Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.07.2015, Blaðsíða 54

Fréttatíminn - 17.07.2015, Blaðsíða 54
Símamótið 2015 Helgin 17.-19. júlí 20152 Símamótið 2015 D agskrá, vallarkort, Instag-ram-myndir, úrslit og riðl-ar. Allar mikilvægu upplýs- ingarnar eru á simamotid.is,“ segir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans. Strax á fyrsta ári síðunnar varð þörfin ljós. 7.800 gestir nýttu sér þá síðuna sem var sérhönnuð fyrir farsíma og það að meðaltali fjórum sinnum. Flett- ingarnar voru 108 þúsund og hver heimsókn varði í um sex mínútur. „Þetta er þriðja árið sem Síminn heldur úti þessari sérsniðnu síðu fyrir Símamótið. Hún hefur nú að hluta til verið unnin frá grunni til að fylgja nýjustu straumum. Svona síður þurfa að vera í takti við tím- ann, bæði í útliti og virkni. Frá því að við kynntum síðuna fyrst hefur snjalltækjanotkun aukist gífurlega og má búast við því að nú muni 90% heimsókna á síðuna verða úr slíkum tækjum,“ segir Gunnhildur Arna. Aldrei hefur verið eins mikilvægt að auðvelda sýn yfir mótið enda er þetta fjölmennasta mótið hingað til. Sautján hundruð keppendur tóku þátt í hittifyrra, 1900 í fyrra og í ár eru þeir í kringum 2000. „Liðum fjölgar um 24 milli ára og eru rétt tæplega 300. Það er því mikið lán að geta alltaf athugað næstu skref með símanum,“ segir Gunnhildur Arna. Síminn er afar stoltur styrktar- aðili mótsins í ár eins og síðustu ár. „Þetta er elsta, langstærsta og vin- sælasta knattspyrnumót stúlkna og hefur eflt kvennaknattspyrnu á Íslandi í gegnum árin. Breiðablik á heiður skilinn. Það er frábært fyrir Símann að fá að taka þátt í þessu ævintýri og fylgjast með ungum stúlkum á framabraut knattspyrn- unnar,“ segir Gunnhildur Arna. Síminn er einnig bakhjarl Sím- inn Rey-Cup knattspyrnumótsins sem fram fer helgina á eftir, þann 22.-24. júlí og heldur einnig úti, í fyrsta sinn, síðu fyrir það mót. „Fjarskipti eru sérsvið Símans. Þetta er það sem við kunnum best og viljum auka upplifun mótsgesta sem mest.“ Farsímasíða sem slær alltaf í gegn Nýtt útlit og meiri hraði mætir notendum vefsíðu Símamótsins. Síðan er sérhönnuð til að auðvelda foreldrum þessara ungu og upprennandi fótboltastjarna að halda utan um dagskrána á Símamótinu, knattspyrnumóti Breiðabliks fyrir ungar stúlkur. Keppendurnir sjálfir hafa einnig tækifæri til að halda fullri yfirsýn og geta fylgst með nýjustu myndunum af samfélagsmiðlinum Instagram. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Símanum. G óðan dag og verið öll hjart-anlega velkomin á Síma-mótið 2015. Breiðablik hefur staðið fyrir Símamótinu árlega í 30 ár sem ég held að hljóti að vera einhvers konar met í kvennaknattspyrnu. Á árum áður var Símamótið eina stelpumótið í knatt- spyrnu en sem betur fer hefur það breyst. Að taka þátt í mótinu á að vera frá- bær skemmtun. Allar okk- ar helstu knattspyrnukon- ur eiga það sameiginlegt að hafa spilað hér á sínum yngri árum og allar eiga þær góðar minningar frá mótinu. Mótið í ár er það stærsta sinnar tegundar á landinu en um 299 lið eru skráð til þátttöku. Svona mót er ekki hægt að halda nema með góðri þátttöku sjálfboðaliða og erum við í Breiða- bliki einstaklega heppin með að eiga flottan hóp aðstandenda sem er tilbúinn að leggja hönd á plóg- inn til að mótið heppnist sem best. Þessu fólki vil ég þakka sérstaklega fyrir þeirra framlag því án þeirra væri ekkert mót og sérstakar þakk- ir fær okkar frábæra Símamóts- nefnd. Það er okkar von að kepp- endur Símamótsins 2015 muni njóta sín sem allra best í góðra vina hópi og hafa gaman af því að spila fótbolta og af öllum þeim skemmtunum sem boðið er upp á. Við sem eldri erum getum einungis verið áhorfendur og þurfum að hafa það hugfast að við erum fyrirmyndir. Leyf- um stelpunum að njóta sín í fótbolta og hvetjum alla áfram á jákvæðum nótum. Annars hvet ég alla til að kíkja í Kópavogsdalinn því að labba um mótssvæðið og sjá alla þessar stelpur í fótbolta er eitthvað það skemmtilegasta sem hægt er að gera á sumrin. Velkomin á Síma- mótið 2015. Borghildur Sigurðardóttir, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks. Velkomin á Símamótið 2015 295 lið eru skráð til leiks á mótið í ár, sem er það 31. í röðinni. Keppt er í 5., 6. og 7. flokki kvenna. Liðin koma frá 38 félögum með rétt rúmlega 2.000 keppendum og um 400 þjálfurum og liðsstjórum. Leikið er á 31 velli og er leikjafjöldinn vel yfir 1150. 176 dómarar sjá um að dæma leikina. Sjálfboðaliðar eru rétt tæplega 400. Tími milli leikja er 30 mínútur á föstudeginum og laugar- deginum en 35 mínútur á sunnudeginum þar sem leikir geta farið í framlengingu. Símamótið 2015 Útgefandi: Fréttatíminn - Morgundagur ehf. Auglýsingar: Gígja Þórðardóttir Blaðamaður: Erla María Markúsdóttir Ábyrgðarmaður: Valdimar Birgisson KOMDU Í FÓTBOLTA Þ að er hátíðarstund á hverju sumri hér í Kópavogsbæ þegar Símamótið er sett og bærinn fyllist af fótboltastelpum og fjölskyldum þeirra. Mótið setur sannarlega jákvæðan og góðan svip á bæinn, það er gaman að fylgjast með knattspyrnuhetjum framtíðar stíga sín fyrstu skref og eiga góðar stundir með sínu liði innan og utan vallar. Umgjörð mótsins er öll hin glæsilegasta og óska ég Breiða- blik til hamingju með hversu vel og glæsilega er að verki staðið. Dag- skrá mótsins er þétt og skemmti- leg og hvet ég þátttakendur til það njóta hennar. Þegar henni sleppir er nóg við að vera í Kópavogsdalnum, sem er ein af fjölmörgum perlum Kópavogs, og í næsta nágrenni þar sem er að finna afþreyingu við allra hæfi. Sundlaugar bæjarins, Sund- laug Kópavogs og Salalaug, eru sannarlega heimsóknarinnar virði, Náttúrufræðistofa Kópavogs er eina náttúrgripasafn höfuðborgarsvæð- isins og þá eru fjölmargar verslanir og veitingastaðir innan seilingar. Ég er þess fullviss að keppendur og aðstandendur þeirra eiga eftir að skemmta sér vel á þessu stærsta opna fótboltamóti landsins. Verið velkomin í Kópavog og gangi ykkur öllum sem allra best. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs. Kveðja frá bæjarstjóra Kópavogs!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.