Ský - 01.10.2006, Side 46
46 ský
Veiði
Íslendingar hafa gjarnan hrifist af sögum af stórveiði. Þetta á sér sennilega djúpar rætur í þjóðarsálinni. Öldum saman var veiði stunduð til lífsbjargar, þjóðin kynntist ekki veiði sem íþrótt fyrr
en við lok nítjándu aldar, þegar breskir höfðingjar tóku að venja
komur sínar hingað og tóku reyndar á leigu veiðiár. Um svipað leyti
kynntust landsmenn fluguveiði og margir stunduðu hana alla síðustu
öld, þótt hún hafi orðið hin eðla íþrótt á seinustu árum. Þar kemur
margt til sem síðar verður vikið að.
Allt fram til þessa hefur þó stórveiði þótt til tíðinda. Frásagnir
af mokveiði rata enn á bækur, þótt kvótar og dýr veiðileyfi hafi sett
strik í reikninginn. Af stórveiðisögum síðustu aldar eru kannski
þekktastar sögurnar af mokveiði Guðmundar Einarssonar frá Mið-
dal í Soginu, urriðaveiðar Jóns Ögmundssonar í landi Kaldaðarness
við útfallið úr Þingvallavatni, að ógleymdum sögum úr Elliðaánum.
Ásgeir Ingólfsson segir til að mynda frá því í ágætri bók um árnar
að 9. júlí 1919 hafi afi hans, Ásgeir G. Gunnlaugsson kaupmaður
og félagi hans Kristinn Sveinsson húsgagnameistari, fengið 63 laxa
á eina stöng og reyndar alla á sömu fluguna! Að líkindum hefur
heildarveiði úr ánum verið á bilinu 1500–1800 laxar. Ekki fara
sögur af slíkri stórveiði í Elliðaánum síðar, þótt margir hafi fengið
þar góðan afla. Einn af þeim var Þorkell Þórðarson, sem kallaður
var Keli á Billiardinum, sem frægur var fyrir veiði í Fossinum.
Hann tók þar 35 eða 38 fiska ásamt bróður sínum, á einum degi.
Þetta var 1926 eða -27.
Breyttir tímar
Nú er kvóti í ánum, fjórir fiskar á stöng á vakt. Kvóti er reyndar í
fjölmörgum ám. Það er gjörbreyting frá því sem áður var. Þá var líka
veitt jafnt á flugu sem maðk og jafnvel spún í mörgum ám. Þær ár
þar sem leyft er að veiða á spún hefur stórfækkað og jafnframt hefur
ám fjölgað þar sem eingöngu eða nær eingöngu er veitt á flugu.
Nú tíðkast líka víða að sleppa fiski. Ekki er langt síðan allt var með
Texti: Sigurður G. Tómasson Myndir: Einkasafn
Stórveiðimaðurinn Þórarinn Sigþórsson:
Þórarinn við veiðar í Hofsá í Vopnafirði.
„TÓTI TÖNN“
Í sumar komst hann í klúbb afburðamanna í Altaánni í Noregi þegar hann veiddi þar fisk sem var
44 pund. Laxinn tók norska útgáfu af flugunni Gary dog og var sleppt að lokinni viðureigninni.
SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 46 28.9.2006 10:57:49