Morgunblaðið - 08.12.2014, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 2014
Á vefnum dokt-
or.is segir eft-
irfarandi um kíg-
hósta:
„Bakteríusýking
sem veldur
slæmum lang-
varandi hósta.
Hann er nú sem
fyrr hættulegur
ef börn undir 6 mánaða aldri fá
hann þar sem þau hafa þrengri
loftvegi en eldri börn og seigt
slímið gerir þeim erfitt að ná
andanum.“
Samkvæmt Vísindavef Há-
skóla Íslands hefur útbreiðsla
sjúkdómsins farið vaxandi „síð-
ustu 20 árin og telur Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin að á milli
20-40 milljónir tilfella komi upp
árlega í heiminum og þá aðallega
í þróunarlöndum.“ Þá segir að á
fyrri hluta 20. aldar hafi þús-
undir látist af völdum kíghósta
en með tilkomu bóluefnis hafi
dauðsföllum farið fækkandi.
Fækkar
dauðsföllum
BÓLUSETNING MIKILVÆG
Þórólfur
Guðnason
Áætlað er að halda hér á landi
Norðurlandameistaramót nítján
ára og yngri árið 2016 en mótið
var síðast haldið hér á landi árið
2012. Þá var það haldið á Ak-
ureyri en Jónas segir það ekki
vera inni í myndinni að þessu
sinni.
„Vandamálið við Akureyri er
takmarkað gistirými. Það verða
fimm hundruð keppendur sem
taka þátt í mótinu 2016 og gisti-
rými er hvergi nægjanlegt nema á
höfuðborgarsvæðinu. Eins og
staðan horfir, þá erum við ekki
gildir þátttakendur í alþjóðlegu
samstarfi fyrr en við fáum annan
átta brauta völl í Reykjavík,“ seg-
ir Jónas.
„Annars hefur ÍR setið á hak-
anum hvað varðar fjármagn til
uppbyggingar og félagið sjálft
setti frjálsíþróttirnar í forgang,
það finnst mér vera ákveðin tíma-
mót. Oftast hafa félög sett knatt-
spyrnuvöll, stúku og annað slíkt í
fyrsta sætið svo ÍR er að vissu
leyti að brjóta þarna blað. Þetta
kemur til með að skapa þeim gíf-
urleg sóknarfæri sem og íþrótt-
inni í heild,“ segir hann.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Því ber náttúrlega að fagna að
það rísi annar frjálsíþróttavöllur í
Reykjavík. Hinsvegar leysir þetta
ekki okkar alþjóðlegu skuldbind-
ingar eða þarfir,“ segir Jónas Eg-
ilsson, framkvæmdastjóri FRÍ.
Borgarráð samþykkti nýverið að
hafinn yrði undirbúningur að
hönnun frjálsíþróttavallar ÍR í
Suður-Mjódd.
Borgarráð samþykkti jafnframt
að 50 milljónum kr. yrði varið í
framkvæmdaáætlun 2015 vegna
verkefnisins. Von er á að fram-
kvæmdir hefjist á næsta ári.
ÍR að brjóta blað
„Völlurinn verður ekki tilbúinn
fyrir Smáþjóðaleikana sem haldnir
verða næsta sumar. Þegar kemur
að Evrópukeppnum landsliða og
Norðurlandameistaramótum, sem
við erum auðvitað þátttakendur í
og þurfum að halda, þá er sex
brauta völlur ekki nægjanlegur.
Völlurinn sem rís í Suður-Mjódd
mun því ekki nýtast undir slíkt
mót,“ segir hann.
Nýr völlur ÍR
nýtist ekki í
alþjóðleg mót
Framkvæmdastjóri FRÍ segir átta
brauta völl nauðsynlegan í Reykjavík
Þörf Hlaupabraut sem lögð verður í Breiðholti nægir ekki fyrir alþjóðleg mót.
Morgunblaðið/Eva Björk
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Við vitum að ekki er hægt að útrýma kíghósta þar
sem við búum ekki yfir bóluefni sem getur útrýmt
bakteríunni eins og flest önnur bóluefni gera,“ seg-
ir Þórólfur Guðnason, yfirlæknir á sóttvarnasviði
Embættis landlæknis og settur sóttvarnalæknir.
