Morgunblaðið - 08.12.2014, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. DESEMBER 2014
Hádegismóum 4, 110 Reykjavík | Sími 547 0000 | premis.is
Er tölvukerfið þitt
komið í aðgerð?
•Traustur rekstur
tölvukerfa
• Örugg hýsing gagna
•Vandað
verkbókhaldskerfi
• Sérsniðnar
forritunarlausnir
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Fellibylurinn Hagupit skildi eftir sig
slóð eyðileggingar er hann fór yfir
austurhluta Filippseyja í gær.
Fréttaveita AFP greindi frá því í
gærkvöldi að minnst þrír hefðu látist
í veðurofsanum og má nú víða sjá
skemmdir á húsum og öðrum mann-
virkjum á svæðinu vegna mikils
vinds og gríðarlegrar úrkomu.
Í borginni Tacloban, sem varð
hvað verst úti þegar fellibylurinn
Haiyan gekk á land fyrir rúmu ári,
þurftu um 48 þúsund manns að haf-
ast við í neyðarskýlum en um 600
þúsund manns flúðu heimili sín í
austurhluta landsins vegna Hagupit.
Flestir fylgjandi rýmingum
„Við erum reynslunni ríkari eftir
Yolöndu [filippseyskt heiti á felli-
bylnum Haiyan]. Margir íbúar eru
nú mun hlynntari rýmingum en áð-
ur,“ sagði Mina Marasigan, talskona
almannavarna á Filippseyjum, í
samtali við fréttaveitu AFP. „Þessi
stormur var einnig veikari auk þess
sem viðbragðsaðilar voru betur bún-
ir undir óveðrið og fólk fór að til-
mælum þegar kom að því að rýma
svæði. Allt átti þetta sinn þátt í að
takmarka manntjón,“ sagði hún en
þegar fellibylurinn Haiyan gekk yfir
létust um 6.000 manns. Meðal þeirra
þriggja sem vitað er að hafi týnt lífi á
Filippseyjum vegna þess óveðurs
sem þar gekk yfir eru stúlkubarn og
eldri karlmaður. Samkvæmt upplýs-
ingum frá almannavörnum landsins
létust þau í kjölfar ofkælingar.
Nokkurt tjón varð á húsum í borg-
inni Tacloban og mátti víða sjá rúðu-
brot og skemmdir á vegum vegna
flóða auk þess sem tré rifnuðu þar
upp með rótum. Um tíma urðu borg-
arbúar einnig varir við rafmagns-
leysi vegna veðurofsans. Þrátt fyrir
þetta er ljóst að eyðilegging vegna
Hagupit er mun minni en sú sem
varð af völdum Haiyan sem gerði um
200 þúsund manns heimilislaus.
Málamiðlanir ekki í boði
Kumi Naidoo, alþjóðafram-
kvæmdastjóri samtakanna Green-
peace, segir tíða storma við Filipps-
eyjar merki um að bregðast verði við
þeim breytingum sem átt hafa sér
stað í veðrinu að undanförnu. „Nátt-
úran gerir ekki málamiðlanir. […]
Við verðum að opna augun fyrir því
að við erum að brenna inni á tíma.“
Víða er slóð eyðileggingar
Fellibylurinn Hagupit fór yfir Filippseyjar með tilheyrandi skemmdum á mann-
virkjum og húsum Minnst þrír létust í veðurofsanum Um 600.000 á flótta
AFP
Fellibylur Í borginni Tacloban mátti víða sjá skemmdir á mannvirkjum og byggingum en meðal þess sem gaf sig í óveðrinu voru rafmagnsstaurar.
Alex Salmond,
leiðtogi skoskra
sjálfstæðissinna,
hefur ákveðið
að bjóða sig
fram í bresku
þingkosning-
unum sem
haldnar verða í
maí á næsta ári.
Fréttaveita AFP
greinir frá því að með þessu út-
spili vilji Salmond tryggja að
staðið verði við þau loforð sem
Skotum voru gefin í aðdraganda
þjóðaratkvæðagreiðslunnar um
sjálfstæði landsins.
