Ægir - 01.07.2010, Page 61
61
S T R A N D V E I Ð A R
Nonni HU. Árni fiskaði 25 tonn af þorski á bátinn í strandveiðunum í sumar.
Mynd: Jón Sigurðsson.
enn meira af ufsa „en ég
lagði alla áherslu á þorskinn,
enda best upp úr honum að
hafa. Það er nóg af þorski
hér um allt fyrir norðan og
miklu betra ástand en ég hef
séð áður. Og hef þó verið til
sjós mestan hluta minnar ævi.
Fiskifræðingarnir sjá samt
aldrei neitt og taka ekkert
mark á því sem við segjum
sem erum úti á sjó. Það er
alltaf gapað upp í fiskifræð-
ingana en við erum ekki virtir
viðlits. Eitt er á hreinu; það er
nóg er af fiski í sjónum og
væri nú ólíkt gáfulegra að
hafa svona gamla kalla eins
og mig úti á sjó að fiska fyrir
þjóðarbúið í stað þess að
leggjast bara á ríkisjötuna,“
heldur smábátasjómaðurinn
Árni áfram og segist þegar
farinn að huga að næsta ári.
„Já, nú tekur maður bátinn
upp og dundar í honum í
vetur. Reynir svo að sigta út á
hvaða svæði best verður að
vera á næsta ári. Stefnan er
ótvírætt sú hjá mér að halda
þessu áfram meðan ég stend
í lappirnar,“ segir Árni Þor-
gilsson á Nonna HU á
Blönduósi.
Vagnhöfða 12 | 110 Reykjavík | Sími 567 2800 | Fax 567 2806 | mdvelar@mdvelar.is | www.mdvelar.is
Viðgerða-
verkstæði
Önnumst upptektir á:
>> Túrbínum
>> Heddum
>> Spíssum
Fullkomið viðgerða- og viðhaldsverk-
stæði að Vagnhöfða 12, Reykjavík
UP
PH
EIM
AR
HDS 10/20-4 M
30-200 bör
500-1000 ltr/klst
HDS 8/17-4 M
30-170 bör
400-800 ltr/klst
HDS 5/11 U/UX
110 bör
450 ltr/klst
1x230 volt
Gufudælur
Aflmiklir vinnuþjarkar
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð