Morgunblaðið - 08.12.2014, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 2014
VIÐTAL
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Þessi skerðing kemur mun harðar
niður á okkur en Þjóðkirkjunni að ég
tel. Það er vegna þess að af þessum
tekjum þurfum við meðal annars að
greiða laun presta,“ segir Jóhann
Guðni Reynisson,
formaður safn-
aðarstjórnar Frí-
kirkjunnar í
Hafnarfirði. Lagt
er til í fjárlaga-
frumvarpi 2015 að
sóknargjöld
hækki tímabundið
um 33,4 milljónir
og í heild um 50
milljónir. Á móti
er lögð til 29,3
milljóna lækkun á framlagi til sókn-
argjalda. Þetta gildir um öll trúfélög.
„Án þess að ég sé neitt að ráðast á
Þjóðkirkjuna, þá fær hún tekjur
sambærilegar okkar auk þess sem
hún hefur aðgang að 18,5% í viðbót
sem bætast við í gegnum jöfn-
unarsjóð sókna. Þar að auki greiðir
ríkið laun presta Þjóðkirkjunnar,“
segir hann.
Gjöld óháð söfnuðum
Fyrirhuguð hækkun sóknargjalda
er að margra mati langt frá því að
vera í samræmi við tillögur innanrík-
isráðherra um leiðréttingu gjald-
anna með tilliti til verðlagsþróunar.
„Það voru gefin fyrirheit á grund-
velli skýrslu sem var unnin fyrir rík-
isstjórnina og á henni byggði hún
sínar áætlanir um að skila til baka
því sem að hefur verið skert. Ef rík-
isstjórnin ætlar ekki að standa við
það, þá er það mikið áfall. Við erum
að sinna þúsundum í þessum litla
söfnuði. Við skírum, fermum, giftum
og jörðum. Þetta kostar allt,“ segir
Jóhann Guðni.
„Okkar óskir um þetta snúa þó
ekki að Þjóðkirkjunni heldur rík-
isvaldinu og hvernig það innheimtir
sóknar- og safnaðargjöld. Það ætti
að sjálfsögðu vera þannig að allir
færu eftir sömu reglum og að trú-
félög sætu við sama borð. Við erum
ekki að sækjast eftir því að ríkið fari
að greiða prestunum okkar laun. Við
viljum bara að þessi félagsgjöld séu
þau sömu, óháð söfnuðum,“ segir
hann ennfremur.
Skorar á ríkisstjórnina
Jóhann Guðni er að sama skapi
gagnrýninn á jöfnunarsjóðinn sem
Þjóðkirkjan nýtur góðs af.
„Við erum með erindi um þetta
hjá innanríkisráðuneytinu. Þetta er í
raun bara viðbótarframlag sem að-
eins Þjóðkirkjan hefur fengið. Þetta
er reglugerð í lögum um sóknargjöld
og er sjóðnum ætlað að styðja við
kirkjur sem þurfa að standa í við-
haldsverkefnum. Við erum söfnuður
sem byggðum kirkju 1913 og þurf-
um einnig á viðhaldi að halda en
fáum engan slíkan stuðning og sitj-
um ekki við sama borð að þessu leyti
og Þjóðkirkjusöfnuðirnir. Það er
bara eðlilegt að þessi 18,5% dreifist
niður á söfnuði, sóknir og öll trú-
félög,“ segir Jóhann Guðni og skorar
að lokum á ríkisstjórnina og fjár-
lagavaldið að standa við gefin fyr-
irheit.
Kemur mishart
niður á trúfélögum
Segir ríkisstjórnina ekki standa við gefin fyrirheit Frí-
kirkjan í Hafnarfirði vill að öll trúfélög sitji við sama borð
Morgunblaðið/Elva Björk
Trúfélög Fermingarbörn á tröppum Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Kirkjan
var byggð árið 1913 og í söfnuðinum eru um sjö þúsund manns.
Jóhann Guðni
Reynisson
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Alhliða þjónusta fyrir vökvadælur
og vökvamótora
Sala - varahlutir - viðgerðir
Fjárveitingar til símenntunarstöðva
voru í ár 263,3 milljónir króna, en á
næsta ári verða þær 265,9 milljónir.
Er þetta meðal þess sem kemur
fram í svari mennta- og menningar-
málaráðherra við fyrirspurn Sigríð-
ar Ingibjargar Ingadóttur, þing-
manns Samfylkingar, um fram-
haldsfræðslu hér á landi.
