svo vel veiðist á
línuna segir Ari að það megi
ekki rekja til þess að fiskinn
vanti æti. Þvert á móti. „Það
var bullandi æti þar sem við
vorum að taka fiskinn. Vað-
andi síld og fugl og hvalur út
um allt. Ætli við höfum ekki
séð átta eða níu hnúfubaka,“
segir Ari og bætir við að það
verði stíft róið í allt sumar, en
hins vegar verði klárlega tek-
ið frá þá helgi sem Franskir
dagar verði haldnir á Fá-
skrúðsfirði dagana 27. til 29.
júlí nk.
Ari er raunar ekki Austfirð-
ingur. Hann er fæddur og
uppalinn á Patreksfirði, en
bjó í fimmtán ár í Grindavík.
En nú er hann sem sagt kom-
inn austur. „Konan mín er frá
Fáskrúðsfirði. Hún var búin
að búa í átta ár með mér í
Grindavík, en okkur langaði
að flytja hingað austur. Við
ætluðum að prófa að vera hér
í eitt ár, en innan árs vorum
við byrjuð að byggja á Fá-
skrúðsfirði og hér höfum við
verið í fimm ár og líkar vel,“
segir Ari Sveinsson.
A U S T U R L A N D
„Já, þetta er gaman. Sérstaklega þegar veður er gott eins og það var í nótt. Þá
kvartar maður ekki,“ segir Ari Sveinsson.
Narfi SU er gerður út frá Stöðvarfirði.
Hafró fari í línurall
- spjallað við Ara Sveinsson,
trillusjómann á Fáskrúðsfirði