Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Blaðsíða 49
Hestar í íslenskum kumlum
Kvenkynskuml
Meö hesti H
Til gamans má geta þess að alls hafa
nítján beinagrindur hestanna veriö kyn-
greindar. Sú rannsókn fór fram af dr.
GuntherNobis árið 1960. Niðurstaða hans
varsú að í öllum tilfellum var um karikyns
hesta að ræöa (Kristján Eldjám. 2000, bls.
311). Það er þess vegna einkar áhugavert
rannsóknarefni að skoða hvort samhengi
sé á nrilli lífíræðilegs kyns manns og hests.
Hundar:
Hér á landi hafa fundist hundabein í 20
kumlum. I þrettán þeirra hafa einnig verið
hestabein og nokkuð algengt er að bæði
dýrin hafi veriö höfð til fóta hjá þeim sem
í kumlinu var. Hundur hefur fundist í einu
kvenkynskumli hér á landi og er það
Komárskumlið en þeir hafa fundist í sex
öruggum karlkynskumlum. 1 hinum
þrettán kumlunum þar sem hundar fundust
var ekki hægt að kyngreina einstaklinginn
(Kristján Eldjám, 2000. bls. 311-312).
Áhugavert verður að sjá hvort hlutfallið
á milli kynjanna breytist eftir því sem
fleiri kuml koma í ljós. Af þessu má ráða
að líklegast hefur verið algengara að
heygja hunda með karlmönnum en kven-
mönnum. Þó virðist það samt sem áður
alls ekki hafa verið mjög algengt.
Karlkynskuml
□ Án hests
Met og metaskálar:
Alls hafa fundist 20 met í kumlum hér á
landi en aðeins ein metaskál. Hún var í
kumlinu á Komsá en það er talið hafa
verið kvenkynskuml. Af þeim 20 kumlum
sem innihéldu met voru 13 þeirra
ömgglega kyngreind sem karlkynskuml
en aðeins eitt þeirra var greint sem
kvenkynskuml. (Kristján Eldjám, 2000,
bls. 414) Samkvæmt þessu ætti það að
vera sterk ábending að um kuml karlmanns
sé að ræða ef í ljós koma met í því.
Greining þessi virðist ekki vera í
samræmi við sambærilegargreiningar sem
hafa verið gerðar innan víkingabyggða í
nágrannalöndum íslands, því þar hafa
metaskálar og met fundist nokkuð oft i
kumlum kvenna. I víkingaaldarþorpinu
Birka í Svíþjóð hafa met og metaskálar
fundist í 132 kumlum og þar af em 32%
þeirra kvenkynskuml. 22% karlkynskuml
en í 38% tilfella er ekki hægt að greina
kyn kumlbúans (Stalsbeig, 2001, bls. 73-
74). Reyndar er þar um að ræða stærra
safn af kumlum, með metum eða meta-
skálum í, en fúndist hefur hér á landi.
Kúptar nælur:
Kúptar nælur hafa fundist tvær saman í
Hrafnkell Brimar
Hallmundsson og
Lísa Rut Björnsdóttir
Myndir 1 og 2
Konur viröast ekki síður
en karlar hafa veriö
heygöar með hesti, sé
tekiö tillit til heildarfjölda
þekktra kumla á íslandi.
47