Tíðni kíghóstatilfella jókst fyrir um tveimur árum
en Þórólfur segir tilfellum hafa fækkað aftur en þó
sé sjúkdómurinn alltaf viðvarandi.
„Við vitum um kosti og galla bólusetningar gegn
kíghósta. Kostirnir eru þeir að bóluefnið virkar í
ákveðinn árafjölda hjá fullbólusettum ein-
staklingum. Það hættir þó að virka að lokum og því
þarf jafnvel að bólusetja einstakling oftar en einu
sinni á lífsleiðinni. Bóluefnið er einfaldlega því mið-
ur ekki nógu gott miðað við önnur bóluefni. Það
verður bara að játast,“ segir hann.
Vernd bóluefnisins rennur út
Þórólfur kveður jafnframt ekki sjást fyrir end-
ann á vandamálinu þar sem engin ný bóluefni séu í
burðarliðnum.
„Hér áður fyrr var notað bóluefni gegn kíghósta
sem var virkara en það hafði meiri aukaverkanir.
Menn hættu því að nota það og tóku upp þetta bólu-
efni sem við notum í dag. Það hefur í för með sér
minni aukaverkanir en er ekki eins virkt,“ segir
hann.
„Vernd bólusetningarinnar rennur því út á
nokkrum árum en það er mismunandi eftir því
hvaða tegund af kíghóstabóluefni við erum að tala
um hversu langur sá tími er. Þessvegna gerist það
að unglingar og fullorðnir geta fengið kíghósta í til-
tölulega vægu formi þrátt fyrir að hafa verið bólu-
Kíghóstinn alltaf viðvarandi
Settur sóttvarnalæknir segir verndandi áhrif bólusetningar gegn kíghósta
þverra á nokkrum árum Fullorðnir einstaklingar geta smitað ungbörn
Morgunblaðið/Kristinn
Hósti Börn yngri en sex mánuða eru sérstaklega
viðkvæm fyrir kíghóstanum.
settir sem börn. Þeir einstaklingar geta þá líka
haldið áfram að smita yngstu börnin, sem er öllu al-
varlegra. Við vitum að kíghóstinn er alvarlegastur
hjá börnum á fyrsta ári og því er allt gert til þess að
minnka líkurnar á því að þau fái sjúkdóminn. Við
fórum því út í það fyrir mörgum árum að bólusetja
unglinga, sem nú eru bólusettir við fjórtán ára ald-
ur. Við höfum líka hvatt til þess, þegar fullorðnir
einstaklingar eru bólusettir, að þá sé notað bóluefni
sem innihaldi einnig vörn gegn kíghósta. Þannig
má reyna að hindra útbreiðslu sjúkdómsins hjá full-
orðnum,“ segir Þórólfur.
Mikilvægt að bólusetja
„Tíðni kíghóstatilfella er mismunandi eftir lönd-
um og aldri. Hér á landi hefur barn ekki látist úr
kíghósta mjög lengi þó sum börn hafi fengið sjúk-
dóminn og þurft að liggja á spítala í langan tíma.
Við höfum verið með ákveðnar leiðbeiningar í því
skyni að vernda þessi yngstu börn en þar ber helst
að nefna bólusetningu samkvæmt því skema sem er
við lýði hér á landi,“ segir hann.
„Það er nauðsynlegt að hvetja fólk til að taka
þátt í þessari bólusetningu til þess að við getum
haldið kíghóstanum eins mikið niðri og mögulegt
er,“ segir Þórólfur að lokum.
Fáðu þetta heyrnartæki
lánað í 7 daga
- án skuldbindinga
Bókaðutímaí fríaheyrnarmælingu
ogfáðuAltatilprufu ívikutíma
Sími5686880
PrófaðuALTAfráOticon
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880
| www.heyrnartækni.is |
Að heyra vel er okkur öllum mikilvægt og ekki síst yfir
hátíðirnar þegar fjölskylda, vinir og ættingjar hittast til
aðeigagóðastundsaman.ALTAheyrnartækingeraþér
kleiftaðheyraskýrtogáreynslulaustíöllumaðstæðum.
ALTA eru fullkomnustu heyrnartækin frá Oticon, búin
þráðlausritækniogalgjörlegasjálfvirk.