Fréttatíminn - 17.07.2015, Blaðsíða 24
Stækkum þessa borg
F
Fyrir skemmstu spruttu upp gagnrýnis-
raddir og andstyggðarumræða á netinu
vegna þess að bandaríska matvælakeðj-
an Dunkin’ Donuts er að koma sér fyrir
á góðum stað á Laugaveginum. Ekki eru
allir sáttir og margir hverjir telja endalok
miðbæjarins nálgast. Á sama tíma komu
fréttir þess efnis að svokallaðar lundabúðir
séu að tröllríða reykvískri menningu og
fyrirhugað er að planta nokkrum slíkum í
húsaþyrpinguna sem hýsir núna skemmti-
staðina Gaukinn og Húrra!. Auðvitað er
þetta allt saman eitthvað sem má gagnrýna
og skiljanlega eru margir ekki hrifnir af
þessu. Ég er þó þeirrar skoðunar að þetta
sé bara rökrétt þróun, því miður. Í öllum
stórborgum þessa heims eru túristabúðir
og skyndibitakeðjur á þeim stöðum sem
teljast miðbæir og -borgir. Hvort sem það
er á Strikinu í Kaupmannahöfn, Times
Square í New York eða Piccadilly Circus
í London. Það er bara þróunin um allan
heim. Í öllum þessum borgum og flestum
öðrum eru íbúar ekkert spenntir fyrir því
að hanga á þessum svæðum. Danskurinn
er ekki mikið að hanga á Strikinu og New
York-búinn fer ekki í Midtown, nema hann
nauðsynlega þurfi þess. Í þessum borgum
er búið að stækka svæðið. Úthverfin iða
af lífi og ekki margir ferðamenn nenna að
pæla í því. Ég var í sumarfríi um daginn og
fór í göngutúr um Hallærisplanið, Fógeta-
garðinn og Kvosina með föður mínum og
allir sem urðu á vegi okkar voru útlend-
ingar. Ég hugsaði með sjálfum mér að það
fer að koma að því að við Íslendingar höf-
um ekkert í miðbæinn að sækja. Pabbi var
á sama máli og hann stendur á áttræðu.
Hvað eigum við að gera? Það sem ég legg
til er að við stækkum þessa borg. Hættum
að einblína á miðbæinn okkar fagra og
færum okkur og okkar menningu á fleiri
staði. Vissulega er það byrjað að gerast.
Á grandanum er skemmtileg starfsemi, í
Laugalæknum eru gourmet-verslanir og
miðbærinn í Hafnarfirði er kósý. Ferða-
mannaiðnaðurinn er tvíeggjað sverð. Við
fögnum því að hingað komi fólk frá öllum
heimsálfum sem dáist að því sem við eig-
um, bæði í bæjum og í náttúrunni. En með
auknum ferðamannastraumi koma ýmsir
hlutir sem við hrífumst ekki af. Lundabúð-
ir, alþjóðlegar keðjur og hótel. Vissulega
má setja spurningarmerki við staðsetn-
ingu allra þessara fyrirtækja. Hótelin öll á
sama blettinum nánast og lundabúðirnar
hver við hlið annarrar. Þetta er vegna þess
að við hugsum alltaf um Reykjavík sem
101. Ef farið er til Berlínar eða Parísar þá
er ekki mikið um 101. þar eru 105, 104,
108 og jafnvel 200! Af hverju hugsum við
ekki út fyrir 101? Hvað ef það væri einhver
geggjaður bar í Álfheimunum og góður
veitingastaður í Seljahverfinu? Gætum við
ekki alveg hangið þar og breitt aðeins úr
okkur? Það finnst mér. Við þurfum ekk-
ert að vera alltaf í miðbænum. Vissulega
er góðu plássi á Laugaveginum spanderað
undir Dunkin’ Donuts og heppilegra hefði
verið að sjá þetta í Kringlunni eða bara í
Hamraborg í Kópavogi. En við megum
ekki vera eins og einhverjir kverúlantar
í afskekktri sveit. Um leið og við erum að
reyna að vera heimsborgarar högum við
okkur samt eins og einbúar. Fúl á móti og
á móti öllu sem gæti skaðað ímynd okkar.
Ímynd 101 er bara ekkert svo spes, eigin-
lega bara kópía af fullt af öðrum hlutum.
Að vísu finnst mér Dunkin’ Donuts synd-
samlega gott stöff og mun pottþétt smakka
þetta rusl. Ekki oft samt.
Það er alveg sama hvað við röflum og
tautum. Hótelin og lundabúðirnar munu
koma, af því að við sem erum bara venju-
legir borgarar höfum ekkert að segja. Við
höfum aldrei haft neitt um þetta að segja.
Alveg sama hvað óánægjuraddirnar verða
háværar og beittar þá er þeim sem eiga
peninga og fjárfesta í þessum hlutum al-
veg sama. Ég segi fokk itt. Förum bara
eitthvað annað og gerum það skemmti-
legt. Reykjavík er ekki bara eitt póstnúm-
er. Það er fullt af skemmtilegum hverfum
í bænum þar sem hægt er að opna alls kon-
ar skemmtilegt. Líka í nágrannasveitar-
félögunum. Ef einhver þarna úti er á þeim
buxunum að opna litla búð, lítinn veitinga-
stað, eða lítinn bar, og þorir að taka séns-
inn á að gera það einhvers staðar annars
staðar en í 101, þá mun sá sami aðili njóta
góðs af því á næstu 5 árum. Ef við erum
dugleg að bakka hann upp og mæta á stað-
inn. Staðir eins og Frú Lauga og Pulsu-
gerðarmeistarinn í Laugalæk eru lifandi
dæmi þess. Ítölsku hjónin sem bjóða upp á
ítalskan heimilismat í Laugarásnum líka,
sem og Valdís og Búrið á Grandanum. það
er meira að segja geggjaður jórdanskur
staður í Hamraborg í Kópavogi. Við eig-
um það til að vera þröngsýn og oft er það
fólkið sem telur sig hvað víðsýnast sem er
hvað þröngsýnast! Við erum ekkert sér-
stakari en aðrar þjóðir. Það er bara svo
nýtt fyrir okkur að vera svona fáránlega
vinsæl eins og við erum. Við erum líka
hugmyndarík og við þurfum bara að þora
að framkvæma allar þessar hugmyndir.
Kíkjum út fyrir Snorrabrautina, það er
fullt að gerast. Fáum okkur græna kortið
og tékkum á þessu. Hættum að óttast.
Leyfum öllum að vera með. Fögnum alls
konar. Dunkin’ Donuts er ekki að fara að
drepa okkur. Þeir gera sitt og við gerum
hitt.
Hannes
Friðbjarnarson
hannes@fret-
tatiminn.is
HELGARPISTILL
DrainLine niðurfallsrennur
Tilboð
66.900
Hitastýrð
sturtu blöndunar-
tæki með höfuð-
og handúðara
með nuddi.
24 viðhorf Helgin 17.-19. júlí 2015