Ský - 01.10.2006, Side 33

Ský - 01.10.2006, Side 33
 ský 33 Golf Ítalskt og gott Borðapantanir í síma 461-5858 Njóttu hjá okkur Ekta ítölsk stemming í hjarta Akureyrar Hafnarstræti 92 - www.bautinn.is Þegar komið var á áttundu braut hafði rokið aukist til muna og þá fór einn ig að rigna; sem sagt komið íslenskt haustveður eins og það gerist verst og ekki beint veður til að spila golf. Við ákváðum að stytta okkur leið, spila 10. holuna, fara síðan yfir á 17. og 18. Eins og golfið getur verið óútreiknanlegt þá eru veðurguðirnir það einnig. Sólin tók að skína á 10. holunni og ákveðið var að halda áfram. Við Ólafur sáum smámöguleika í stöðunni, buðum tvöfalt eða ekkert, enda gengið vel á síðustu holum. Þeir tóku tilboðinu glottandi og áfram var haldið á 11. holu. Veðurguðirnir hafa einnig glott því þegar við vorum að klára 12. brautina var komið kolvitlaust veður og við rukum heim á leið, tókum 17. og 18. braut, þar sem Jón Steinar og Björgvin juku enn við forskotið. Við Ólafur máttum samt vel við una og sögðum hvor við annan að í raun hefðu þeir ekki verið neitt sérstakir, við vorum því miður einstaklega óheppnir. Góðum degi var lokið þar sem fjórir kylfingar sýndu misgott golf, mundu allir góðu höggin en voru búnir að gleyma þeim slæmu. Víst er að allir mætum við kokhraustir þegar kemur að næsta golfhring, fullir af eldmóði, sem nóg er af hjá kylfingum, þegar þeir standa á fyrsta teig. sky, SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 33 29.9.2006 11:03:05

x

Ský

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.