Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.07.2015, Blaðsíða 31

Fréttatíminn - 17.07.2015, Blaðsíða 31
ÖGN er fisléttur hágæða dúnjakki með einstaklega klæðilegu sniði. Andar vel með Technostretch® flísefni á hliðum. Fullkominn félagi í útivistina. Technostretch® 90/10 gæsadúnn 800 fill power Bundnir saumar Úti er inn Tinna Anorakkur er þriggja laga skel fyrir konur. „Þriggja laga skeljarnar eru það sem við köllum harðar skeljar og eru frábært ysta lag,“ segir Lilja Kristín, verslunarstjóri Cintamani í Smáralind. „Sniðið á Tinnu er skemmtilegt og er hún síðari en aðrar skeljar hjá okkur. Tinna fæst í mörgum litum og við mælum með björtu litunum, ekki bara til að brjóta upp hversdagsleikann heldur líka af öryggisástæðum svo maður sjáist betur.“ mynd/Hari. T egund útivistar skiptir vissulega máli þegar verið er að velja útivistarfatnað,“ segir Lilja Kristín Birgisdóttir, verslunarstjóri Cintamani í Smára- lind. „Okkur þykir mikilvægt að við- skiptavinir okkar öðlist vitneskju um það hvernig eigi að velja sam- an föt fyrir hvers konar útivist. Við reynum því að greina þarfir hvers viðskiptavinar fyrir sig eftir bestu getu svo að hann gangi sáttur út í fatnaði sem hann mun nota sem mest.“ Hjá Cintamani er að finna fjölbreyttan fatnað sem hentar vel í ólíkar tegundir útivistar. „Þannig gæti viðskiptavinur til dæmis keypt sér jakka sem er frábær í fjallgöng- ur en sami jakki gæti einnig hentað vel á skíði eða í klifur. Við reynum að hanna flíkur sem eru ekki of sér- hæfðar við eina tegund útivistar,“ segir Lilja. Þriggja laga kerfið sigrar allar tegundir veðra Hjá Cintamani er notast við svokallað þriggja laga kerfi. „Kerfið skiptist í innsta lag, miðlag og ysta lag og með notkun þess er hægt að halda á sér hita, koma í veg fyrir rakamyndun og standast öll veðrabrigði,“ segir Lilja. Innsta lagið er það lag af fötum sem klæðst er næst húðinni. Tilgangur innsta lagsins er að færa svita frá húð- inni og út í næsta lag. Miðlagið hefur það hlutverk að einangra hita og færa svita frá innsta lagi út í ysta lag. Ysta lagið sér svo um að einangra hita og andar vel á meðan það ver mann fyr- ir vatni og vindum. Spurð um dæmi um aðstæður þar sem þörf er á öllum lögum nefnir Lilja til dæmis langar gönguferðir, skíði og snjóbretti. Klæðum okkur vel og njótum náttúrunnar Útivistarsumarið nær brátt hámarki hér á landi og þó svo að nú sé hásum- ar, á íslenskan mælikvarða, er gott að vera vel viðbúin allri veðráttu. „Það þýðir lítið að stóla á íslenska veðurspá og því er gott að vera vel klædd. Það er fátt verra en að vera blautur og kaldur á ferðalagi,“ segir Lilja. Cin- tamani tekur virkan þátt í útivistinni í sumar og stendur fyrir skemmti- legum ljósmyndaleik. „Við hvetjum alla ferðalanga til að vera duglega að taka myndir af sér í íslenskri nátt- úru, fylgja okkur á Instagram á cin- tamani_iceland og annað hvort setja inn mynd á Instagram með merkinu #utierinn eða senda okkur skemmti- legar myndir á netfangið myndir@cin- tamani.is,“ segir Lilja. Sigurmyndin verður svo valin þann 29. júlí og vinn- ingshafi hlýtur gjafabréf að verðmæti 100.000 kr. í Cintamani. Unnið í samstarfi við Cintamani Þegar kemur að því að velja sér útivistarfatnað skiptir mestu máli að velja rétta fatnaðinn fyrir réttu aðstæðurnar. Markmið Cintamani er að koma til móts við þarfir fólks sem stundar mjög fjölbreytta útivist og því ættu allir að geta fundið sér eitthvað við hæfi í einni af fimm verslunum Cintamani. útihátíðir 31 Helgin 17.-19. júlí 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.