Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.07.2015, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 17.07.2015, Blaðsíða 6
MIAMI svefnsófi með horntungu Með rúmfatageymslu í tungu. Dökkgrátt, slitsterkt áklæði. Bara vinstri tunga. Stærð: 240 x 225 cm, H: 80 cm. Fullt verð: 169.900 kr. 149.900 kr. IBIZA U-sófi Grábrúnt, slitsterkt áklæði - hægri og vinstri tunga. Fullt verð: 249.900 kr. 19 8 c m 286 cm 189.900 kr. JACKPOT U-sófi Svart, slitsterkt áklæði - hægri og vinstri tunga. Fullt verð: 189.900 kr. 20 3 cm 276 cm 149.900 kr. Afgreiðslutími Mán. til fös. frá kl. 10–18 Laugardaga frá kl. 11–16 www.dorma.is Holtagörðum 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 Sumar útsala Holtagarðar | Akureyri | www .dorma.is Sumar útsala TVENNUTILBOÐ dúnsæng + koddi NATURE’S REST heilsurúm Aðeins 59.900 kr. Nature’s Rest heilsudýna með Classic botni. Stærð: 140x200 cm. Fullt verð: 92.900 kr. 33.000 krónur AFSLÁTTUR O&D dúnsæng · 50% dúnn · 50% smáfiður + Dúnkoddi Fullt verð: 24.900 kr. Aðeins 18.900 kr. TVENNU TILBOÐ Þú finnur bæklinginn á dorma.is LÝKUR Á MORGUN  SamfélagSmál Unglingar með útþrá Helmingur unglinga vill flytja til útlanda H elmingur íslenskra unglinga vill helst búa í útlöndum í framtíðinni samanborið við um þriðjung árið 2007, að því er fram kemur í nýrri rannsókn Háskólans á Akureyri og sagt er frá á Akur- eyri.net. Vorið 2015 vildi ríflega helmingur unglinga á höfuð- borgarsvæðinu og á Akureyri helst flytja af landi brott en tæp- ur þriðjungur jafnaldra þeirra annars staðar á Norðurlandi. Rannsóknin er hluti evr- ópsku ESPAD rannsóknar- innar og nær til allra íslenskra unglinga í 10. bekk grunn- skóla. Hún er lögð fyrir á 4 ára fresti. „Búsetuóskir unglinga gefa vísbendingu um stemn- inguna í unglingasamfélag- inu og að nokkru leyti í samfélaginu í heild“, segir Þóroddur Bjarnason, pró- fessor í félagsfræði við Há- skólann á Akureyri og stjór- nandi rannsóknarinnar, í viðtali við Akureyri vikublað. „Svör sextán ára unglinga eru vitaskuld ekki áreiðan- legur mælikvarði á ákvarð- anir hvers og eins í framtíð- inni. Sumir hætta við að flytja og aðrir flytja þótt þeir hafi ekki ætlað sér það á unglings- árum. Í sumum tilvikum snúa brottfluttir til baka en innlent og erlent aðkomufólk fyllir líka í skörðin. Hins vegar hafa íslenskar rannsóknir sýnt að búsetufyrirætlanir unglinga hafa býsna gott forspárgildi fyrir þróun einstakra byggð- arlaga yfir lengri tíma.“ -sda  Salerni í HópferðabílUm Vöntun á losunar- brunnum fyrir rútur Mikið hefur borið á því að salerni sem eru til staðar í mörgum langferðabifreiðum á Íslandi séu ekki í notkun. Ferðmenn hafa talað um það að salerni séu alls ekki í öllum bifreiðum, og að í þeim sem þau eru séu þau ekki aðgengileg. Þórir Garðarsson stjórnarformaður Iceland Excursion segir ástæðuna eingöngu vera þá að ekki séu nægir losunarbrunnar á landinu. Brunnarnir eru tveir í Reykjavík og þá eru þeir upptaldir. é g get auðvitað bara talað fyrir mitt fyrirtæki,“ segir Þórir Garðarsson hjá Iceland Ex- cursion þegar hann er spurður út í málið. „Það eru salerni í nokkrum bílum hjá okkur og þau eru almennt ekki notuð nema sérstaklega sé beðið um bíla með salernum. Þetta er mjög vandmeðfarið þar sem það eru mjög fáir staðir á Íslandi þar sem hægt er að losa rútusalerni,“ segir hann. „Við erum með einn brunn hjá okkur í Klettagörðum, annar er hjá Orkuveitunni og þá er það nánast upptalið,“ segir Þórir. „Ég þykist vita að þessu umræða sé sprottin út frá salernismálum á ferðamannastöðum á landinu. Stað- reyndin er sú að innan við 40% af ferðamönnum á Íslandi ferðast með hópferðabílum. Bílaleigubílar eru um 50% og aðrir á eigin vegum. Þar fyrir utan eru svo allir Íslend- ingarnir sem gleymast stundum í allri þessari umræðu,“ segir Þórir. „Manni finnst svona í umræðunni að það sé verið að ýta vandamálinu yfir á rútufyrirtækin í staðinn fyrir að horfa lausnamiðað á vandamálið og fjölga salernum á landinu.“ Af öllum þeim fjölda ferðamanna sem panta þjónustu hópferðabíla á land- inu segir Þórir það ekki stórt hlut- fall sem biðji sérstaklega um bíla með salernum. „það er mjög sjald- gæft í raun og veru,“ segir hann. „Hjá okkur erum við með salerni í flestum bílunum en þau eru ekki notuð í venjulegri ferð eins og gullna hringnum. Það er ekki það langt á milli salerna. Það er helst ef við erum í einhverjum sérferð- um með viðskiptavini sem biðja sérstaklega um það,“ segir hann. „Þegar við erum að kaupa nýja bíla þá er það misjafnt hvort það eru salerni í þeim eða ekki. Þetta fer allt eftir stærð og slíku og við kaupum á bilinu 12-18 bíla á ári.“ Þórir segir þó losunarmöguleik- ann stærsta vandamálið. „Við get- um ekki tekið kassann úr eins og í hjólhýsum og slíku,“ segir hann. „Bílarnir þurfa að geta keyrt yfir brunn og losað salernin. Þetta er eitthvað sem þarf að bæta ásamt því að fjölga salernum. Við rekum áfangastað á Hveravöllum þar sem við settum niður 60.000 lítra rotþró fyrir tveimur árum sem er fram- kvæmd upp á rúmlega 20 milljónir, bara neðanjarðar. Svo þetta er svo- lítið mál. Vandamálið er ekki leyst þótt hægt sé að sturta niður,“ segir Þórir Garðarsson, stjórnarformað- ur Iceland Excursions. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Hjá okkur erum við með salerni í flestum bílunum en þau eru ekki notuð í venjulegri ferð eins og gullna hringnum. 6 fréttir Helgin 17.-19. júlí 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.