Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Page 56

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Page 56
af og sá siður að grafa líkama hinna látnu. sem þó hafði tíðkast samhliða líkbrennslu en í minna mæli. nær útbreiðslu sem aðal- greftrunarsiðurinn um allt Rómaveldi (Toynbee, 1996. bls. 34). Ekki er vitað hverjar ástæður þessara bre\tinga geta verið en á sama tíma fer einnig að bera á áletrunum á minnismerkjum og leg- steinum. Áletranir eins og heimili til eilífðar (donnts eterna), sem fela í sér trú á áframhaldandi líf í gröfinni/grafhýsinu, verða einkum áberandi. Grafirnar og grafliýsin verða stærri og flóknari að geró. auk þess sem þau verða ríkulegar búin af persónulegum gripum (Fergusom 1989. bls. 116-117). Ákvæði í rómverskum lögum um bann á greftnm almennt innan borganna sjálfra virðist ekki hafa náð til greftrunar bama. Eftir að hætt var að le\fa greftrun í Forum romana í Róm heimiluðu rómversk lög engu að síður greftrun ungbama í boiginni (snggrnndaria), þ.e. undir anddyri húsa (Bandinelli og Torelli. 2002, bls. 14). Ekki er ósennilegt að þessi greftrunarsiður sé leiíar af siðvenjum fomra ítalskra (italici) þjóðflokka, því að við uppgrefti á búsetusvæðum eldri menningarsamfélaga á Ítalíu, t.d. í Puglia á Suður- Italíu, hafa fundist bamsgrafir, tímasettar frá 9.-8. öld f. Kr. í vistarverum manna, t.d. undir húsveggjum, í gólfum og í stórum leirkerjum (amphora) (Cavade, 1994, bls. 270). Greftrun ungbarna Uppgreftir á grafreitum frá tíma Rómar- veldis hafa leitt í ljós að fáar eða engar barnsgrafir er að finna í almennum grafreitum utan boiganna. Við uppgröft á dæmigerðum rómverskum grafreit, sem var í notkun frá ca. 50 e. Kr. til loka 4. aldare. Kr. í nágrenni við boigina Lugone við vesturbakka Garðavatns á N-Ítalíu, fannst 171 gröf. Um var að ræða 132 brunagrafir og 39 beinagrafir fúllorðinna einstaklinga en aðeins þriggja ungbama. Þær voru allar beinagrafir. Greftrun ungbamanna er ekki lýst frekar og ekki kemur heldur fram hvort greint hafi verið hvort brunagrafimar innihéldu bein bama eða fúllorðinna (Massa. 1996, bls. 71, 75). Á ámnum 1992-1997 fór fram viða- mikill uppgröftur á víðfeðmum og vel varðveittum grafreit. Yasmina. fi rir utan borgamiúra Karþagóborgar við norður- strönd Afríku. Kaiþagóboig var lögð í rúst af Rómverjum árið 146 f. Kr. og síðan endurreist og endurskipulögö sem rómversk borg árið 44. e. Kr. Samkvæmt aldursgreiningum vom elstu grafimar í Yasminagrafreitnum frá síðari hluta 1. aldar f. Kr. og þær yngstu frá lokum 6. aldar e. Kr. Á afmörkuöu svæði innan grafreitsins fundust sextíu barnsgrafir tímasettar frá 5. öld e. Kr. og jafnvel seinna. Grafimar vom staðsettar innan um minnisvarða í duftkerjagrafreit frá 2. öld e. Kr. Samkvæmt lífaldurs-greiningu á beinunum vom flest bamanna eldri en 7 ára. eða 38 þeirra, ellefu vom á aldrinum l-2ja ára og aðeins eitt bam á aldrinum 0-6 mánaða. Bömin höfðu annað hvort verið greftruð í litlum steinkistum í gmnnum gröfum með grjótumgjörð og huldar grjótmulningi eða í stórum leirkeijum. Einnig höfðu nokkur bamanna veriö lögð á kalkbeð. Gripir fundust í örfáum tilfellum (Norman, 2002a, bls. 302-306). Naomi J. Norman, sem stjórnaði uppgreftrinum, telur að ekki sé hægt að útiloka áhrif frá greftrunarsiðum Púnverja/Karþagómanna sem réðu yfir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.
https://timarit.is/publication/1111

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.