Morgunblaðið - 08.12.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 2014
Það er ekkert nýtt að með því aðslengja „ný“ framan við þekkt
hugtök má fá fram breytt hughrif,
betri og verri eftir atvikum.
Tony Blair er sig-ursælasti leið-
togi breska Verka-
mannaflokksins,
með þeim fyrirvara
þó, að Blair taldi
flokk sinn hafa end-
urskapast með sig í
forystu og nafn
flokksins tæki mið
af því. Nýi-
Verkamannaflokk-
urinn skyldi hann
kallaður. Þetta
„svínvirkaði“ hjá
Blair.
Hvenær nútíma-væðing flokksins tók enda er
óljóst, en nú er Verkamannaflokk-
urinn aftur berstrípaður.
Stundum er „ný“ notað sem nei-kvætt forskeyti. Þannig virtist
„nýfrjálshyggjan“ vera enn verra
fyrirbæri í munni þeirra, sem hat-
ast höfðu við frjálshyggjuna. Þetta
tal smitaðist með óljósum hætti inn
í Sjálfstæðisflokkinn, sem þótti þó
veikari fyrir frjálshyggju en aðrir.
Kappinn Albert Guðmundsson bauð
sig fram gegn Geir Hallgrímssyni í
formannssæti þess flokks og sagð-
ist gera það m.a. vegna þess að Geir
hefði svikið frjálshyggjuna. Albert
fór hins vegar síðar úr flokknum
m.a. með þeirri yfirlýsingu að Þor-
steinn Pálsson hefði gengið ný-
frjálshyggjunni á hönd.
Nú síðast tilkynnti Löfven, átta-vikna forsætisráðherra Svía,
að þriðji stærsti flokkur landsins,
Svíþjóðardemókratar væru „nýfas-
istar“. Stjórnmálaskýrendur segja
að það orð noti Löfven vegna þess
að of langt þætti gengið að kalla
þingflokk í Svíþjóð „fasista“.
Tony Blair
Notað og nýtt
STAKSTEINAR
Stefan Löfven
Veður víða um heim 7.12., kl. 18.00
Reykjavík -5 heiðskírt
Bolungarvík -1 skýjað
Akureyri -3 snjókoma
Nuuk -3 skafrenningur
Þórshöfn 1 skúrir
Ósló 3 skýjað
Kaupmannahöfn 5 skúrir
Stokkhólmur 3 skýjað
Helsinki 3 skýjað
Lúxemborg 2 skúrir
Brussel 5 skýjað
Dublin 5 léttskýjað
Glasgow 3 skýjað
London 8 léttskýjað
París 3 alskýjað
Amsterdam 7 skúrir
Hamborg 5 skýjað
Berlín 5 skýjað
Vín 5 skúrir
Moskva -2 alskýjað
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 8 heiðskírt
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 11 léttskýjað
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg -2 alskýjað
Montreal -10 léttskýjað
New York 3 heiðskírt
Chicago 1 alskýjað
Orlando 21 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:04 15:37
ÍSAFJÖRÐUR 11:45 15:06
SIGLUFJÖRÐUR 11:29 14:47
DJÚPIVOGUR 10:41 14:58
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
mánudaginn 8. desember kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Þórarinn B. Þorláksson
Á uppboðinu verður gott úrval
verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu
meistaranna.
Jólauppboð
í Gallerí Fold
Forsýning í Gallerí Fold
mánudag kl. 10–17
Hægt er að skoða
uppboðsskrána á myndlist.is
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Byggðaráð Skagafjarðar hefur sam-
þykkt að taka allt að 300 milljóna
króna lán hjá Kaupfélagi Skagfirð-
inga. Lánið er tekið til að endurfjár-
magna annað lán sem sveitarfélagið
tók hjá kaupfélaginu.
Stefán Vagn Stefánsson, formaður
byggðaráðs, segir það lán hafa verið
tekið þegar ráðist var í framkvæmd-
ir við Árskóla á Sauðárkróki og auk-
ið við kennslurými.
Lánið sem um ræðir er vaxtalaust
og segir Stefán sveitarstjórnina hafa
ákveðið á sínum tíma að taka umrætt
lán, enda hafi Kaupfélag Skagfirð-
inga boðist til að lána sveitarfélaginu
meðan á byggingartímanum stæði
og einnig vaxtalaust lán til fimm ára
eftir að byggingartímanum lyki.
Fyrra lánið hljóðar upp á tæplega
500 milljónir króna og hefur rúmlega
helmingurinn af því láni verið
greiddur eða um 300 miljónir króna.
Stefán Vagn segir því að nú sé komið
að endanlegu uppgjöri vegna fyrra
lánsins.
Vaxtalaust lán
frá kaupfélaginu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sauðárkrókur Lánið er tekið til að
greiða fyrra lán frá kaupfélaginu.
Skagafjörður tekur 300 milljóna kr. lán
Útsvarið í Ásahreppi verður lækk-
að niður í 12,44% árið 2015. Það er
lágmarksútsvar samkvæmt áætlun
frá Sambandi íslenskra sveitarfé-
laga. Þetta var meðal þess sem var
samþykkt í fjárhagsáætlun fyrir ár-
in 2015-18 í sveitarstjórn Ása-
hrepps nýverið. Fjárhagsáætlunin
var samþykkt samhljóða.
Þá er stefnt að því að sveitarfé-
lagið verði skuldlaust með öllu árið
2017.
90 milljónir í ljósleiðara
Sveitarfélagið mun fara í ríflega
90 milljóna króna fjárfestingu í
ljósleiðaranum á tveimur árum. Þá
voru staðfest fyrri áform um að
lækka leikskólagjöld um 50% og að
elsti árgangur leikskólans verði
gjaldfrjáls.
Áætlað er að fasteignaskatt-
stekjur árið 2015 verði um 124
milljónir króna. Þar af er áætlun
fasteignagjalda vegna Búðarháls-
virkjunar 22 milljónir króna.
Reiknað er með óbreyttum íbúa-
fjölda árin 2015-2017.
Ásahreppur
skuldlaus 2017
Útsvar lækkað niður í lágmarkið
Skuldlaus Ásahreppur stefnir að
því að verða skuldlaus árið 2017.
Brotist var inn í
sölubása í Jóla-
þorpinu í Hafn-
arfirði um
helgina, að öllum
líkindum á laug-
ardagskvöldið.
Tilkynnt var um
innbrotið til lög-
reglu í gærmorg-
un. Spenntir
voru upp lásar í
11 básum af 20 á svæðinu. Um er að
ræða sölubása með ýmsum sölu-
varningi tengdum jólunum.
Marín G. Hrafnsdóttir, menning-
armálafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar,
segir tjónið ekki hafa verið mikið,
enda tóku margir mestu verðmætin
með sér heim yfir nóttina. Selj-
endur létu innbrotið ekki á sig fá og
var Jólaþorpið opnað á réttum tíma
í gær, eins og ekkert hefði í skorist.
Spenntu upp lása
á 11 básum í Jóla-
þorpinu í Hafnarfirði
Hátíð Jólaþorpið
í Hafnarfirði.