Ský - 01.10.2006, Side 45
Nýjung í skólamálum
Skóli verður í miðju hverfinu og þar er um nýjung að ræða í skóla-
málum, að sögn Bjarna Sveinbjörns. Þetta verður sambyggður leik-
og barnaskóli og þar munu börnin geta verið frá því fæðingarorlofi
foreldra lýkur og fram til 10–12 ára aldurs en með þessu móti munu
litlu krakkarnir ganga í sinn eigin skóla þar sem þeim líður vel og
þar sem þau verða ekki fyrir áreiti þeirra sem eldri eru. Staðsetningin
miðast við að álíka stutt sé fyrir alla í skólann og að börnin þurfi ekki
að fara yfir miklar umferðargötur.
„Hugsunin á bak við skipulagningu hverfisins er að það sé fyrir
íbúana en ekki öfugt. Þess vegna er ekki hugsað fyrst og fremst
um hagstæðustu verkfræðilega útfærslu við uppbyggingu hverfisins
heldur þægindi íbúanna. Þess má geta að ákveðið hefur verið að
leggja sérstaka tengibraut milli miðbæjarins í Mosfellsbæ og Leirvogs-
tunguhverfisins. Þannig mun fólk geta farið þar á milli án þess að
fara út á Vesturlandsveginn sem er vissulega til mikilla bóta.
Friðsæl náttúra og aðstaða fyrir áhugamálin
Leirvogstunguhverfið er umlukið stórum opnum náttúrusvæðum
með tjörnum, gróðri, göngu- og reiðleiðum. Þessi svæði munu
teygja sig upp í hverfið svo að óspillt náttúra er aldrei langt undan.
Lögð er áhersla á að sem flestir íbúar hafi beina tengingu frá lóð út
á opið svæði. Græn svæði á milli lóða eru fyrst og fremst ætluð til að
íbúarnir geti notið þar útivistar, samveru og leikja um leið og þau
mynda tengingar út á göngustígana og út í náttúruna umhverfis.
Í næsta nágrenni er síðan ýmislegt sem á án efa eftir að draga
menn að þessu skemmtilega íbúðahverfi sem verður sannkallað
sérbýli í sveit. Tungubakkaflugvöllur er skammt undan, hesthúsa-
ský 45
Herdís Sigurjónsdóttir:
Sælureitur í sambýli við náttúruna
„Leirvogstunguhverfi sem hér mun rísa verður sannkallaður sælureitur
þeirra sem kjósa sambýli við náttúruna og fallegt umhverfi frekar en
ys og þys borgarinnar. Hér eru óþrjótandi möguleikar til útivistar sem
eru ómetanleg lífsgæði fyrir fólk sem lifir í nútíma samfélagi,“ sagði
Herdís Sigurjónsdóttir, fyrsti varaforseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar,
þegar fyrsta skóflustungan var tekin í landi Leirvogstungu í sumar.
Hún bætti við að á íbúaþingi í Mosfellsbæ hefði einmitt komið fram
að það er þetta sem skiptir íbúana mestu máli og er meginástæða
þess að fólk kýs að búa í Mosfellsbæ. Herdís sagði einnig að Leirvogs-
tunguverkefnið hefði vakið mikla athygli því að þar væri um nýja hug-
myndafræði í uppbyggingu íbúahverfa að ræða, sem önnur sveitarfélög
myndu vafalaust nota sér.
Fellin og Esjan í austri blasa við frá Leirvogstungu.
byggðin í Mosfellsbæ einnig og svo má ekki gleyma golfvellinum
og Tungubakkaíþróttavellinum og loks Leirvogsánni sem er góð
laxveiðiá. Land á þessum slóðum er gott til ræktunar svo áhugafólk
um gróður og garða á áreiðanlega eftir að sjá skjótan árangur erf-
iðisins þegar kemur að uppgræðslu lóðanna. Flestir ættu því að geta
fundið sér og áhugamálum sínum stað á þessum slóðum.
Engin stíf skilyrði verða fyrir útliti húsa í Leirvogstungu þótt
gert verði ráð fyrir að ákveðnum reglum verði fylgt, enda hefur
Gylfi Guðjónsson arkitekt haldið fund með fyrstu kaupendum lóða
þarna um það hvaða hugmyndir hann hafi um útlit hverfisins.
Bjarni Sveinbjörn segir að þegar götum í hverfinu hafi verið valin
nöfn hafi verið tekið mið af örnefnum. Tunga hafi hins vegar orðið
fyrir valinu sem ending nafnanna og þannig muni göturnar bera
nöfnin, Kvíslartunga, Vogatunga, Laxatunga og Leirvogstunga.
Teikning af hverfinu.
KYNNING
sky
,
Fyrstu íbúarnir í Leirvogs-
tunguhverfi flytja inn að ári
SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 45 29.9.2006 11:03:40