Þrír staðir með yfir 30 milljónir
Þær þrjár stöðvar sem fengu yfir
30 milljónir króna hver í fjárveit-
ingu á þessu ári eru Þekkingarnet
Austurlands, með 57 milljónir,
Þekkingarsetur Þingeyinga, með
38,8 milljónir, og Farskóli Norður-
lands vestra með 30,8 milljónir.
Verða þessar símenntunarstöðvar
jafnframt á toppi listans á næsta ári
samkvæmt svari.
Þá segir einnig í svari ráðherra
til þingmanns að framhaldsfræðsla
sé skilgreind í lögum „sem hvers
konar nám, úrræði og ráðgjöf sem
er ætlað að mæta þörfum einstak-
linga með stutta formlega skóla-
göngu að baki og er ekki skipulagt
á grundvelli laga um framhalds-
skóla eða háskóla. Alþingi veitir fé
af fjárlögum til Fræðslusjóðs sem
úthlutar framlögum til framhalds-
fræðslu og viðfangsefnum er henni
tengjast“.
Fjárveitingar til símenntunarstöðva 2001–2015
milljónir
kr.
* Samkv. Fjárlagafrumvarpi 2015
300
250
200
150
100
50
0
20
01
20
06
20
11
20
02
20
07
20
12
20
03
20
08
20
13
20
04
20
09
20
14
20
05
20
10
20
15
*
Heimild: Mennta- og menningarmálaráðuneytið
Alls 265,9 millj-
ónir í símenntun
Fjárveitingar aukast á milli ára
Fjöldi fólks sótti miðbæinn á Ak-
ureyri á kertakvöldi um helgina.
Voru margir komnir langt að til
þess að njóta stemningarinnar.
Veðrið lék við gesti miðbæjarins
og var afar fallegt að sjá hann upp-
lýstan með kertum í nýföllnum jóla-
snjónum, segir í tilkynningu frá
Viðburðastofu Norðurlands.
Kvæðamannafélagið Gefjun kvað
jólavísur og kvæði í anda liðinna
jóla og meðlimir Ungmennaráðs
Akureyrar léku einnig fyrir gesti
bæjarins. Á laugardeginum var
ljósmyndasýning í Minjasafninu og
jólasveinar skemmtu gestum mið-
bæjarins. Þá buðu miðbæjarmenn
upp á ókeypis myndatöku með jóla-
sveinunum í Krónunni. Áhuga-
ljósmyndarinn Linda Ólafsdóttir
tók myndirnar sem má nálgast á fa-
cebooksíðu miðbæjarins, www.fa-
cebook.com/akmidbaer.
Ungmennaráð Akureyrar hefur
slegist í för með Viðburðastofu
Norðurlands og Miðbæjarsamtök-
unum um að skapa stemningu í
bænum á aðventunni. Munu ung-
menni troða upp víða um bæinn
fram að jólum.
Akureyri Jólalegt var um að litast í miðbænum á Akureyri um helgina og
kaupmenn með fjölbreytta dagskrá fyrir gesti og gangandi á aðventunni.
Komu langt að í jóla-
stemningu á Akureyri
„Ég er auðmjúkur og þakklátur
þjóðinni minni og stoltur af því að
henni þyki jafnvænt um lagið mitt
og mér þykir um hana,“ segir
Bjartmar Guðlaugsson en lag hans,
Þannig týnist tíminn, var um
helgina kjörið óskalag þjóðarinnar
í samnefndum sjónvarpsþætti á
RÚV. Páll Rósinkranz flutti lagið
en það varð fyrst vinsælt í flutningi
Lay Low og Ragga Bjarna. Bjart-
mar segir Pál hafa sett lagið í aðra
vídd. „Fyrir höfund er það einmitt
þetta sem skiptir máli, hvernig aðr-
ir fara með lögin manns. Það er
alltaf gaman að
láta heims-
klassasöngvara
syngja efnið
manns,“ sagði
Bjartmar.
Í öðru sæti í
þættinum varð
lagið Ást eftir
Magnús Þór Sig-
mundsson og
Sigurð Nordal.
Söknuður, eftir Jóhann Helgason
og Vilhjálm Vilhjálmsson varð í 3.
sæti.
Bjartmar með óskalag þjóðarinnar
Bjartmar
Guðlaugsson