Fréttatíminn - 17.07.2015, Qupperneq 4
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Norðlæg átt, yfirleitt hægur viNdur. Skýjað
fyrir auStaN aNNarS víða bjartviðri.
höfuðborgarSvæðið: Norðaustlæg átt
og bjartviðri. Fremur milt.
NorðaN eða NorðveStaN 3- 10 m/S. lítilShátt-
ar Súld auStaNtil, eN bjartviðri v-laNdS.
höfuðborgarSvæðið: Na 3-8 og bjartviðri.
vaxaNdi NorðaNátt og rigNiNg NorðaNlaNdS,
eN þurrt Syðra.
höfuðborgarSvæðið: NorðaNátt, 5-10 og
skýjað með köFlum.
Norðanáttir enn um sinn
Það eru litlar breytingar í veðrinu,
áframhaldandi norðanátt, skýjað austantil
en bjartviðri vestanlands. á laugardag er
súldarloft norðaustantil, en á sunnudag
gengur inn á norðanvert landið úrkomu-
bakki og verður rigning víðast hvar frá
Ströndum og austur á firði,
en jafnvel slydda til fjalla.
Syðra er sólríkt, en yfirleitt
verður fremur kalt. kólnar
þegar líður á helgina.
15
8 7
8
11
13
6 7
5
9
10
5 6
7
9
elín björk jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
AB drykkir
á tilboði!
Tilboð
rúnar vekur athygli
Þjóðverja
rúnar Páll sigmundsson, þjálfari
karlaliðs stjörnunnar, er heldur óvænt
orðinn stjarna
eftir leik liðsins
gegn skoska
stórliðinu Celtic
ytra í vikunni.
breskir og þýskir
fjölmiðlar hafa
gert sér mat úr
því hversu sláandi
líkur rúnar þykir
þýska þjálfaranum
jürgen klopp.
blaðið stendur
einnig fyrir
könnun á vef
sínum þar sem
svarmöguleikarnir
eru tveir -annað hvort eru þeir tvíburar
sem voru aðskildir við fæðingu eða
búnir til á rannsóknarstofu.
Þýska blaðið bild fjallaði einnig um
þessi líkindi. „Það er ekki hægt að
líkjast klopp meira,“ skrifar blaðið. bbC
kom einnig auga á þetta í textalýsingu
sinni frá leiknum í vikunni - að íslenski
þjálfarinn væri einhvers konar klopp-
tvífari.
evrópustofu lokað
samningur um rekstur evrópustofu rennur
út í lok ágúst. Þar sem engar ráðstaf-
anir hafa verið gerðar um framhald gæti
evrópustofu verið lokað í september. en
nýtt útboðsferli hefði þurft að hefjast fyrir
meira en hálfu ári til að því yrði lokið í
haust. Þessu greindi rÚv frá.
Dóra magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
evrópustofu, sagði í samtali við rÚv að
þetta væri frágengið. um áramótin var
ljóst að ekki yrði framlengt. Hún segir að
verið sé að undirbúa lokun stofunnar með
því að draga smám saman úr kjarnaverk-
efnum.
landspítalinn leitar til
útlanda
landspítalinn kannar nú hvort ástæða
sé til að auglýsa eftir geislafræðingum
og lífeindafræðingum í útlöndum. 25
geislafræðingar hafa sagt upp og 26 líf-
eindafræðingar.
ástæðan fyrir því að byrjað er að kanna
hvort erlendir geislafræðingar og lífeinda-
fræðingar geti hlaupið í skarðið hér heima
er sú að uppsagnir þessara hópa koma
fyrst til framkvæmda.
alls hafa 311 lagt inn uppsagnarbréf á
landspítalanum, þar af eru 258 hjúkrunar-
fræðingar.
Pólfari til saga Film
vilborg arna gissurardóttir, sem er betur þekkt sem
vilborg pólfari, hefur verið ráðin sölu- og markaðsstjóri
Sagafilm.
vilborg gekk suðurpólinn árið 2013 og hefur verið þekkt á
Íslandi undanfarin ár fyrir afrek sín og samfélagsverkefni.
