Fréttatíminn


Fréttatíminn - 17.07.2015, Síða 24

Fréttatíminn - 17.07.2015, Síða 24
Stækkum þessa borg F Fyrir skemmstu spruttu upp gagnrýnis- raddir og andstyggðarumræða á netinu vegna þess að bandaríska matvælakeðj- an Dunkin’ Donuts er að koma sér fyrir á góðum stað á Laugaveginum. Ekki eru allir sáttir og margir hverjir telja endalok miðbæjarins nálgast. Á sama tíma komu fréttir þess efnis að svokallaðar lundabúðir séu að tröllríða reykvískri menningu og fyrirhugað er að planta nokkrum slíkum í húsaþyrpinguna sem hýsir núna skemmti- staðina Gaukinn og Húrra!. Auðvitað er þetta allt saman eitthvað sem má gagnrýna og skiljanlega eru margir ekki hrifnir af þessu. Ég er þó þeirrar skoðunar að þetta sé bara rökrétt þróun, því miður. Í öllum stórborgum þessa heims eru túristabúðir og skyndibitakeðjur á þeim stöðum sem teljast miðbæir og -borgir. Hvort sem það er á Strikinu í Kaupmannahöfn, Times Square í New York eða Piccadilly Circus í London. Það er bara þróunin um allan heim. Í öllum þessum borgum og flestum öðrum eru íbúar ekkert spenntir fyrir því að hanga á þessum svæðum. Danskurinn er ekki mikið að hanga á Strikinu og New York-búinn fer ekki í Midtown, nema hann nauðsynlega þurfi þess. Í þessum borgum er búið að stækka svæðið. Úthverfin iða af lífi og ekki margir ferðamenn nenna að pæla í því. Ég var í sumarfríi um daginn og fór í göngutúr um Hallærisplanið, Fógeta- garðinn og Kvosina með föður mínum og allir sem urðu á vegi okkar voru útlend- ingar. Ég hugsaði með sjálfum mér að það fer að koma að því að við Íslendingar höf- um ekkert í miðbæinn að sækja. Pabbi var á sama máli og hann stendur á áttræðu. Hvað eigum við að gera? Það sem ég legg til er að við stækkum þessa borg. Hættum að einblína á miðbæinn okkar fagra og færum okkur og okkar menningu á fleiri staði. Vissulega er það byrjað að gerast. Á grandanum er skemmtileg starfsemi, í Laugalæknum eru gourmet-verslanir og miðbærinn í Hafnarfirði er kósý. Ferða- mannaiðnaðurinn er tvíeggjað sverð. Við fögnum því að hingað komi fólk frá öllum heimsálfum sem dáist að því sem við eig- um, bæði í bæjum og í náttúrunni. En með auknum ferðamannastraumi koma ýmsir hlutir sem við hrífumst ekki af. Lundabúð- ir, alþjóðlegar keðjur og hótel. Vissulega má setja spurningarmerki við staðsetn- ingu allra þessara fyrirtækja. Hótelin öll á sama blettinum nánast og lundabúðirnar hver við hlið annarrar. Þetta er vegna þess að við hugsum alltaf um Reykjavík sem 101. Ef farið er til Berlínar eða Parísar þá er ekki mikið um 101. þar eru 105, 104, 108 og jafnvel 200! Af hverju hugsum við ekki út fyrir 101? Hvað ef það væri einhver geggjaður bar í Álfheimunum og góður veitingastaður í Seljahverfinu? Gætum við ekki alveg hangið þar og breitt aðeins úr okkur? Það finnst mér. Við þurfum ekk- ert að vera alltaf í miðbænum. Vissulega er góðu plássi á Laugaveginum spanderað undir Dunkin’ Donuts og heppilegra hefði verið að sjá þetta í Kringlunni eða bara í Hamraborg í Kópavogi. En við megum ekki vera eins og einhverjir kverúlantar í afskekktri sveit. Um leið og við erum að reyna að vera heimsborgarar högum við okkur samt eins og einbúar. Fúl á móti og á móti öllu sem gæti skaðað ímynd okkar. Ímynd 101 er bara ekkert svo spes, eigin- lega bara kópía af fullt af öðrum hlutum. Að vísu finnst mér Dunkin’ Donuts synd- samlega gott stöff og mun pottþétt smakka þetta rusl. Ekki oft samt. Það er alveg sama hvað við röflum og tautum. Hótelin og lundabúðirnar munu koma, af því að við sem erum bara venju- legir borgarar höfum ekkert að segja. Við höfum aldrei haft neitt um þetta að segja. Alveg sama hvað óánægjuraddirnar verða háværar og beittar þá er þeim sem eiga peninga og fjárfesta í þessum hlutum al- veg sama. Ég segi fokk itt. Förum bara eitthvað annað og gerum það skemmti- legt. Reykjavík er ekki bara eitt póstnúm- er. Það er fullt af skemmtilegum hverfum í bænum þar sem hægt er að opna alls kon- ar skemmtilegt. Líka í nágrannasveitar- félögunum. Ef einhver þarna úti er á þeim buxunum að opna litla búð, lítinn veitinga- stað, eða lítinn bar, og þorir að taka séns- inn á að gera það einhvers staðar annars staðar en í 101, þá mun sá sami aðili njóta góðs af því á næstu 5 árum. Ef við erum dugleg að bakka hann upp og mæta á stað- inn. Staðir eins og Frú Lauga og Pulsu- gerðarmeistarinn í Laugalæk eru lifandi dæmi þess. Ítölsku hjónin sem bjóða upp á ítalskan heimilismat í Laugarásnum líka, sem og Valdís og Búrið á Grandanum. það er meira að segja geggjaður jórdanskur staður í Hamraborg í Kópavogi. Við eig- um það til að vera þröngsýn og oft er það fólkið sem telur sig hvað víðsýnast sem er hvað þröngsýnast! Við erum ekkert sér- stakari en aðrar þjóðir. Það er bara svo nýtt fyrir okkur að vera svona fáránlega vinsæl eins og við erum. Við erum líka hugmyndarík og við þurfum bara að þora að framkvæma allar þessar hugmyndir. Kíkjum út fyrir Snorrabrautina, það er fullt að gerast. Fáum okkur græna kortið og tékkum á þessu. Hættum að óttast. Leyfum öllum að vera með. Fögnum alls konar. Dunkin’ Donuts er ekki að fara að drepa okkur. Þeir gera sitt og við gerum hitt. Hannes Friðbjarnarson hannes@fret- tatiminn.is HELGARPISTILL DrainLine niðurfallsrennur Tilboð 66.900 Hitastýrð sturtu blöndunar- tæki með höfuð- og handúðara með nuddi. 24 viðhorf Helgin 17.-19. júlí 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.