Ský - 01.10.2006, Blaðsíða 24

Ský - 01.10.2006, Blaðsíða 24
 24 ský List og kom út 1992. En blaðamaður átti einnig samtöl við Elías Kristjánsson bílstjóra í Reykjavík sem var nánasti vinur Flóka á unglingsárum í gagnfræðaskóla. Þeir Flóki og Elías voru nágrannar þar sem Flóki bjó á Bárugötu 18 en Elías á Ránargötu 4. Þeir gengu saman í Gaggó Vest við Öldugötu og sátu saman í kennslustundum. Flóki við gluggann og teiknaði í öllum kennslustundum en hann sýndi öðrum náms- greinum en teikningu engan áhuga. „Hann var alltaf teiknandi,“ segir Elías. „Upphaf okkar kynna var þannig að ég sat við gluggann en Flóki falaðist eftir sætinu. Hann vildi aðeins sitja við gluggann og þótt við hefðum gert samning um að ég fengi gluggasætið um áramót þá var ekki við það komandi. Samt gekk honum ekki illa í öðrum námsgreinum því hann var bráðgreindur.“ Elías og Flóki kynntust upphaflega vegna sameiginlegs áhuga þeirra á skákíþróttinni en Flóki hafði feiknalegan áhuga á skák á þessum árum og vildi alltaf vera að tefla. Hann og Elías sátu löngum stundum yfir tafli á herbergi Flóka uppi á lofti á Bárugötunni og röktu skákir fram og til baka. Eggert Gilfer, einn snjallasti skákmaður Íslands á þessum tíma og Jón Guðmundsson, sem var í ólympíuliði Íslands í skák voru heimilisvinir á Bárugötu og tefldu oft við Flóka. „Ég var viðstaddur þegar skákferill Flóka endaði,“ segir Elías. „Við höfðum ákveðið að taka þátt í móti hjá Taflfélagi Reykja- víkur og mættum þar nokkur kvöld og tefldum við hina og þessa en þar kom að því að Flóki tapaði skák en því tók hann afskaplega illa. Þetta kvöld og langt fram á nótt sátum við í herberginu á Bárugötu og Flóki rakti skákina aftur og aftur og ígrundaði mistök sín í henni. Ég var satt að segja orðinn hundleiður á þessu en loksins tók hann í hornin á dúknum sem taflmennirnir stóðu á og sveifl- aði honum í loft upp svo mennirnir þyrluðust út um allt. „Það er ekki samboðið séníi að hanga yfir tíglóttu borði,“ hrópaði hann og tefldi aldrei framar á skákmótum svo ég vissi.“ Elías lýsir Flóka svo að hann hafi hversdagslega verið afskap- lega feiminn og hlédrægur og og verið frekar vinafár í skóla. Flóka var illa við að ganga einn í skólann og þess vegna kom Elías alltaf við á Bárugötunni og sótti vin sinn og þeir gengu saman í skólann. Það kom fyrir að Flóka væri strítt því hann skar sig verulega úr hópnum en að sögn Elíasar var það þó ekki algengt. „Flóki mætti aldrei í leikfimi því hann hafði andstyggð á líkamlegu erfiði og öllum íþróttum. Einn veturinn lagði kennarinn mjög hart að honum að mæta þótt ekki væri nema einu sinni svo hann fengi ekki núll. Flóki lét til leiðast og ég man eftir því að í búningsklefanum í gamla íþróttahúsinu við Landakot var hent gaman að honum fyrir það hvað hann var horaður og brjóstkassinn áberandi innfallinn. En hann lét sig ekki og kennarinn stóð við sinn hluta og gaf honum fimm í leikfimi fyrir þetta eina skipti – aðallega fyrir hugrekki, held ég.“ Vilhjálmur frá Skáholti og Toulouse-Lautrec Fleirum verður tíðrætt um þennan þátt lundarfars hins unga Flóka sem birtist í mikilli viðkvæmni og feimni en pilturinn var sílesandi og grúskandi í hrollvekjum og ljóðum þar sem rauði þráðurinn var óhugnaður, dauðaþrá, limlestingar og þeir yfirskilvitlegu hlutir sem þá þegar voru farnir að setja svip sinn á teikningar hans. Flóki las Edgar Allan Poe, draugasögur og hrollvekjur og teiknaði meðan hann vakti. En hann leitaði einnig fyrirmynda og áhrifa í kvikmyndum og Elías félagi hans fór ekki varhluta af þeirri leit. „Áður en Flóki fór að sækja Laugaveg 11, kaffihús sem var einskonar listaakademía bæjarins á þeim tíma, þá sátum við oft á Hressingarskálanum og ég man vel eftir Vilhjálmi frá Skáholti, skáldi sem storm- aði þar inn með sérstökum töktum svo allir litu upp. Hann stóð og skimaði yfir salinn hvössum augum SK<00DD> 4.tbl 2006.indd 24 29.9.2006 9:25:07
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.