Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.2013, Blaðsíða 25

Ægir - 01.02.2013, Blaðsíða 25
25 V E I Ð A R F Æ R I „Við erum í fjölbreyttum verk- efnum sem snúa að veiðar- færaþjónustu, bæði uppsetn- ingu á nýjum veiðarfærum og viðgerðum. En að undanförnu hefur mest verið að gera í rækjutrollunum. Hér á Norður- landi erum við með þrjár starfsstöðvar, þ.e. á Sauðár- króki, Akureyri og á Húsavík en Ísfell er auk þess með starfsstöðvar Ísnets í Hafnar- firði, Þorlákshöfn og í Vest- mannaeyjum. Þetta fyrirkomu- lag kemur vel út, við getum miðlað verkefnum milli starfs- stöðva eftir því sem hentar en það er líka mikilvægt að hafa starfsstöðvarnar á nokkrum stöðum á landinu og vera þannig í nálægð við viðskipta- vinina,“ segir Kári Páll Jónas- son, rekstrarstjóri starfs- stöðva Ísnets á Akureyri og Húsavík. Verkefni fyrir erlendar útgerðir Eftir að líf fór að færast í rækjuveiðar á nýjan leik hér á landi hefur verið talsvert að gera í uppsetningum á rækju- trollum hjá starfsstöðvum Ís- nets á Norðurlandi og einnig nokkuð um uppsetningar á Kári Páll Jónasson, rekstrarstjóri hjá Ísneti á Húsavík og Akureyri. Þorvaldur Sigurðsson leysir poka eftir kúnstarinnar reglum.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.