Ský - 01.10.2006, Side 53

Ský - 01.10.2006, Side 53
Fólk ský 53 Hallgrími Á. Vigfússyni, sem bjuggu í Vina- minni. Húsið brann árið 1988 og stuttu seinna fluttu þau á höfuðborgarsvæðið. Með því rofnuðu tengsl söngkonunnar við stað- inn en hún hefur oft minnst sumranna á Borgarfirði eystri með gleði í hjarta og ánægjubliki í augum. En þótt langt sé um liðið síðan Emilíana dvaldi langdvölum fyrir austan heldur hún alltaf tryggð við staðinn. Síðastliðin tvö ár hefur hún snúið til baka á sumrin og haldið tónleika og nú síðast í sumar með hinni heimsfrægu hljómsveit Belle and Sebastian. Komust þar færri að en vildu. Að sögn viðstaddra voru tónleikarnir ógleymanlegir og þá ekki hvað síst fyrir þau mögnuðu áhrif sem staðurinn hefur á Emil- íönu. Því má segja að söngkonan hjartnæma hafi lagt sitt af mörkum til að koma Borgar- firði eystri á heimskortið því sérstaklega vel þótti til takast síðastliðið sumar. Borgfirðingar sérstakur þjóðflokkur Ljóst er að með vasklegri framgöngu sinni vakti Magni athygli á sér sem afburðatón- listarmanni um heim allan í raunveruleika- þáttunum. Á sama tíma vakti hann áhuga margra á æskustöðvum sínum sem hingað til hafa hvað mest verið tengdar við meistara Kjarval. Það eru þó fleiri þekktir Íslendingar sem tengjast Borgarfirði eystri á einn eða annan hátt og allir eiga þeir það sameiginlegt að hrífast af náttúrunni þar í kring og mann- lífinu á staðnum. Steinn Ármann Magnússon leikari „Ég er frá Borgarfirði eystri í allar ættir og átti heima þar sem ungbarn. Ég dvaldi þar öll sumur til 15 ára aldurs og á þaðan fjöldann allan af góðum minningum, enda staðurinn einstakur fyrir margar sakir. Fjalla- sýnin og fólkið sem þar býr er mest heillandi við staðinn og ástæða þess að alltaf er gaman að koma aftur „heim“ ef svo má að orði komast.“ Steinn Ármann Magnússon bregður sér í ýmis gervi. SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 53 28.9.2006 10:58:21

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.