Fyrr í ár ætlaði hún að ganga á everest-fjall en lenti í jarð-
skjálftanum í Nepal og þurfti að hætta við. vilborg er
með mba gráðu frá Háskóla Íslands og b.a. gráðu
í ferðamálafræðum. vilborg hefur frá árinu 2012
starfað undir sínu eigin vörumerki á sviði fjalla-
mennsku og sem hvatningarfyrirlesari. Hefur
hún farið víða um heim með verkefni sín.
Vilborg tekur við starfinu af Öldu Karen
Hjaltalín sem hyggur á nám í Háskóla Íslands
haust.
Allt of margir nota
símann undir stýri
F arsímanotkun undir stýri er gríðarlegt vandamál,“ segir Kolbrún Guðný Þorsteins-
dóttir sérfræðingur í fræðslumál-
um hjá Samgöngustofu. Ólöglegt
er að tala í farsíma undir stýri án
handfrjáls búnaðar og viðurlögin
eru 5000 kr sekt. Engin íslensk töl-
fræði er til yfir hlutfall slysa sem
verða vegna farsímanotkunar undir
stýri en samkvæmt nýlegum bresk-
um rannsóknum (National Safety
Council) verður fjórða hvert um-
ferðarslys vegna farsímanotkunar.
Símanotkun undir stýri eykst
Kolbrún segir að þó engar tölur geti
staðfest fjölgun slysa vegna farsíma-
notkunar þá sé augljóst að notkunin
sé að aukast með tilheyrandi slysa-
hættu. „Nýjasta skýrslan okkar
varðandi hegðun ökumanna undir
stýri er frá því í janúar 2014. Hún
sýnir að almennt veit fólk hversu
hættuleg farsímanotkun án hand-
frjáls búnaðar er og hún sýnir líka
að herferðin okkar í samstarfi við
Símann frá því árið 2012, „Höldum
fókus“, skilaði árangri því þar kom
fram að 22% ökumanna á aldrinum
18-24 ára notuðu símann mikið
undir stýri áður en herferðin fór í
gang en einungis 8% eftir að hún fór
í gang.“
farsímanotandi missir bóta-
rétt
Þegar óhöpp eða slys verða í um-
ferðinni er ökumaður ávallt spurður
hvort farsími hafi verið við höndina.
Valdi ökumaður slysi vegna far-
símanotkunar missir hann bótarétt
sinn. Kolbrún segir því fæsta öku-
menn viðurkenna farsímanotkun.
„En sem betur fer er líka til heiðar-
legt fólk sem viðurkennir farsíma-
notkun, og sumir viðurkenna það
vegna þess að það er augljóst að far-
síminn hafi verið í notkun. Það er
auðvelt fyrir lögregluna að kanna
það á símanotkuninni hvort síminn
hafi verið í notkun þegar slysið varð.
Það kemur oft í ljós að ungir öku-
menn hafi verið að senda sms-skila-
boð um leið og slys gerist. Og þá er
ekki hægt að hrekja það.“
aldrei meiri þörf fyrir vitund-
arvakningu
„Það er klárlega þörf fyrir nýja
herferð til vitundarvakningar.
Núna er eins og þessi hætta sé að
gleymast og fólki finnist það bara
vera sjálfsagt að nota símann við
aksturinn. Það þarf ekki annað en
að líta í kringum sig á rauðu ljósi
til að sjá að annar hver maður er að
skoða símann sinn. Það er algjör-
lega óviðunandi að fólk skuli leyfa
sér að gera þetta því almannaheill
er undir. Við megum ekki sofna á
verðinum því það eru alltaf að koma
nýjir ökumenn í umferðina og í dag
er það þannig að börn niður í 10 ára
eru með snjallsíma. Ef einhvern-
tíma er þörf á aukinni vitundarvakn-
ingu þá er það núna.“
halla harðardóttir
halla@frettatiminn.is
myndatexti: allt of margir nota farsíma undir stýri þrátt fyrir að það sé ólöglegt.
umFerðaröryggi Farsímanotkun undir stýri
erlendar rannsóknir sýna að fjórða hvert umferðarslys kemur til vegna farsímanotkunar. Ólöglegt
er að tala í farsíma undir stýri án handfrjáls búnaðar og viðurlögin eru 5.000 kr sekt. kolbrún
guðný Þorsteinsdóttir sérfræðingur í fræðslumálum hjá samgöngustofu segir aldrei hafa verið
meiri þörf fyrir vitundarvakningu, allt of margir noti símann undir stýri.
4 fréttir Helgin 17.-19. júlí 2015