Morgunblaðið - 08.12.2014, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 2014
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com
STURTUSÁPUSETT
Verð: 3.400 kr.
Sturtusápa 75 ml - 950 kr. | Sturtuolía 75 ml - 1.160 kr.
SVÍFÐU INN Í
JÓLAHÁTÍÐINA
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fljótlega eftir að komið var inn yfir
hálendisbrúnina blasti kraumandi
potturinn við okkur. Glóandi súlur
stóðu hátt til himins og í víðfeðmu
biksvörtu hrauninu sást víða í
rauða glóð. Útsýnið var eins og
best mátti verða og þegar komið
var að eldstöðinni sást beint í kvik-
una. Höfuðskepnurnar í ham og í
ljósaskiptunum varð andstæðu-
mynd elds og myrkurs skörp og
skýr.
Magnaðra en Etna
Fjölmenni var í ferð yfir eld-
stöðvarnar í
Holuhrauni sem
Flugfélag Íslands
stóð fyrir á laug-
ardag. Góður
hópur farþega
var um borð í
Fokker 50, en
eingöngu var selt
í gluggasæti vél-
arinnar svo far-
þegar gætu notið
útsýnis sem best. Rennt var í 3.000
feta hæð yfir eldgosið, en flug-
málastjórnin uppáleggur mönnum
að fara ekki lægra.
„Það er gaman að taka sveiflu
hér yfir. Svona býðst okkur ekki á
hverjum degi og þetta er í fyrsta
sinn sem ég sé gosið svona í návígi.
Það er hægt að mæla með svona
ferð,“ sagði Ragnar Árni Ragn-
arsson flugstjóri.
Farþegarnir í gosfluginu voru að
stórum hluta útlendingar. Einn
þeirra var Phil Collett frá Oxford í
Englandi. „Alveg frá því gosið hófst
hef ég fylgst af spenningi með
framvindu þess. Fyrst var talsvert
sagt frá því á BBC og Sky en svo
hefur sú umfjöllun fjarað út. Ég hef
því fylgst með þessu í gegnum net-
ið og íslenskar vefmyndavélar. Fyr-
ir tíu dögum ákvað ég svo að koma
til Íslands, til að upplifa þetta á eig-
in skinni. Gat ekki látið þetta fram
hjá mér fara ,“ sagði Collett og
benti út um glugga vélarinnar.
„Sjáðu litadýrðina í þessu. Þetta er
gjörlega óviðjafnanlegt. Jafnvel
magnaðra en til dæmis þegar ég sá
til gossins á Etnu á Sikiley fyrir
nokkrum árum.“
„Þetta er stórkostlegt ævintýri,“
segir Ragnheiður Kolviðsdóttir,
einn farþega. „Ég hef verið í fjalla-
ferðum frá því ég var stelpa og hef
því áhuga á landinu. Jarðhræring-
arnar í Bárðarbungu hafa verið
langvarandi svo ég hef orðið aðeins
ónæm fyrir fréttum af þeim. En að
fara í þessa ferð, sem kom upp með
skömmum fyrirvara, er gaman og
frásögn jarðfræðingsins upplýsir
mig um margt sem ég vissi ekki
fyrir. En útsýnið verður sjálfsagt
eftirminnilegast, andstæðurnar og
litirnir eru eins og fallegasta skart-
gripasýning.“
Fallegt í froststillu
„Í froststillunni er landið fallegt.
Samspil litanna er ótrúlegt;
rauðglóandi eldur í katlinum, svart
hraun, blátt gas og hvítur snjór Að
horfa á þetta skapar sérstaka til-
finningu,“ sagði Sigurður Anton
Ólafsson. Eftir að hafa fylgst með
fréttum af gosinu segist hann telja
að fjölmiðlar hafi gefið góða og
raunsanna mynd af því.
„En upplifunin að sjá þetta með
berum augum er stórkostleg. Sjálf-
sagt höfum við tekið hér tíu bunur
yfir gígnum og hrauninu og ljós-
myndirnar sem ég tók skipta
hundruðum,“ sagði Sigurður Anton
á heimfluginu, en leiðangurinn tók
tæpa tvo tíma og þótti lukkast vel.
Logarnir í Holuhrauni gefa öðrum
aðventuljósum ekkert eftir.
100 daga gosafmæli
Eldgosið í Holuhrauni hófst 31.
ágúst sl. og því eru í dag, 8. desem-
ber, 100 dagar frá upphafi þess.
Óhætt er að segja að umbrot sem
þessi séu alltaf áhugaverð. Sem
kunnugt er eru ferðalögum á slóðir
gossins miklar skorður settar, enda
með öllu ástæðulaust að storka
náttúruöflunum. Því má segja að
flugið sé nærtækasti og besti kost-
urinn vilji fólk líta umbrotin með
eigin augum. Nokkrir hafa gert út
slíkar ferðir, meðal annars Flug-
félag Íslands. Í september seldist
upp í útsýnisflug á þess vegum á
mettíma svo ákveðið var að end-
urtaka leikinn. Önnur ferð er
áformuð að um næstu helgi, 13.
desember.