Daginn eftir að Skotar felldu
tillögu um aðskilnað, með 55% at-
kvæðum gegn 45%, tilkynnti Sal-
mond að hann myndi segja af sér
sem forsætisráðherra skosku
heimastjórnarinnar og leiðtogi
skoska þjóðarflokksins.
Flokkur Salmonds á nú sex
sæti af 59 sætum Skotlands á
breska þinginu, sem telur alls 650
sæti.
SKOTLAND
Tekur slaginn í
næstu kosningum
Alex Salmond
Barack Obama
Bandaríkja-
forseti var um
helgina fluttur á
sjúkrahús vegna
eymsla í hálsi.
Samkvæmt upp-
lýsingum frá
Hvíta húsinu eru
veikindi forset-
ans ekki talin
vera alvarleg, en hann var greindur
með bakflæði. Þeir sem sýna ítrek-
uð og langvarandi einkenni bak-
flæðis geta hins vegar þróað með
sér bólgur og skemmt slímhúð í vél-
inda. Fréttaveita AFP greinir frá
því að Obama hafi undanfarnar
tvær vikur kvartað undan eymslum
í hálsi og var því ákveðið að flytja
hann undir læknishendur. Ronny
Jackson höfuðsmaður segir rann-
sóknir hafa leitt í ljós bólgu í mjúk-
vef aftan á hálsi og er Obama nú
veitt meðferð vegna þessa.
BANDARÍKIN
Obama var fluttur á
sjúkrahús með verki
Barack Obama
Bandarísk stjórn-
völd segjast ekki
hafa átt annan
kost en að senda
hóp sérsveit-
armanna inn í
Jemen í þeirri von
að bjarga gíslum
sem þar voru í
haldi liðsmanna
hryðjuverka-
samtaka al-
Qaeda. Aðgerðin heppnaðist hins
vegar ekki því vígamenn myrtu báða
gíslana. Hét annar þeirra Luke So-
mers, 33 ára bandarískur blaðamað-
ur, en hinn Pierre Korkie, 57 ára Suð-
ur-Afríkumaður. Voru þeir teknir af
lífi í þann mund sem sérsveitarmenn
ruddu sér leið inn í húsnæði þar sem
þeim var haldið föngnum.
Barack Obama Bandaríkjaforseti
segir morðin vera „villimannleg“ en
hann heimilaði aðgerð sérsveit-
armanna eftir að ljóst var að líf blaða-
mannsins væri í bráðri hættu.
„Bandaríkin munu ekkert til spara
þegar kemur að því að beita hern-
aðarmætti, leyniþjónustu eða póli-
tískum þrýstingi í þeim tilgangi að
koma bandarískum ríkisborgurum
öruggum heim aftur,“ sagði Obama.
Voru teknir af lífi þegar
sérsveit reyndi björgun
Vígamenn myrtu tvo gísla í Jemen
Hvíta húsið í
Washington DC.
Læknir frá Kúbu sem smitaðist af
ebólu á meðan hann var við störf í
Sierra Leóne á vegum Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar (WHO) er nú
kominn aftur til höfuðborgarinnar
Havana. Eftir að upp komst um
veikindi hans, þann 16. nóvember
síðastliðinn, var maðurinn fluttur á
sjúkrahús í Sviss. Þaðan var hann
svo útskrifaður fyrir skemmstu.
Maðurinn sem um ræðir heitir
Felix Baez Sarria og er hann 43 ára
gamall. Þegar flugvél hans lenti á
flugvellinum í
Havana tóku eig-
inkona hans og
sonur á móti hon-
um auk þess sem
Roberto Morales,
heilbrigð-
isráðherra Kúbu,
var viðstaddur
komuna. Kúba
hefur sent alls
165 heilbrigðisstarfsmenn til Sierra
Leóne að undanförnu.
Heilbrigðisstarfsmaður frá Kúbu læknaður
Felix Baez Sarria