Ægir - 01.01.2012, Page 10
Ný tegund
Nefhali, Coelorinchus labiatus
Nefhali er langhalategund sem á heimkynni í austanverðu
Atlantshafi, frá Grænhöfðaeyjum norður til Biskajaflóa, vestur
og norður fyrir Írland og Bretlandseyjar. Þá finnst hann við
Asóreyjar. Hann er miðsævis-, botn- og djúpfiskur sem veiðst
hefur á 460-2220 m dýpi. Fæða er einkum litlir fiskar og botn-
læg krabbadýr.
Við Ísland veiddist nefhali í fyrsta skipti árið 2009, er þrír
fiskar fengust á 1120-1190 m dýpi á grálúðuslóðinni vestur af
Víkurál (65°27’N, 28°42’V). Árið 2010 veiddust síðan tveir í við-
bót á 890-910 m dýpi í Rósagarði (63°38’N, 13°23’V). Þessir
fiskar voru 20-23 cm langir, en nefhali getur náð um 50 cm
heildarlengd.
Í fljótu bragði líkist nefhali frænda sínum langhalabróður, en
er auðgreindur frá honum á því að langhalabróðir er með
gaddaraðir meðfram fremri hluta bak- og raufarugga sem nef-
hali hefur ekki.
Sjaldséðar tegundir sem bárust árið 2010
Slímáll, Myxine jespersenae
Brimnes RE veiddi í mars 58,5 cm langan slímál á Hamp-
iðjutorgi, en þar hafa flestir slímálar veiðst við Ísland. Slímálar
lifa á leirbotni og hafa, hér við land, veiðst á 800-1300 m dýpi.
Þeir eru hræætur og leggjast á dauða og dauðvona fiska.
Sæsteinssuga, Petromyzon marinus
Tölvert varð vart við sæsteinssugur við landið árið 2010,
einkum undan suður- og austurströndinni, en einnig undan
Norðurlandi því Þorleifur EA veiddi eina við Grímsey.
Beinhákarl, Cetorhinus maximus
Þó svo að beinhákarl hafi ekki verið talinn sjaldgæfur fiskur
við Ísland, þá fréttist ekki oft af honum. Ungur beinhákarl, 370
cm langur, flækti sig í netum Ebba AK og var sendur Hafrann-
sóknastofnun í heilu lagi. Var hann hafður til sýnis ásamt fjölda
annarra fiska á sjómannadaginn í Reykjavík árið 2011 og vakti
að vonum mikla athygli.
Náskata, Leucoraja fullonica
Málmey SK veiddi 82 cm langa náskötu á Selvogsbanka.
Hún er auðgreind frá öðrum skötum á því, að tvær samsíða
raðir um 50 gadda (þeir geta verið á bilinu 42-64) eru á hala
Sjaldgæfir fiskar á
Íslandsmi›um 2010
Fyrir nokkrum árum voru tveir togarasjómenn, báðir
nokkuð við aldur og nú komnir í land, sem voru mjög
iðnir við að tína til forvitnilega fiska og fá þá greinda
til tegundar. Þessi söfnun bar á land margan gullmol-
ann og afar mikilvægar upplýsingar um útbreiðslu
fjölda sjaldgæfra tegunda. Sem betur fer eru enn sjó-
menn sem nenna að standa í því að frysta og senda
inn til greiningar fiska sem þeim þykja forvitnilegir.
Það er svo að stærstur hluti þeirrar upplýsinga sem
fyrir liggja um sjaldséðar tegundir við Ísland eru komn-
ar frá sjómönnum fiskiskipaflotans, það verður seint
ofmetið mikilvægi þessara upplýsinga hvort sem um er
að ræða stórar sendingar eða staka fiska. Því til við-
bótar berast svo líka upplýsingar um fiska sem rekur á
land.
Síðasta áratug hefur hitastig í hafinu umhverfis Ís-
land verið hátt, miðað við staðsetningu landsins. Þessi
hlýnun sjávar á Íslandsmiðum hefur leitt til umtals-
verðra breytinga á útbreiðslu ýmissa fisktegunda við
landið. Þannig er makríll nú orðin nytjategund hér og
nokkrar fisktegundir með suðlægari útbreiðslu veiðst
nú árlega við Ísland eins og t.d. stóri bramafiskur.
Annað sem hefur gerst á sama tíma er að tegundir
sem áður héldu sig eingöngu við suðurströndina eru
nú farnar að sjást fyrir Norðurlandi. Skötuselur er
þekktasta dæmið, en það sama gildir um ýmsar sjald-
gæfari tegundir. Þannig veiddust bæði fjólumóri og
litla brosma fyrir Norðurlandi árið 2010.
Engin ný tegund barst til Hafrannsóknastofnunar
árið 2010, en ný tegund var greind sem veiddist fyrst
2009. Það eru mikilvægar upplýsingar sem felast í
fundi sjaldgæfra fiska og það á líka við þó fundurinn
sé ekki einstakur. Dæmi um nær einstakan fund árið
2010 má nefna rauðgreifa, en allar þær upplýsingar
sem bárust og getið er hér að neðan eru mikilvægar.
Öllum þeim sem færðu mér forvitnilega fiska árið
2010 eða tilkynntu um þá símleiðis eða í tölvupósti
eru sendar bestu þakkir fyrir.
Höfundur greinar-
innar er Jónbjörn
Pálsson,
sérfræ›ingur á
Hafrannsókna-
stofnuninni.
Nefhali, ný tegund á Íslandsmiðum.
Náskata sem Málmey SK veiddi á Selvogsbanka.
S J A L D G Æ F I R F I S K A R
10