Samspil litanna er ótrúlegt
Andstæðumynd elds og myrkurs í ljósaskiptum Útlendingar jafnt sem Íslendingar í gluggaröð-
inni Í útsýnisflugi með Flugfélag Íslands yfir Holuhrauni þar sem sást beint í logandi kvikuna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Gígur Talið er að nú komi um það bil 100 rúmmetrar af glóandi hrauni á sekúndu úr eldkatlinum Baugi. Elfurin sem
rennur myndar nú orðið hraun sem er 76 ferkílómetrar, sem er það mesta sem sést hefur á Íslandi síðustu aldir.
Flugstjórinn Ragnar Árni Ragnarsson og kraumandi eldurinn í baksýn.
Phil Collett
Sigurður Anton
Ólafsson
Ragnheiður
Kolviðsdóttir
„Það er ekki slorlegt að sjá þetta,“
sagði Sigrún Tómasdóttir sem var
leiðsögumaður í flugferðinni yfir
Holuhraun. Hún er á lokaári jarð-
fræðináms við Háskóla Íslands og
hefur fylgst vel með eldgosinu. Þótt
margir jarðfræðingar og fleiri hafi
gert sér ferð að eldstöðvunum að
undanförnu var þetta fyrsta flugferð
Sigrúnar þangað í þessum tilgangi.
Hún segir það hafa verið skemmti-
lega og góða áskorun fyrir sig að
lýsa jarðfræði svæðisins fyrir far-
þegum.
Tækifæri í náminu
„Gosið er einstakt tækifæri í jarð-
fræðináminu. Í Háskóla Íslands, á
námskeiði Páls Einarssonar um
virkar jarðskorpuhreyfingar, byrja
kennslustundir á því að rætt er um
framvindu gossins,“ segir Sigrún.
„Mér finnst mjög áhugavert að
fylgjast með framgangi kvikunnar í
bergganginum og því hvernig Bárð-
arbunguaskjan hefur sigið, eins og
nákvæm mælitækni hefur sýnt.“
Að því er fram kom í erindi Sig-
rúnar um borð í flugvélinni er flæði
hrauns úr gosinu nú um 100 rúm-
metrar á sekúndu, helmingi minna
en var í upphafi. Hraunið sé nú orðið
um 76 ferkílómetrar að flatarmáli og
fremur að þykkna en stækka. „Það
er áhugavert að bera þetta gos sam-
an við Surtseyjargosið 1963. Það gos
varaði í þrjú og hálft ár og í því kom
upp rúmlega einn rúmkílómetri af
gosefnum, svipað og í yfirstandandi
gosi en það hefur einungis staðið í
þrjá mánuði. Ef ekkert breytist er
líklegt að þetta gos haldi áfram í
marga mánuði,“ sagði jarðfræði-
neminn.
Frásögn sína byggði Sigrún meðal
annars á upplýsingum frá Jarðvís-
indastofnun Háskóla Íslands, Veð-
urstofunni, almannavarnadeild Rík-
islögreglustjóra og öðrum eftir
atvikum. Fræðimenn og aðrir eru
stöðugt á vaktinni bæði til þess að
afla vísindalegra upplýsinga um
eldsumbrotin og eins til þess að
gæta alls öryggis, því enginn veit
hver framvinda þessara náttúru-
hamfara gæti orðið.
Á besta mögulega stað
Upptök eldsumbrotanna eru í
Bárðarbungu, en í öskjunni þar hafa
verið stöðugar jarðhræringar alveg
frá því 16. ágúst sl.
„Gosið í Holuhrauni er á einum af-
skekktasta stað á Íslandi, fjarri
byggðum svæðum og mikilvægum
mannvirkjum. Við getum því sagt að
þetta sé besta mögulega gosið tengt
þessari eldstöð Almennt séð er þetta
mjög þægilegt gos því það er lítil
sem engin gjóskumyndun sem gæti
truflað flugumferð. Það er ástæðan
fyrir því að við getum verið hér.
Þetta gos veldur hins vegar mikilli
mengun. Í því samhengi er mjög
gott hversu langt gosstöðvarnar eru
frá mannabyggðum. Mengunar hef-
ur orðið vart á öllu landinu en vel er
fylgst með henni,“ sagði Sigrún
Tómasdóttir en meðal farþega var
gerður góður rómur að frásögn
hennar.
Áskorun að lýsa fyrir farþegum
því sem fyrir augu bar í fluginu
Framgangur kviku áhugaverður, sagði jarðfræðineminn
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Leiðsögn Sigrún Tómasdóttir var í
öftustu sætaröð með míkrófóninn.