Morgunblaðið - 08.12.2014, Síða 10

Morgunblaðið - 08.12.2014, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 2014 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Já, ég tók gömlu spáspilin mín með mér yfir Atlantshafið og ég ætla að kíkja í spil fyrir vinkonu mína hér ytra,“ segir Guðríður Haraldsdóttir sem greinilega ferðast með ýmislegt í skjóðunni sinni, en hún sendi ný- lega frá sér bókina Galdraskjóða Gurríar, þar sem finna má hvers- konar leiðbeiningar um galdra, spá- dóma, liti, steina, draumráðningar og ótalmargt fleira. Gurrí reynist vera stödd á öðru tímabelti í henni Ameríku þegar blaðamaður nær sambandi við hana. „Vinir mínir söfnuðu fyrir ferð hingað og gáfu mér í afmælisgjöf, leynileg söfnun fór fram á Facebook undir heitinu: Landhreinsunarátakið Gurrí burt,“ segir hún og hlær. „Þetta kom mér mjög á óvart, ég er alveg í skýj- unum, enda hef ég ekki farið til út- landa í mörg ár.“ Náði í miðlabækur fyrir ömmu sína á bókasafnið Þegar Gurrí er spurð að því hvort hún sé rammgöldrótt og á kafi í hverskonar kukli og dulrænum málum, þvertekur hún fyrir það. „Ég hef fyrst og fremst gaman af þessu öllu saman. Ég er jarðbundin manneskja og trúi lítið á svona hluti, ég lít á þetta sem samkvæmisleik. Ég vil ekki gera lítið úr þessu, en fyrir mér er þetta skemmtileg dægradvöl. Ég ólst vissulega upp með þessu. Það er svolítið um næm- leika í föðurfjölskyldu minni, Anna föðursystir mín sá lengra en nef hennar náði og pabbi kíkti stundum í bolla, hjá mér sá hann yfirleitt pen- inga eða tengdason fyrir sig,“ segir Ég hef enga dul- ræna hæfileika Hún segist vera jarðbundin manneskja og allt það sem leynist í hennar galdra- skjóðu sé fyrst og fremst skemmtileg dægradvöl. En í föðurfjölskyldu hennar er þó svolítið um næmleika, frænka sem sá lengra en nef hennar náði og pabbi hennar kíkti stundum í bolla. Sjálf fór hún til spákvenna þegar hún var unglingur og hún lumar á gömlum Tarot-spilum sem hún dregur stundum upp úr skjóðu sinni. Ljósmynd/Hákon Davíð Björnsson Spilaspá Þegar tvö til fjögur spil með sama gildi liggja saman hefur það sérstaka merkingu. Þrjár drottningar standa fyrir gesti og samræður. Ljósmynd/Hákon Davíð Björnsson Bollaspádómar Að spá í bolla hefur tíðkast um alllangt skeið á Íslandi. Hin ýmsu tákn og myndir birtast í bollanum eftir að drukkið er úr honum. Nú þegar dimmasti tíminn er genginn í garð og hátíðir framundan, er gam- an að lífga upp á með lifandi ljósi. En opinn eldur býr yfir hættu og aldrei er of varlega farið. Á heimasíðu Sjó- vár eru góð ráð og ábendingar í tengslum við útikerti. Þar sem úti- kerti innihalda mikið af vaxi er mikil- vægt að þeim sé ekki komið þannig fyrir að snjór eða bleyta geti lekið of- an í stjakann og orsakað sprengingu. Setjið aldrei kerti í tröppur eða þrep við inngang því þeir sem ganga um geta rekið tána í stjakann og heitt, bráðið vaxið slettist upp fótleggi við- komandi með alvarlegum afleið- ingum. Öruggast er að hafa kertin í stöðugum stjökum sem ekki velta um koll þótt fólk rekist í þá. Best er að staðsetja þá vel frá gönguleiðum og byggingum. Setjið útikerti ekki á tré- pall, garðhúsgögn eða annað efni sem brennur auðveldlega. Vefsíðan www.sjova.is Morgunblaðið/Rúnar Þór Lifandi ljós Sannarlega fallegt í myrkrinu en nauðsynlegt að huga að öryggi. Farið varlega með útikertin Alltaf er nú skemmtilegra að borða það sem gestgjafinn hefur búið til sjálfur en ekki keypt í pakka, til dæmis ísinn á jólunum. Margir hafa þá hefð í þetta eina skipti á ári, að búa til jólaísinn. Og gaman getur verið að skipta um uppskrift, breyta til, svo heim- ilisfólkið geti látið sig hlakka til að gæða sér á alveg nýjum ís sem bú- inn er til heima. Á netheimum er hægt að nálgast uppskriftir og óhætt er að mæla með einni nýrri á vefsíðunni modernwifestyle.com, en sú uppskrift inniheldur grasker, heldur betur frumlegt og skemmti- legt. Nú er lag að prófa eitthvað nýtt! Endilega … … búið til heimagerðan ís Graskersís Vafalítið hnossgæti. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst YFIR 100 FRÍAR SJÓNVARPSSTÖÐVAR MEÐ GERVIHNATTABÚNAÐI FRÁ OKKUR Afnemumvörugjöld 20% verðlækkun 25ÁRA 1988-2013 Í bókinni hennar Gurríar er vitnað í tvo draumspekinga sem réðu drauma árum saman fyrir lesendur Vikunnar. Þar kemur m.a fram að kettir séu alls ekki slæm dýr í draumi, það fari allt eftir hegðun kattarins hver merk- ingin er. Hestar í draumum eru tengdir kynorku, svartir hestar eru ekki mjög gott draumtákn og tákna holdlegar fýsnir án ástar. Þá er ráð að skoða kynhegðun sína. Litir skipta miklu máli. Bleikur litur táknar alls ekki alltaf dauða, bara í sumum tilfellum. Hann getur líka táknað mikla heppni í lífinu. Hvítur litur getur táknað hreinleika, en líka sorg, fer alltaf eftir öðrum táknum. Blár er alltaf fyrir gleði, grænn fyrir grósku, en líka eitthvað sem er ekki fullþroskað, getur táknað fólk sem hefur ekki nægilegan þroska. Fag- urgrænn litur er bestur og getur m.a. táknað góðar fréttir. Rauður litur er mjög oft aðvörun um að passa skap- ið, hann getur táknað hættu í sumum tilfellum en líka glaðlyndi og lífskraft. Hreinn sólargulur litur er tákn um djúpa visku og kærleika. Svartur hestur táknar holdlegar fýsnir án ástar Hvað merkir að dreyma dýr og hvað merkja litir í draumi? Morgunblaðið/Eyþór Hestar Í draumum eru þeir tengdir kynorku, kannski er þessi staddur í draumi?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.