Ægir - 01.07.2013, Page 27
27
F R É T T I RK V Ó T I N N 2 0 1 3 - 2 0 1 4
HB-Grandi og Samherji með 18% af heildinni
Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá úthlutað sem nemur um 86% af
því aflamarki sem úthlutað er og vex hlutur þeirra um 0,8% á
milli ára. Alls fá 488 fyrirtæki eða lögaðilar úthlutað nú eða
einum fleiri en í fyrra. Sé litið til þeirra sem eru með mesta út-
hlutun fær HB Grandi, líkt og í fyrra, mestu úthlutað til sinna
skipa eða 11,2% af heildinni, næst kemur Samherji með 6,8%
og þá Þorbjörn hf. með 5,5%. Þetta er sama röð efstu fyrirtækja
og undanfarin ár, samkvæmt upplýsingum Fiskistofu. Vinnslu-
stöðin hefur hins vegar færst upp listann frá fyrra ári og er nú í
sjötta sæti með 4,2% af heildinni í en var í áttunda sæti í fyrra
með 3,81%. Að sama skapi hefur Rammi hf. færst niður um eitt
sæti og Skinney Þinganes upp um eitt sæti frá fyrra ári.
Úthlutun tíu kvótahæstu fyrirtækjanna er þannig:
Þorskígildi Hlutfall
HB Grandi hf. 42.657.166 11,2%
Samherji hf. 25.843.863 6,8%
Þorbjörn hf. 20.830.527 5,5%
FISK-Seafood hf. 18.215.212 4,8%
Brim hf. 16.866.790 4,4%
Vinnslustöðin hf. 16.056.214 4,2%
Vísir hf. 15.586.468 4,1%
Rammi hf. 14.577.944 3,8%
Skinney-Þinganes hf. 14.521.057 3,8%
Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf. 11.320.167 3,0%
Vestmannaeyingar sækja í sig veðrið
Þrjár heimahafnir skera sig úr eins og undanfarin ár með að
skip sem þeim tilheyra fá töluvert mikið meira úthlutað í
þorskígildum talið en þær hafnir sem á eftir koma. Mest fer til
skipa með heimahöfn í Reykjavík eða 13,3% af heildinni sam-
anborið við 14,2% í fyrra. Næstmest fer til Vestmannaeyja eða
11,2% (0,6% aukning frá í fyrra) og þá til skipa með heimahöfn
í Grindavík, eða 8,4% af heildinni (1,1% samdráttur frá fyrra
ári).
Hlutfall sem fer til skipa hjá hverri höfn fyrir sig breytist í flest-
um tilvikum eitthvað, samkvæmt upplýsingum Fiskistofu og
má rekja það til breytinga á þorskígildisstuðlum sem og til-
færslu aflahlutdeilda á milli skipa með ólíka heimahöfn.
Á eftirtöldum tíu höfnum eru vistuð rösklega 60% aflaheim-
ildanna og litlar breytingar hafa orðið á listanum milli ára.
Akranes hefur færst upp fyrir Akureyri og Hornafjörður einnig
færst upp listann, enda aukið hlutfall sitt úr 3,3% í 4,39%.
Þorskígildi Hlutfall
Reykjavík 50.664.858 13,28%
Vestmannaeyjar 42.770.295 11,21%
Grindavík 32.158.977 8,43%
Akranes 20.335.921 5,33%
Akureyri 19.491.445 5,11%
Hornafjörður 16.756.862 4,39%
Dalvík 13.450.556 3,53%
Rif 11.699.746 3,07%
Sauðárkrókur 11.581.745 3,04%
Grenivík 11.311.029 2,97%
60,36%
Brimnes RE fær toppsætið
Eins og áður segir fá 627 skip úthlutað aflamarki í upphafi fisk-
veiðiársins. Fyrsta sætið á lista togaranna tekur nú togarinn
Kvótinn 2013-2014