Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.2012, Blaðsíða 11

Ægir - 01.01.2012, Blaðsíða 11
en miðlægu röðina vantar. Náskata getur orðið 120 cm löng. Hún veiðist einkum undan sunnanverðu landinu og hefur fengist á 30-1465 m dýpi sennilega heldur hún sig mest á um 100-500 m. Vogmær, Trachipterus arcticus Minna fréttist af vogmeyjum reknum á fjörur en síðustu ár, kann að vera að það þyki ekki fréttnæmt lengur. Þó fréttist af vogmeyjum á Ströndum og þær komu í þorskanet við Tjörnes og í Þistilfirði. Í leiðöngrum Hafrannsóknastofnunar veiddist vogmær aðallega á djúpslóð fyrir Suðvestur- og Vesturlandi. Sníkir, Echiodon drummondii Einn sníkir veiddist í leiðangri í mars á 150 m dýpi suðvest- ur úr Surtsey. Sníkir er mjósleginn botnfiskur sem verður mest um 30 cm langur. Hann lifir á 120-300 m dýpi og hér við land hefur hann eingöngu veiðst í hlýja sjónum undan Suðurlandi. Talið er að sníkir, einkum ungviðið, noti sæbjúgu sem dvalar- stað á daginn en yfirgefi þau og leiti sér fæðu á nóttunni. Svartskoltur, Brotulotaenia crassa Þrír fiskar af þessari tegund bárust Hafrannsóknastofnun ár- ið 2010. Tveir þeirra veiddust í flotvörpu á úthafskarfaslóð, Þerney RE veiddi einn í lok maí (61°46’ N - 29°11’ V) og Helga María AK annan í byrjun júní (61°55’ N - 29°17´V). Þann þriðja fékk Höfrungur III í botnvörpu í lok maí á grálúðuslóðinni vestur af Víkurál (65°40’ N - 28°16’ V). Það vantaði aftan á einn fiskinn, en hinir tveir voru 76 og 89 cm langir. Drumbur, Thalassobathia pelagica Þerney RE veiddi 31 cm langan drumb á úthafskarfaslóðinni suðvestur af Reykjanesi í lok maí. Í mars veiddist annar í Fax- adjúpi í leiðangri Hafrannsóknastofnunar, hann var 21 cm á lengd. Fjólumóri, Antimora rostrata Þorleifur EA fékk 63 cm langan fjólumóra í þorskanet við Grímsey (66°32.1’ N; 17°47.5´V). Fjólumóri veiðist öðru hvoru undan suður og vesturströnd Íslands, en er sjaldgæfur fyrir norðan og austan land. Hann er miðsævis-, botn- og djúpfiskur sem veiðst hefur á 350-3000 m dýpi. Litla brosma, Phycis blennoides Siggi Gísla EA fékk 65 cm langa litlu brosmu á línu á Kol- beinseyjarhrygg (66°48’ N; 18°30´V) í janúar og Þorleifur EA veiddi aðra í þorskanet við Grímsey (66°28’ N; 17°46´V) í febrúar. Hún var 68 cm löng. Litla brosma er nokkuð algeng á djúpmiðum suðaustan-, sunnan- og suðvestanlands. Hún hefur veiðst áður við Grímsey, en er sjaldséð undan Norðurlandi og einnig Austfjörðum. Lýr, Pollachius pollachius Sigurfari GK fékk um 100 cm langan lý í dragnót út af Hafn- arbergi í febrúar. Fleiri hafa þó veiðst, því alls var landað um 500 kg af þessari tegund árið 2010. Kjáni, Chaunax suttkusi Í mars veiddi Arnar HU kjána í botnvörpu á 538-544 m dýpi á suðvestur af Eldey (Melsekkur, 63°13’ N; 25°24’ V). Alls er vitað um 10 kjána sem veiðst hafa á Íslandsmiðum, á svæðinu frá Sneiðinni suður af Vestmannaeyjum vestur á svæðið djúpt suðvestan Eldeyjar og norður á karfaslóð djúpt undan Snæfells- nesi. Þessir fiskar veiddust á 300-900 m, flestir á 400-600 m dýpi. Rauðgreifi, Gyrinomimus sp. n. R Í júlí 2010 fékk Guðmundur í Nesi RE 45 cm langan rauð- greifa í botnvörpu á 1100-1200 m dýpi grálúðuslóðinni (65°29’ N: 28°46’ V). Rauðgreifinn er af ætt sægreifa, en þetta er mjög sjaldgæf tegund í heimshöfunum og fá eintök til á söfnum. Þetta er fjórði sægreifinn sem sjómenn hafa komið með á Haf- rannsóknastofnun og er afar merkilegur fengur. Allir hafa þess- ir rauðgreifar veiðst á 1000-1300 m dýpi á grálúðuslóðinni vest- ur af Víkurál. Rauðskinni, Barbourisia rufa Brimnes RE fékk rauðskinna í botnvörpu á Hampiðjutorginu (65°40’ N; 28°18’ V) í mars. Rauðskinni er ættingi rauðgreifans, en er nokkuð algengari tegund. Hér við land hefur hann fyrst og fremst veiðst í flotvörpu á úthafskarfaslóðinni, en þetta er sjötti fiskurinn sem vitað er um að hafi fengist í botntroll á grá- lúðumiðum vestur af landinu. Dökksilfri, Diretmichthys parini Í maí veiddi Höfrungur III AK einn dökksilfra í botnvörpu á 970 m dýpi á Hampiðjutorgi (65°40’ N - 28°16’ V). Rauðserkur, Beryx decadactylus Bergey VE fékk í október 53 cm langan rauðserk í botn- vörpu á Sneiðinni suðvestur af Surtsey (63°15’ N; 20°10’ V). Fagurserkur, Beryx splendens Arnar HU veiddi fagurserk í botnvörpu á 538-544 m dýpi suðvestur af Eldey (Melsekkur, 63°13’ N; 25°24’ V) í mars. Hér við land hefur fagurserkur einkum veiðst á svæðinu frá Litla- djúpi undan Suðausturlandi, suður og vestur á grálúðuslóð vestan Víkuráls. Fagurserkur er botn- og djúpfiskur sem veiðst hefur á 128-816 dýpi á Íslandsmiðum en er sennilega algeng- astur á 400-800 m dýpi. Hann hefur veiðst allt niður á 1300 m dýpi. Brynstirtla, Trachurus trachurus Frá júlí og fram í nóvember varð brynstirtlu vart á Íslands- miðum, einkum á Íslands-Færeyjahrygg, en einnig fyrir sunnan og vestan land. Stóri bramafiskur, Brama brama Líkt og undanfarin ár fréttist nokkuð af stóra bramafiski við Ísland. Einkum veiddist hann við sunnanvert landið, frá Skerja- djúpi og austur á Íslands-Færeyjahrygg, en einnig veiddist einn í Húnaflóa. Alls var landað um 50 kg af þessari tegund á árinu. Jeffreys kýtlingur, Buena jeffreysii Við rannsóknir í svonefndu togararalli í mars 2010 komu sex jeffreys kýtlingar úr maga þorsks á Eldeyjarbanka. Þessir fiskar voru 3-4 cm á lengd, en stærst verður tegundin einungis um 6 cm löng. Hér við land höfðu seiði jeffreys kýtlings fund- Svartskoltur sem Þerney RE veiddi á úthafskarfaslóð árið 2010. Jeffreys kýtlingur sem kom úr þorskmaga á Eldeyjarbanka. Rauðgreifi sem Guðmundur í Nesi RE fékk í botnvörpu á grálúðuslóðinni. S J A L D G Æ F I R F I S K A R 11

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.