Ægir - 01.02.2013, Blaðsíða 26
26
rækjutrollum fyrir erlendar út-
gerðir.
„Erlendu verkefnin hafa
heldur verið að aukast að
undanförnu, bæði vegna
markaðssetningar fyrirtækisins
erlendis en einnig hitt að
margar útgerðir erlendis
þekkja til okkar veiðarfæra-
gerðar og vilja nýta sér okkar
þjónustu. Í sumum tilfellum
hafa þessir aðilar verið lengi í
viðskiptum við okkur. En
hvað varðar heimamarkaðinn
þá hefur verið meira um
verkefni fyrir útgerðirnar eftir
að rækjuveiðar voru gefnar
frjálsar. Þetta eru bæði troll
fyrir stærri togara, minni báta
og einnig báta sem stunda
innfjarðarrækjuveiðar,“ segir
Kári Páll.
Efnin léttari en áður
„Það er alltaf eitthvað um að
menn séu að prófa sig áfram
í breytingum, bæði vegna
nýrra efna sem koma á mark-
aðinn og að sama skapi vilja
menn prófa eitthvað nýtt í
hönnun og uppsetningu.
Bæði lýtur það að útfærslum
og stærð veiðarfæranna,“ seg-
ir Kári Páll.
Þróun á efnum til veiðar-
færagerðar snýst fyrst og
fremst um að geta grennt
garnið án þess þó að það
komi niður á styrknum. „Já,
þetta snýst mjög mikið um að
gera veiðarfærin léttari í
drætti í sjó og minnka þannig
orkuþörf skipanna. Olían er
dýr og eðlilega vilja menn
reyna eins og hægt er að
spara í þeim kostnaðarþætti,“
segir Kári Páll og er bjartsýnn
á framhaldið í veiðarfæra-
þjónustunni.
„Já, ég held að það sé
engin ástæða til annars. Sjáv-
arútvegurinn, eins og aðrar
útflutningsgreinar, nýtur
gengis krónunnar og gengur
vel við þessar aðstæður. Og
ég held að við höfum aftur
uppgötvað að á þessu lifum
við, ekki á því að sýsla bara
með peninga eins og við
héldum um tíma.“
V E I Ð A R F Æ R I
Hafnarbryggju - 580 Siglufjörður
Sími 422 2442 - GSM 899 7807 - Fax 467 1203